Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Side 6
6 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Fréttir JSV
Reyndu að
frelsafélaga
Fjöldi manna reyndi á
laugardagskvöld að frelsa
félaga sinn úr haldi lögregl-
unnar á Selfossi. Að sögn
varðstjórans á Selfossi voru
tildrög atburðanna þau að
maðurinn vatt sér að öðmm
gesti á Jónsmessuhátíðinni
sem haldin var á Eyrarbakka
og þurfti lögreglan að skerast
í leikinn. Félagar mannsins
vom ekki sáttir við aðfarir
lögreglu og réðust þeir á lög-
regluþjónana. Engan sakaði
þó en sá sem átti upptökin
af ólátunum fékk að gista
fangageymslu lögreglunnar
um nóttina.
Megadeath
komnirá
klakann
Megadeth, ein af
þekktustu þunga-
rokksveitum allra
trma, lenti í gær á
Keflavíkurflugvelli.
Þeir halda tónleika á
NASA í kvöld og verða það
lokatónleikar á Evróputúr
sveitarinnar sem staðið
hefur frá 3. júm'. Hljómsveit-
in var stofnuð af rokkaran-
um Dave Mustaine 1983
eftir að hann var rekinn út
Metallicu og hefur alla tíð
þótt anda mjög köldu milli
sveitanna. Því bíða margir
spenntír eftír því að sjá
hvort hljómleikamir standist
samanburð við þá sem
Metallica hélt.
Á Framsókn
sénsíRvk.?
Já, aö sjálfsögöu. Framsókn-
arflokkurinn á alltafmögu-
leika. Þaö hefur sýnt sig aö
fylgi okkar skilar sér alltaffyrír
kosningar þótt eitthvaö hafí
þaö dalaö inn á milli. Árangur-
inn I kosningabaráttu Fram-
sóknarflokksins skýrist afgóö-
um baráttumálum okkar.Auk
þess er Framsókn sexi flokkur
og ekki skemmirþað fyrir.“
Hann segir / Hún segir
„Framsókn á engan séns. Þeir
eiga eftir aö reyna eins og þeir
geta aö halda saman R-listan-
um en efhann liðast ísundur
er út um Framsóknarflokkinn i
borginni. Framsóknarflokkur-
inn er stjórnmálaflokkur án
hugsjónar sem notar kænsku-
brögö til aö ná til kjósenda
rétt fyrir kosningar.“
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
laganemi og framkvæmdastýra
Foreldrar sjö ára stúlku í grunnskólanum á Hellu vilja skriflega afsökunarbeiðni
frá Sigurgeiri Guðmundssyni skólastjóra vegna framkomu hans. Þau segja hann
hafa dreift kjaftasögum um þau hjónin, brugðist við kvörtunum þeirra með offorsi
og steytt að þeim krepptum hnefa. Dóttir þeirra grætur sig í svefn á næturnar og
Hreppsnefnd Rangársýslu er klofin í málinu.
Foreldrar í stríði við
skólastjóra ó Hellu
„Dóttir okkar grét á kvöldin af kvíða," segja foreldrar sjö ára
stúlku í grunnskólanum á Hellu sem hafa sent sveitarstjóm
Rangárþings opinbera kvörtun vegna samskipta þeirra við
Sigurgeir Guðmundsson skólastjóra. Þau segja skólastjórann
hafa borið út róg um þau meðal kennara, valdið bami þeirra
óþægindum og vilja opinbera afsökunarbeiðni.
„Við förum fram á að skólastjór-
inn Sigurgeir Guðmundsson fái
skriflega áminningu frá hrepps-
nefnd vegna framkomu hans við
okkur," segja foreldrarnir Guðný
Sigurðardóttir og Þórir Jónsson
sem búa á Selalæk í Rangársveit.
Þau vilja einnig skriflega afsök-
unarbeiðni frá skólastjóranum
vegna þeirra ósanninda sem hann
hefur borið upp á þau hjónin.
Óásættanleg hegðun
Málið var tekið fyrir í sveitar-
stjórn Rangárþings á dögunum.
Sveitarstjórinn sagði sig frá málinu
vegna vanhæfis en minnihlutí
sveitarstjórnarinnar harmaði það
að skólastjórnendur grunnskólans
á Hellu skyldu koma fram með
þeim hætti sem foreldrarnir álíta.
Það hlyti að teljast ámælisvert og
skortur á stjórnun og færni í
mannlegum samskiptum af hálfu
skólastjórnenda að ná ekki sáttum
í málinu innan skólans.
Viðar Steinarsson er einn af
þeim sem skrifa undir ályktunina.
Hann segir það óvenjulegt að mál
fari þessa leið innan stjórnkerfis-
ins.
Barnið óöruggt
Upphafið af deilum Selalækjar-
hjóna við skólastjórnendur grunn-
skólans á Hellu má rekja til kvört-
unar þeirra til skólans á síðasta ári.
Þeim fannst skorta á gæslu yngstu
barnanna þegar kom að akstri
þeirra heim úr skóla og sögðu
dóttur sína finna til óöryggis þar
„Skólastjóri grunn-
skólans á Hellu steytír
þá krepptum hnefan-
um að okkur og segir
orðrétt: „Þá skal hart
mæta hörðu."
sem hún væri oft hrædd um að
missa af skólabflnum.
