Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2005, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ2005
Lífið TtV
* Það eru allir að „hlaða niður“ tónlist. Tónlistaráhugamenn hafa aldrei haft það eins gott en stórfyrir-
tækin riða til falls. Dr. Gunni kannaði málið og komst að ýmsu áhugaverðu.
Hvaö gerist þegar allir eru ólöglegir?
HQME TftPWG ISKIIUWG MUSIC
Coldplay Selja grimmt
af nýju plötunni þrátt
fyrir niðurhalið.
Ef þig langar í nýja plötu - jafnvel
löngu áður en hún kemur út - get-
urðu auðveldlega sótt hana á netinu í
gegnum forrit eins og DC++, Soul-
seek, Kazaa, Limewire eða Edonkey.
Fólk skiptist á hverju sem er, eins
lengi og það er í stafrænu formi; for-
ritum, bíómyndum, sjónvarps-
þáttum en tónlistin er þó vinsælust
til skiptanna eins og er. Allt rúllar
þetta í gegn án þess að rétthafar fái
krónu fyrir. Símafyrirtækin ein hafa
eitthvað upp úr þessu.
Úlfur! Úlfur!
Barátta stéttasambanda rétthafa
og útgefenda virðist vonh'til. Um leið
og þeim tekst að loka einni leiðinni
opnast margar í viðbót. Það er ekkert
nýtt að reynt sé að hindra tækniþró-
unina. „Úlfur! Úlfur!" hefur verið æpt
áratugum saman. Þegar píanólan
(sjálfsspilandi píanóið) kom fram
héldu menn að sala á nómablöðum
myndi hrynja. Tilkoma útvarpsins
átti að drepa sölu á plötum. Ljósrit-
unarvélin átti að drepa niður bók-
sölu. Myndbandstækin átm að ganga
frá bíóhúsunum. Snemma á 9. ára-
tugnum þegar fólk var sem mest að
taka upp á kassettur (líka kallaðar
spólur eða snældur) reyndu breskir
plötuútgefendur að klóra i bakkann
með herferðinni „Home taping is
killing music". Reynt var að höfða til
samvisku fólks og það að aumingja
popparamir þyrftu á peningunum að
halda. Fólk sem hafði lið eins og
Elton John fyrir augunum, lið sem
velti sér óspart upp úr auðæfum sín-
um, gat ekki annað en hlegið að þess-
ari herferð og enn í dag þykir hún
frekar skondin.
Egill Harðarson
Sér fram á fjöl-
breyttari framtið.
„Af því að ég er öflug kona,“ segir Leoncie
aðspurð um ástæður þess að væntanlega
plata hennar heitir ekki lengur
Satan City heldur Invisible Wom-
an, eða Ósýnilega konan. „Ósýni-
legar konur eru öflugar, ég er öflug
kona og þetta er því alveg sjálf-
sagður titill," segir indverska
Stendur I stórræðum
Nýbúin að senda Invisi-
ble Woman útlfram-
leiðslu.
prinsessan.
Miklar og heitar umræður voru uppi
meðal fólks varðandi gamla nafnið Satan
City. Sumir vildu halda því fram að nafnið
væri tilvísun í Sandgerði sem söngkonan hef-
ur ekki borið fagra söguna. Hún neitaði því
þó alla tíð og sagði þetta vera um geðveiki,
dópista og satanisma í sinni verstu mynd.
Platan er væntanleg til landsins um miðj-
an júli og verður þá fáanleg í vel flestum
plötubúðum.
Leoncie og maður hennar, Viktor, hafa
mikla trú á plötunni en Viktor sagði í samtali
við blaðamann að plata eiginkonu sinnar
ætti eftir að slá í gegn ef hún kæmist í réttar
hendur.
Of mikil nálægð
Eiður Amarson útgáfustjóri Senu
segir greinilegt að sala á erlendum
plötum hefur dregist mikið saman
síðustu fimm árin eða svo. „Það eru
bara nokkur ár síðan að vinsælustu
erlendu plötumar vom að seljast í 4-
8000 eintökum, en nú telst það til tíð-
inda ef plata fer yfir 4000 eintaka
markið," segir hann.
„Þetta sést best í rokkinu, vinsælar
plötur með
Rammstein,
System of a
Down,
Korn og
álíka
sveitum
em
kannski
að
seljast í kringum 3000 eintökum en
vom að fara í helmingi stærra upp-
lagi áður en niðurhalið varð þetta
algengt. Það em helst plötur sem
höfða til eldri hóps sem enn ná góðri
sölu, Norah Jones og svoleiðis."
Eiður segir þó að sala á íslenskum
plötum hafi ekkert minnkað. „Við
emm meira að segja hættir að læsa
plötunum eins og við gerðum og
mörg stóm fyrirtækin em hætt því
líka. Skilaboðin em klárlega komin á
hreint, að þetta sé ólöglegt. Svo geng-
ur það bara ekki að það sé ekki hægt
að setja tónlistina auðveldlega yfir á
iPod og aðra mp3-spilara. En ég held
bara að þetta sé móralskt, flestir fs-
lendingar hafa það ekki í sér að stela
frá popparanum í næsta húsi, ná-
lægðin hér er of mikil."
