Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Heilsan DV
Minnispilla talin geta
Vísindamenn á Englandi hafa
fundiö upp töflur sem þeir segja getað
aukið minni fólks.
Efnið CX717 í töflunni tilheyrir
ampekine-efnum og hefur þau áhrif á
heilann að auðveldara reynist að
muna og læra hlutí. Kom það fram í
rannsókn að þeir sem tóku lyfið stóðu
sig mim betur á prófum sem lögð voru
fyrir þá en þeir sem tóku inn lyfleysu.
Lyfjairamleiðandinn Cortex er
þessa dagana að rannsaka hvort nota
megi mögulega CX717 sem meðferð-
arúrræði við drómasýki og athyglis-
bresti.
Ýmsar hugmyndir hafa verið á lofti
Fæðupíramídi
Hvað
borða?
Nú er alltaf verið að koma
með ný ráð um það hvernig best
sé að hátta mataræði sínu og
fæðupframídarnir frægu, sem
segja fólki til um hvað skuli
borða á degi hverjum, hafa tekið
reglulegum breytingum í áranna
rás. Hér á eftir getur að líta
þann nýjasta:
Neðsti hlutinn
Borða skal mest afgrófkorna mat til
dæmis haframjöl.heilhveitibrauöog
brún hrisgrjón. Einnig skal nota
júrtaoliur ýmiskonar eins og ólivu-
oiiu, sojaolíu og sólkjarnafræjaoliu.
Grænmeti skal úða ísig Iheilum
haugum.
Næst neðsti hlutlnn
2-3 skammtar afávöxtum
2-3 skammtar afbaunum eða belg-
jurtum.
Ofarmiðju
1-2 skammtar afmjólkurvörum eða
annarri kalkríkri fæðu
0-2 skammtar af fuglakjöti, fiski eða
eggjum.
Toppurinn
Efst á toppi píramidans tróna svo
hvít hrísgrjón, franskbrauö, kartöfl-
ur, pasta, rautt kjöt, smjör og sæl-
gæti.
Munum svo eftir hreyfingunni!
\
jL
Sítrusávextir
Neyslaþeirra
munkomaiveg
fyrir nýrnasteina.
SællLýður
Nú eru alls
konar lýtaað-
gerðir að ryðja sér tii rúms
og fólk virðist mjög mót-
tækilegt fyrir að breyta
útliti sínu. Er þetta
málið eða ætti.fólk
að hugsa sig
tvisvar um áður en
svona ákvörðun er
tekin?
Sæll! Mikil útlits-
bylgja tröllríður nú flestum vest-
rænum þjóðfélögum. Æska, feg-
urð, hreysti og kynlíf eru keppikefli
nútímamannsins. í sjálfu sér skilj-
anlegt að vilja allt þetta en gallinn
er sá að ekkert af þessu er viðvar-
andi. Æskan rennur sitt blóma-
skeið, fegurðin er afstæð, hreystin
huglæg og kynlíf eins og góður
konfektmoli.
Lýtaaðgerð ekki það sama
og fegrunaraðgerð
Lýtaaðgerðir ganga út á að laga
augljósa útlitsgalla, meðfædda eða
áunna. Dæmi um það eru klofinn
gómur eða ör eftir bruna. Svona
aðgerðir hafa augljóslega mikinn
ávinning í för með sér og geta skipt
sköpum fyrir velferð viðkomandi.
Markmið fegrunaraðgerða er hins
vegar nálgun á einhverjum útlits-
staðli sem birtist okkur t.d. í tísku-
blöðum og auglýsingum. Sá stað-
all er í mörgu mjög villandi og
nefni ég bara göngulag sýningar-
stúlkna og sífelldur munnstútur
fyrirsæta. Þetta er eins og fötin
sem sýnd eru, öfgar sem sjaldan
sjást í okkar daglega lífi. Aimennt
tel ég fólki hollara að hyggja að
innliti en útliti og gildir það jafnt
um eigin ásýnd sem og annarra.
