Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Page 8
8 MÁNUDAGUR 27. JÚN/2005 Fréttir DV Bifreið stolið í Keflavík Lögreglan í Keflavík fékk dlkynningu um að bifreið að gerðinni Toyota Corolla, árgerð 1994, hafl verið stolið fyrir utan Steypustöðina í Helguvík rétt eftir hádegi í gær. Númer bifreiðarinnar er YE-601 og er hún grá á lit. Seinni part gærkvölds var hafist handa við að leita bílsins. Þeir sem verða varir við bílinn, eða hafa frekari upplýsingar um málið, eru beðnir um að hafa samband við lög- regluna í Keflavík. Eftir að Sigurjón Sighvatsson seldi blokkina að Hátúni 6 var framtíð íbúa hússins i algerri óvissu. Nú er komið á daginn að nýbakaður eigandi, blokkarinn, hefur sagt leigusamningi allra íbúanna upp. Einn þeirra sem missa heimili sitt er Róbert Ómarsson en hann fékk fréttirnar daginn fyrir hjartauppskurð sem var upp á líf og dauða. Rekinn no heimnn daginn fyrir hjartaaögerð Ferðalangur vildi sjúkrabíl Sænskur ferðalangur sem kom hingað til lands fyrir rúmlega viku hringdi í Neyðarlfnuna þegar klukkan var að ganga tíu á föstudagskvöld. Hann sagðist þurfa aðstoð sjúkrabíls. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli var send á staðinn og var hon- um boðin aðstoð héraðs- læknis og að gista í bið- herbt á stöðinni. Ferðai. , turinn tók því fegins h. di. „Heilsuá- stand h..,iS var ekki alvar- legt," segir Sæmundur Alexandersson, varðstjóri hjá lögreglunni á Keflavík- urflugvelli. Fékk heimþrá Sænski ferðalangurinn sætti sig við að fá ekki aðstoð sjúkrabíls, sem hann óskaði ítrekað. Hann var peningalaus og hafði einungis meðferðis einn bakpoka. Ætla má að hann hafi haft í hyggju að leita á vit ævintýranna í landi elds og ísa en snarlega hætt við það. „Hann ætl- aði aftur heim til Svíþjóð- ar á næsta ári,“ segir Sæ- mundur hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli. Hon- um var aðstoðað við að breyta flugmiða sínum og var feginn því að komast aftur heim til Stokkhólms. Róbert Ómarsson, 73 ára gamall íbúi í Hátúni 6, frétti að leigu- samningi hans hafði verið sagt upp daginn áður en hann fór í hjartauppskurð upp á líf og dauða. Hann las fréttina í DV og brá mjög. „Þetta var ekki það sem maður vildi heyra áður en farið var í svona uppskurð." Róbert hefur nú tæpt ár til þess að flytja af heimili sínu til 10 ára en óvíst er hvað tekur við. Róbert Ómarsson Fréttiafþví | oð leigusamningi hans hafði ver- ið sagt upp daginn áður en hann fór i hjartaaðgerð. Róbert getur ekki farið heim til sin vegna þess hve aðgengi er siæmt, en hann notast við göngugrind sér til stuðnings. Róbert er nú á hjartadeild Land- spítalans við Hringbraut, en útskrif- ast að hans sögn á mánudaginn. Róbert getur ekki farið heim í Hátún- ið vegna h ss hve aðgengi er slæmt. „Ég er r j göngugrind og aðgengið við bh jdna er þannig að ég á erfitt me jð komast um. Ég neyðist því til þ; „s að fara á Rauða Kross-hótelið," segir Róbert en framkvæmdir við Hátún 6 eru þess valdandi að að- gengi fyrir þá sem þurfa hjálpartæki af einhverju tagi er ekki gott. Róbert fer svo í endurhæfingu eft- ir þessa viðamiklu hjartaaðgerð. „Ég fer á Reykjalund og gæti verið þar í einhvem tíma. Ég ætla mér að kom- ast á gott ról og svo skoða mál mín varðandi húsnæði," segir Róbert. Varar fólk við að kaupa Róbert vill vara nágranna sína í blokkinni við að kaupa íbúðir sínar, en slíkt stendur þeim til boða sam- Sigurjón Sighvatsson Seldi blokkina Aðal- steini Glslasyni. Aðalsteinn borgaði hátt verð, en sagði mönnum I herbúðum Sigurjóns að hann hyggðist halda áfram að leigja Ibúð- irnar út. kvæmt bréfi sem eigendur hússins sendu til íbúanna. „Ýmislegt er athugavert við fráganginn í blokk- inni. Ég ræð fólki eindregið frá því að kaupa íbúðir sínar," segir Róbert ósáttur við hvemig málum er háttað í blokkinni. Eins og DV greindi ffá fyrir skemmstu keypti Aðalsteinn Gísla- son Hátún 6 af Sigurjóni Sighvats- syni og sagði