Elton John Það höfðu fáir
samúð með honum þegar
hann mótmælti kassettunni
Ekki nema 20 lögleg lög á
hverjum iPod
Nýja platan með Coldplay -
vinsælasta plata landsins í dag sé not-
uðtilviðmiðunar - kostar nú 1.999 kr.
í Skffúnni. Hægt er að hala henni nið-
ur í gegnum iTunes á 11.99$ - 800
kall. Platan er í kringum 100 MB að
stærð í ágætis gæðum og miðað við
algeng tilboð í netbransanum á ís-
landi kostar um 300 kall að hala henni
niður ólöglega. Sirka fimmtíukall
bætist við vilji maður brenna hana á
disk. Spamaðurinn er augljós. Eiður
segir þó að það sé það góð sigling á
plötunni að hún muni pottþétt fara
yfir 4000 eintaka múrinn.
Á vefsíðunni iTunes per iPod
kemur fram að í kringum 3 milljón
iPod-tæki hafa selst og um 60 milljón
lög á iTunes. Miðað við þetta er ekki
nema 20 lögleg lög á hverjum iPod,
en spilaramir geta geymt á bilinu
1.000 til 10.000 lög hver. Það er því
augljóst að mikill meirihluti iPod-eig-
enda er með óhreint mjöl í poka-
horninu því varla em allir að „rippa"
diskana sína inn á iPodinn sinn.
Samkvæmt sölutölum hefur sala á
geisladiskum verið á niðurleið um
allan heim síðustu fjögur árin.
Fjölbreyttari framtíð?
Stórfýrirtækin riða til falls en tón-
listaráhugamenn em í skýjunum. Þeir
sjá fram á bjartari framtíð. Fjölbreytt-
ari framtíð. „Stóm plötufyrirtækin
em rekin eins og hver önnur stórfyrir-
tæki og hafa það eitt að takmarki að
skila hagnaði," skrifar tónlistaráhuga-
maðurinn Egill Harðarson á heima-
síðu sinni. „Markaðsöflin innan þess-
ara fyrirtækja sjá til þess hverjir fá
plötusamning, hvemig tónlist þeir
spila og hvaða lög em spiluð í útvarpi.
Eiður Arnarson
Hættur að læsa ís
lenskum plötum.
■ -
l* *
*■ -1
svo
Gert grín að I
gamla slag- ■
orðinu. ■
P2PISICIUJNG
W* TVM
Utqáfurisar í
Þetta kemur auðvitað í veg fýrir aukna
fjölbreytni og gerir minni plötufyrir-
tækjum erfitt fyrir auk þess að gera
mikinn meirihluta allrar tónlistar í
heiminum að einhverskonar jaðarfýr-
irbæri sem aðeins einstaka furðufugl-
ar hlusta á. Þegar stóm plötufyrirtæk-
in hrynja, sem þau munu gera með
þessu áframhaldi, mun framboð á
tónlist aukast til muna, „pay-for-
play" útvarp mun heyra sögunni til
(það er alkunna að plötufyrirtækin
borga útvarpsstöðvum fyrir að spila
ákveðin lög), öll músík mun verða
„mainstream", lögsóknmn á hendur
þeim sem dreifa tónlist verður hætt
(þegar þú kaupir geisladisk ertu að
leggja til pening í næstu lögsókn),
sköpunarfrelsi flytjenda mun aukast
og þeir munu fá miklu meira borgað
fyrir tónlist sína en áður."
tga
kuldanum
Egill sér fram á tíma þar
sem stóm útgáfufýrirtækjunum hef-
ur einfaldlega verið kippt út úr jöfii-
unni: „Þar sem dreifing tónlistar á
netinu er komin til að vera, því ekki
að gera hana löglega OG sjá til þess
að flytjendur og eigendur höfundar-
réttar fái borgað um leið?,“ skrifar
hann. „Tónlistariðnaðurinn gæti
komið sér saman um að búa til
gagnasamfélag á netinu þar sem net-
notendur hala niður eins mikið af
tónlist og þeim sýnist fyrir afar sann-
gjart verð (5-10$ á mán.). Peningarn-
ir sem safnast saman renna svo
óskiptir til flytjanda og höfundarrétt-
arhafa miðað við vinsældir. Þeir sem
skiptast á tónlist geta því haldið iðju
sinni áfram áhyggjulaust, framboð á
tónlist eykst og flytjend-
ur og höfundarréttarhafar
græða meira. Auðvitað er þetta
aðeins flóknara en hvernig ég set
þetta fram. Geisladiska- og DVD sala
myndi að sjálfsögðu halda áfram því
enn er stór hópur notenda sem vill
eiga sína tónlist þannig. Stóri munur-
inn er að neytendur væm ekki lengur
þvingaðir til að kaupa tónlist á ákveð-
inn hátt heldur myndi tónlistariðn-
aðurinn aðlaga sig að þörfum mark-
aðarins. En allt er þetta á byrjunar-
stigi og enn sýna útgáfurisamir engin
merki þess að gefast upp. Hvað svo
sem verður er eitt víst að breytinga er
þörf."
Em þetta draumórar í Agli eða
það sem koma skal? Framtíðin ein
sker úr um það.
gih@>dv.is
<