Sífelldar útlitspælingar hindra
eðlilega útgeislun og fæstum eigin-
legar nema kannski á gelgjuskeiði.
Konum til sérstakrar uppörvunar
bendi ég sérstaklega á skallagenið,
hvernig væri nú ástandið ef við
myndum snúa því við?
Ölium aðgerðum fylgir
áhætta
Framboð fegrunaraðgerða
skapar eftirspurn. Og kjósi fólk að
verja fjármunum sínum í strekk
eða silíkon kemur það í sjálfu sér
engum við. Grundvallaratriðið er
þetta: öllum aðgerðum fylgir
áhætta, ÖLLUM. Sé útiit á hinn
bóginn einhverjum svo hugleikið
að sálarfriður náist ekki nema með
róttækum aðgerðum verður svo að
vera. Ég vara þó við að eftirláta
ófullburða unglingum svona
ákvarðanir og leyfa náttúrunni að
klára sitt áður. Gleymum heldur
ekki nefinu á Michael Jackson sem
nú er nánast horfið vegna oftálg-
unar.
Endingin betri með breytt-
um Iífsstíl
Breytt lífsviðhorf og lífsstíll getur
oftar en ekki leyst fegrunaraðgerð af
hólmi og endingin betri. Vísa í
holdafar og húðumhirðu máli mínu
til stuðnings. En hvort sem við not-
um fegrunaraðgerð eða hollustu-
átak sem leið að hamingjunni er
annað afl öllu æðra og það er gang-
verk tímans. Tíminn þyrmir engu,
hvorki dauðum hlutum né lifandi
og sú glíma óvinnandi. Þess vegna
mætti hugsa sér aðra forgangsröð
t.d. þá að drepa tímann áður en
hann drepur okkur. Með því léttum
við lífsróðurinn og náum jafnvel
betra haldi á aðalatriðunum.
Kveöja, LýðurÁmason
Sítróna á dag
kemur nýrna-
steinunum í lag!
Sítrussýru er að finna í sítrusaldin-
um líkt og sítrónum, appelsínum,
lime og fleirum. Neysla sítrussýra
mun vera mjög góð leið til að
sporna við myndun nýrnasteina.
Hafa ber í huga að mun árangurs-
ríkara er að drekka límonaði á
degi hverjum heldur en appel-
sínusafa til að vinna gegn
nýrnasteinum.
Chili-át eins og rússíbanaferð
Chili-pipar er ávöxtur af Capsic-
um-plöntunni og kom upprunalega
frá Suður-Amerfku.
Hann var uppgötvaður af
Kólumbusi á 15. öld og Diego A.
Chanca læknir, sem var með í
annarri för Kólumbusar, tók fyrsta
chiliinn með til Spánar og skrifaði
fyrstur manna tun lækningarmátt
hans árið 1494.
í dag er hann ræktaður um allan
heim vegna þess hve vinsæll hann
er sem krydd, grænmeti í elda-
mennsku og jafnvel í lækningar-
skyni þrátt fyrir að geta valdið verkj-
um og óþægindum. í chili-pipam-
um er sótthreinsandi efiii þannig að
matur eldaður með chili endist
lengur án þess að skemmast.
Chili-piparinn er uppfullur af C-
vítamíni og er talinn hafa margvís-
leg góð áhrif á heilsu manna.
Eins og þeir vita sem bragðað
hafa á þessum vinsæla pipar þá get-
ur hann verið afskaplega sterkur og
fátt er verra en að nudda á sér aug-
un eftir að hafa handfjatlað hann.
Reyndin er víst svo að sársauk-
inn sem piparinn getur valdið
örvar heilann til að framleiða end-
orfín sem veldur vellíöunartilfmn-
ingu og minnir át hans að srnnu
leyti á aö fara í rússfbana þar sem
fólk nýtur hræðslunnar þvf það
veit að engin hætta er á ferðum.