Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Side 11
DV Fréttir
Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur var dæmdur til þess að
greiða sex milljónir króna vegna víxils sem skráður var á
hann. Víxillinn tengist fyrirtækinu NordVest en Sveinn
Andri kom að stofnun fyrirtækisins. Hann segist ekki skilja
hvers vegna þetta mál var höfðað.
Stjönnulögfræðingup
flæktur í fjármáladeilur
Sveinn Andri Sveinsson stjörnulögfræðingur er flæktur í fjár-
máladeilur við fyrirtækið NordVest. Hann var dæmdur í sama
héraðsdómi og hann flytur flest sín mál til að greiða sex milljónir
vegna gamalla synda. Eins og sönnum stjörnulögfræðingi sæmir
gefst hann þó ekki upp og ætlar að áfrýja.
Fyrirtækið NordVest hét áður
Fjárvemd og sérhæfir sig í við-
skiptum á verðbréfamarkaði. Sveinn
Andri var einn af stofnendum fyrir-
tækisins en gekk út úr fyrirtækinu á
sínum tíma og segist hafa gert
samning þess efnis.
„Ég kom að stofnun fyrirtækisins
og átti hlut í þvi en hluturinn var svo
leystur út og ég gekk frá, laus allra
mála."
hæð víxilsins hljómar upp á sex
milljónir og em því talsverðir fjár-
munir í húfi. Að sögn Sveins Andra
átti samningurinn sem hann undir-
ritaði við fyrirtækið einnig að ná til
víxilsins. „Það er bara formsatriði
sem kemur í veg fyrir að ég gat lagt
samninginn minn við fyrirtækið fyr-
ir dóm. Ég þarf því að fara í endur-
kröfumál. Eg mun ekki þurfa að
borga þessa upphæð."
„Ég skil ekki afhverju
menn reka svona mál
þegar þeir vita að hið
rétta kemur í Ijós í
endurkröfumálinu."
Sveinn Andri segist þó ekki skilja
hvers vegna þetta mál hafi verið
höfðað því öll gögn styðji hans hlið
á málinu. „Ég skil ekki af hverju
menn reka svona mál þegar þeir
vita að hið rétta kemur í ljós í
endurkröfumálinu. “
Málið ekki búið
Höfuðstöðvar
NordVest Sveinn
Andri átti þátt í
stofnun fyrirtækisins.
Stórar fjárhæðir
Deilan milli Sveins Andra og Nor-
dVest snýst um víxil sem
SveinnAndri var
skráður fyr-
ir. Upp-
Algeng framvinda
Að sögn Sveins Andra gerist það
oft að slík víxilsmál fari fyrir dóm og
ekki sé hægt að koma öðmm
málsgögnum að. „Fjöldinn
allur af málum fer á
þennan hátt og þetta
er því ekkert sér-
stakt að því leyti.
Þetta er vegna 17.
kafla einkamála-
laga.“
Málið var höfðað sem einkamál
og dómur var kveðinn upp síðast-
liðinn föstudag. Sveinn Andri mun
nú fara með málið f endurkröfu, þar
sem hann getur lagt samning sinn
við fyrirtækið fyrir dóm og hans
hlið á málinu komi í ljós. Þessar sex
milljónir verða að hans sögn aldrei
borgaðar.
Ekki náðist í forsvarsmenn Nord-
Vest þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
kjartan@dv.is
rw*®!
Sveinn Andri Sveinsson
stjörnulögfræðingur
Dæmdur til að greioa sex
miiijónir vegna misheppn-
aðs viðskiptaævintýris.
i •" •5
Borgar Þór bíður enn eftir mótframboði.
Þorbjörg Helga íhugar SUS-framboð
Stjóm Félags ungra
sjálfstæðismanna í Snæ-
fellsbæ hefúr lýst yfir
fuUum stuðningi sínum
við framboð Borgars
Þórs Einarssonar til for-
mennsku í Sambandi
ungra sjálfstæðismanna.
Með þessu bætast Snæ-
fellingar í hóp átta aðiid-
arfélaga Sambands
ungra sjálfstæðismanna
sem lýst hafa yfir stuðn-
ingi sínum við framboð
Borgars. Þyngst vegur
stuðningur Heimdallar við
framboðið en lengi hefur
verið talið óráðlegt að bjóða 1
sig fram til formanns SUS án þess að
njóta stuðnings stærsta aðildarfélags-
ins.
Borgar er Snæfellingum að góðu
Borgar Þór Einars-1
son Uklegur til sig-
urs eftir að hafa
tryggt sér stuðning
Heimdallar.
kunnur en hann var kosn-
ingastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi
fyrir síðustu Alþingiskosn-
ingar. Hallveig H. Þorbjarg-
ardóttir, formaður FUS í
Snæfellsbæ, segir Snæfell-
inga þekkja vel til Borgars
vegna starfa hans í kjör-
dæminu og því fái hann
stuðning í baráttunni.
„Þetta em tvö eða þrjú at-
kvæði," segir Hallveig en
bætir við að hvert atkvæði
skipti máli, komi til þess að
Borgar fái mótframboð. Ekk-
_________ert móframboð hefur enn
borist en bæði gjaldkeri SUS,
Pétur Ámi Jónsson, og fýrsti varafor-
maður félagsins, Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir, hafa verið nefnd sem mögu-
legir kandídatar. Pétur Ámi vildi hvorki
játa þessu né neita í samtali við DV en
Þorbjörg viðurkennir að hún sé að
íhuga framboð. „Það er ákveðinn
þrýstingur á mér sem ég verð að bregð -
ast við. Ég mun íhuga þetta vandlega
áður en ég tek ákvörðun um framhaid-
ið,“ segir hún. Jafnvel var búist við því
að annað hvort þeirra mundi tilkynna
ffamboð sitt í kaffboði
sem haldið var í Val-
höll í gær í tílefni af
75 ára
SUS, en ekker
varð af því.
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir Segist
hafa orðið fyrir
þrýstingi og ætlar að
ihuga málið.