Foreldrarnir skrifuðu kvörtun-
arbréf og bentu á að í skólalögum
ber skólinn ábyrgð á barninu þar
til það kemur heim.
Steytti kreftum hnefa
A fundi foreldranna með Sigur-
geiri skólastjóra dró til tíðinda.
Sigurgeir krafðist þess að þau
drægju bréfið til baka. Því neituðu
foreldrarnir og sögðust efast um
hæfi skólastjórnenda. „Skólastjóri
grunnskólans á Hellu steytir þá
krepptum hnefanum að oldcur og
segir orðrétt: „Þá skal hart mæta
hörðu,“ segir foreldrarnir í erindi
sínu til sveitarstjórnar. í kjölfarið
segja foreldrarnir að skólastjórinn
hefði teldð að rægja þau meðal
starfsmanna skólans. Hann bæri
út kjaftasögur um þau hjónin og
færi með óskiljanleg ósannindi.
Vilja sátt
Sigurgeir Guðmundsson vildi
ekki svara spurningum þegar eftir
því var leitað. „Ég ætla ekki að tjá
mig um þetta mál,“ sagði
hann sleit sambandinu.
Þórir Jónsson, faðir
stúlkunnar, segir þaú
hjónin hafa sent
sveitarstjórn málið,
þar væri það tíl
vinnslu og þau von-
uðust eftír niður-
stöðu sem fyrst.
Málið er enn til
meðferðar í sveitar-
stjórninni en meirihluti
stjórnarinnar ályktaði á
síðasta fundi að þar
sem aðeins stæði
orð á móti orð
gætí hrepps-
nefnd ekki /
veitt skóla- f
stjórnendum
áminningu. %
í staðinn »
liggur fyrir
hvatning
meirihlutans
um að koma
saman sátta-
fundi sem
fyrst.
simon@dv.is
Arnold Bryan Cruz bjargaöi lífi gests sem reyndi sjálfsmorð
Sigurgeir Guð-
mundsson, skóla-
stjóri á Hellu Vill
ekkert tjá sig um
ásakanir foreldranna
Setið um karia
á Akureyri
Sjálfsmorðstilraun á skemmtistað
Karlmaður um fertugt reyndi að
stytta líf sitt inni á skemmtistaðnum
Gauld á Stöng aðfaranótt sunnu-
dags. Amold Bryan Cruz, rekstrar-
stjóri skemmtistaðarins, segist hafa
verið brugðið. „Dyraverðirnir tóku
eftir því að þessum manni leið eitt-
hvað illa og bentu öðrum
starfsmönnum staðarins á
það. Honum var boðið að
koma inn í eldhús þar sem
honum var gefið kaffi og
sælgæti. Ég var látinn vita
og gerði ég strax lögreglu
viðvart þar sem hann gekk
greinilega ekki heill til
skógar,“ segir Amold. Hann reyndi
að hafa ofan af fyrir honum á meðan
beðið var eftír lögreglu. „Ég yfirgaf
manninn í smá stund til þess að
athuga hvort lögreglan væri komin.
Þegar ég kom til baka var hann
Gaukur á Stöng Maður-
inn var inni á eldhúsi stað-
arins en starfsmenn sáu að
ekki var allt með felldu og
hlúðu að manninum.
Arnold Bryan Cruz, rekstrar-
stjóri Gauksá Stöng Brást rétt
við þegar gestur á Gauknum
reyndi aö kyrkja sjálfan sig. Arnold
er vmstra megin á myndinni.
búinn að herða
bindið sitt svo
mildð að það hafði liðið yfir hann. Ég
vissi ekki hvort ég átti að leysa hnút-
inn eða reyna að finna skæri. Ég
reyndi að leysa hnútinn og það
tókst," segir Arnold og greinilegt er
að rétt viðbrögð hafi bjargað lífi
mannsins.
Lögreglan kom svo á staðinn og
tók manninn með sér sem var greini-
lega ofurölvi. Samkvæmt heimildum
blaðsins er mjög vel staðið að öllum
öryggismáium á Gauknum og kom
það bersýnilega í ljós í þessu máli.
kjartan@dv.is
Um fimmtíu manns skráðu sig í
hlutverk aukaleikara fyrir kvik-
myndina Flags of Our Fathers á
Akureyri um helgina. Örtröð skap-
aðist á Kaffi Roma en þar hafði
Eskimo models komið sér fyrir og
hafið skráningar. Fyrirtækið leitar
nú að hundmð karlmanna til að
koma fram í myndinni sem leik-
stýrt verður af Clint Eastwood.
Tökur á myndinni fara fram í
sumar og verða að mestu í Krýsu-
vík. Um tuttugu hlutverk af þeim
500 sem Eskimo kemur til með að
manna eru textahJutverk. Aukaleik-
aramir munu fá 5000 krónur
greiddar fyrir tólf tíma vinnu sem
þykir smáræði miðað við það tæki-
færi að fá að sjá sjáifan sig á stóra
tjaldinu. Skjár Einn var einnig fyrir
norðan um helgina í leit að hinum
fullkomna piparsveini en stöðin
ætlar að hefja framleiðslu á nýrri
íslenskri raunveruleikaþáttaröð
innan skamms, byggðri á hinum
vinsælu Bachelor-þáttum.