Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Síða 12
72 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Fréttír DV
Veiðidagur
vinsæll
Veiðidagur fjölskyldunn-
ar var haldinn í gær víða um
land. Gefst þá fólki kostur á
að renna fyrir fiski á mörg-
um af skemmtilegri veiði-
stöðum landsins án endur-
gjalds. Það er Landssam-
band stangaveiðifélaga sem
hefur staðið árlega fyrir
Veiðidegi fjölskyldunnar á
annan áratug. Hermann
Ingólfsson sem umsjón hef-
ur með Meðalfellsvatni í
Hvalfirði segir þátttökuna í
ár góða og má búast við að
fjöldi fólks fái veiði-
bakteríuna eftir daginn.
Listamiðstöð á
Laugarvatni
Listamennimir Þor-
valdur Þorsteinsson, Eh'sa-
bet Jökulsdóttir, Egill
Heiðar Anton Pálsson og
Harpa Bjömsdóttir viðr-
uðu um helgina hugmynd-
ir sínar um að húsnæði
gamla Héraðsskólans á
Laugarvatni verði notað
undir alþjóðlega listamið-
stöð. Listamennimir héldu
allir erindi á málþingi um
framtíð héraðsskólahúss-
ins á Laugarvatni um helg-
ina. Þá var einnig undirrit-
uð áskorun til mennta-
málaráðherra um að hann
beiti sér fyrir því að auknu
fjármagni verði veitt til
endurbóta á húsnæðinu.
Borgarráð
styrkir Live8
Borgarráð samþykkti á
fúndi sínum fyrir helgi að
veita Átta lífum - áhugahóp
um baráttuna gegn fátækt í
heiminum styrk, til tónleika-
halds. Styrkurinn, sem nem-
ur einni milljón króna, verð-
ur notaður af hópnum til að
halda útítónleika næsta
fimmtudag. Markmið er að
lýsa stuðningi við Live 8 tón-
leikanna, sem haldnir verða
f sex borgum í Bandaríkjun-
um og Evrópu laugardaginn
2.júlí næstkomandi. Live 8
berst fyrir því að skuldir fá-
tækustu ríkja heims verði
felldarniður.
ÍHér er voöalega milt og þægi-
legt veöur. Skýjaö og tíu til tólf
stiga hiti,“segir Elnar Eövald
Einarsson, loðdýraráöunaut-
ur í Syöra - Sköröugili í Skaga-
firöi. „Skinnauppboö í Kaup-
mannahöfn er nýafstaöið og
gekk mjög vel. Minkaskinn
heldurslnu veröi I dollurum og
ermikil
eftir-
spurn
eftir þvll hinum stóra heimi.
Minkarnir gutu I lok apríl og
eru hvolparnir komnir vel á
legg. Við fengum tæplega
5.000 hvolpa á mlnu búi.Ætíi
þaö hafí ekki komið rúmlega
70.000 hvolpar / heildina. Út-
flutningsverðmæti skinna
héöan frá Skagafiröi gæti orð-
ið 150-200 milljónir.Við erum
sáttir meö þaö.“
Landsíminn
Landgræðsla ríkisins eyðir 60 miUjónum i að malbika planið fyrir utan höfuð-
stöðvar sinar. Landgræðslustjóri býr, ásamt átta öðrum fjölskyldum, í höfuðstöðv-
unum. Fyrir sama pening gæti landgræðslan fullgrætt um 70-80 hektara af ógrónu
landi. Tímabært verkefni, segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri.
Landgrædslan eyðir
60 milljonum í malbik
Stórvirkar vinnuvélar eru notaðar til að malbika stórt svæði fyrir
utan höfuðstöðvar Landgræðslu íslands í Gunnarsholti. Verk-
efnið kostar 50-60 milljónir en fyrir þann pening væri hægt að
græða upp 70 - 80 hektara af ógrónu landi. Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri býr ásamt fjölskyldu sinni í vinnunni.