leigjendum upp með það fyrir augum að selja hverja íbúð fýrir sig. Þetta kom mjög flatt upp á leigjendurna sem margir hverjir gætu endað á göt- urmi. Leiguverð er nógu hátt Margir íbúar Hátúns 6 hafa talað um hversu ódýr leig- an í húsinu sé. Ró- bert er ósammála þessu. „Leigan er nógu há. Ég er á ellilíf- eyri og fæ tekjur úr mínum lífeyrissjóði. Tæpar 60 þúsund krónur á mánuði em alveg nóg í leigu." Hann segir þó að staðsetning hússins sé með því besta sem gerist. „Stutt er í allar strætisvagnasam- göngur og góðar búðir em þarna í nágrenninu. Þetta er með þvl besta sem gerist hvað staðsetningu varð- ar." Róbert segir einmitt staðsetn- inguna og ódýra leigu hafa verið ástæður þess að hann hafi búið þarna svo lengi sem raun ber vitni. Vill ekki að borgin kaupi Róbert er ósáttur við þær hugmyndir annarra leigj- enda í húsinu að biðla til borgarinnar að blokkin verði keypt og leigð áfram út. „Ég vil ekki að Reykjavík kaupi Hátún 6 fyrir mína útsvarspeninga. Borgin þyrfti að fara út í mikið viðhald til þess að koma húsinu í samt stand. Það yrði bara algjört bruðl." DV greindi frá því á föstudaginn að kaup á heilum fjölbýlishúsum stríddi gegn stefnu borgarinnar í kaupum á væntanlegum félagsleg- um íbúðum. Því er lfklegt að Róberti verði að þeirri ósk sinni. kjartan@dv.is „Ég vil ekki að Reykjavík kaupi Hátún 6 fyrir mma útsvarspeninga Af hverju á ekki að kaupa íbúð í Hátúni 6? Gátlisti Róberts Ómarssonar: 1. Silfurskottur hafa gert vart við sig. 2. Sturtubotnar stíflast, ef slíkt gerist flæðir vatn um alla íbúð. 3. Loftræstikerfið hefur ekki verið hreinsað lengi. 4. Mjög slæm aðkoma, ekki aðgengi fyrir fatiaða sem stendur. 5. Bílastæði eru að skornum skammti. Hver íbúð hefur sitt bílastæði en nú verður íbúðum fjölgað um 19. Einnig kvartaði Róbert undan því að klósettið f hans íbúð hafi ekki verið tryggilega fest. Hann segist hafa kvartað undan því við húsvörð en ekki haft erindi sem erfiði. Róbert sagði ennfremur rafmagnið ekki vera sem skyldi í blokkinni. Aðalsteinn Gíslason hefur staðið í stórræðum síðan hann sagði leigusamningi íbúa Hátúns 6 upp. Ætlar sér ekki að brjóta á neinum „Ég get ekki fullyrt um hvað er að í blokkinni, íbúarnir búa ennþá í sínum íbúðum og ég hef ekki kom- ist í að skoða málið nákvæmlega," segir Aðalsteinn Gíslason, eigandi fjölbýlishússins í Hátúni 6. Aðal- steinn er ekkert að flýta sér í þess- um efnum. „Allir fá sinn löglega uppsagnarfrest, ég hef alls ekki í hyggju að brjóta á neinum. Ég hef nú þegar hjálpað fbúum við að EjgjgjEEEH| finna sér nýja íbúð og mun skoða aðstæður hvers og eins og hvernig ég get hjálpað þeim, ég vil ekki að neinn lendi á götunni. Þegar allt er komið á hreint mun ég taka blokk- ina í gegn og seljá íbúðimar." Þegar Aðalsteinn er spurður út í kvartanir Róberts Ómarssonar, íbúa hússins, segir hann að málið verði skoðað og væntanlega verði hægt að bæta hlutina. „Ég hef ekki heyrt frá Róberti sjálfum en ég mun tala „Næst á dagskrá hjá mér er að spila á tónleikum með Brasilíumanni sem ég flutti hingað til lands, ásamt bróður mínum/'segir Ómar Guðjónsson, tónlistarmaður. „Við munum spila brasilfska tónlist á fullu í næstu viku og troðum m.a. upp íIðnó föstudaginn l.júlf." við aðilana sem em að stækka húsið og sjá hvort ekki sé hægt að laga að- gengið, ég vil að sjálfsögðu að fólk komist ferða sinna." Hann segir einnig að greitt verði úr bílastæða- vandræðum. „Við munum fjölga stæðum töluvert, það verður nóg að stæðum íyrir alla íbúa hússins." Mikil ólga skapaðist þegar Aðal- steinn keypti blokkina og sagði upp leigusamningi við íbúa sem margir hverjir hafa búið þarna lengi. „Ég skil afstöðu íbúanna en leigumark- aðurinn er bara þannig að hann er á mikilli hreyfingu. Eitt ár er langur tími og ég hef ekki áhyggjur af því að fólkið lendi á götunni, ég skal hjálpa þeim sem sækjast eftir því," segir Aðalsteinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.