„Ef við værum í Reykjavík væri
löngu búið að malbika fyrir utan hjá
okkur," segir Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri sem telur fyrir
neðan virðingu opinberrar stofriun-
ar að búa í ryki og drullu. Hann segir
mölina fyrir utan Gunnarsholtið hafa
dugað í 75 ár en nú séu breyttir tím-
ar. Hundruð manns séu á svæðinu á
degi hveijum auk þess sem hann og
átta aðrar fjölskyldur búi á staðnum.
Dýrt maibik
Kosmaðurinn við framkvæmd-
imar er um 60 milljónir. Sveinn segir
þann pening koma af sérstakri auka-
fjárveitingu frá ríkinu en sé ekki tekið
af framkvæmdafé stofriunarinnar.
„Þetta kemur því ekki niður á fjár-
veitingum fyrir uppgræðslu lands-
ins.“
Engu að síður gæm þessir pen-
ingar komið að góðum notum í því
stóra verkefni sem landgræðslan er.
,Ætli þessi upphæð myndi ekki duga
til að græða upp um 70-80 hektara af
ógrónu landi," játar Sveinn sem telur
„Ætli þessi upphæð
myndi ekki duga til að
græða upp um 70-80
hektara afógrónu
landi."
þó ekki hægt að h'ta á málið í þessu
samhengi.
Ríkið borgar
íbúar á Hellu eru margir hverjir
hissa á þeim framkvæmdum sem
standa yfir við Gunnarsholtið. Eins
og áður segir hefur mölin dugað í 75
ár og fannst mörgum óheflað um-
hverfið sóma sér vel fyrir stofnun
eins og Landgræðsluna. Viðar
Steinþórsson í hreppsnefhd Rangár-
sýslu segir þetta fykta af óráðsíu,
peningunum væri betur varið í að
græða upp landið en að malbika yffr
það.
simon@dv.is
| Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri við hlið eiginkonu sinnar og
embættismanna Segiraö fyrirsömu
upphæö og kosti að malbika sé hægt
aö græða upp 80 hektara aflandi.
Malbik fyrir utan
Gunnarsholt Sveinn
Runótfsson býrl vinnunni
ásamt fjölskyldu sinni.
Ólöf Jónsdóttir segir lífi sonar síns teflt í tvísýnu
Móðir óttast um líf sonar síns
„Hann á ekki aðra
von en þessa aðgerð,"
segir Olöf Jónsdóttir
móðir Einars Más
Kristjánssonar. í tvö
ár hefur Einar beðið
eftir því að komast í
offituaðgerð en hon-
um er enn sagt að
hann þurfi að bíða í
nokkra mánuði til
viðbótar. Móðir
hans, Ólöf Jónsdóttir,
er mjög reið seina-
gangi heilbrigðis-
kerfisins og segir að
það virðist sem fólk
átti sig ekki á því að
offita er lífshættu-
legur sjúk-
dómur. Hér
sé um dauð-
***««*
taíað
ans alvöru að ræða
og ekki megi bíða
lengur eftir aðgerð-
um. „Hann er fangi í
sínum eigin líkama,
fær ekki vinnu, kemst
ekki út á meðal fólks
og er búinn, bæði
andlega og líkam-
lega,“ segir Ólöf og er
mikið niðri fyrir. Hún
segir son sinn óttast
dauðann mjög enda
þekki hann fólk sem
látið hefur lífið af
völdum sama sjúk-
dóms og hrjáir hann.
Úrræðaleysi kerfisins
sé til skammar. Hér sé
um samfélagslegt
vandamál að ræða sem
verði að taka á af meiri
festu en gert hefur verið. Tómt mál
sé fyrir fólk að segja þessar aðgerð-
ir dýrar fyrir skattborgara, nær
væri að velta því fyrir sér hversu
mikið það kostar að hafa þetta fólk
óvinnufært svo ekki sé talað um
þann ótta og depurð sem það er
svo oft heltekið af vegna einang-
runarinnar og veikinda. „Hann er
svo einn og á enga aðra von en að
komast í þessa aðgerð sem hann
þráir svo mjög," segir Ólöf, klökk af
ótta vegna heilsu sonar síns og úr-
ræðaleysi kerfisins.
Ólöf Jónsdótt ir Segir Ein-
ar Má son sinn búinn and-
iega og likamlega, hann
eigi ekki aöra von en aö
komst I offítuaögerö.