Freyr - 15.05.1951, Side 8
164
FRE YR
fyrir þá bændur, er gera þær, og nokkurs fróðleiks
fyrir þá, er eiga að leiðbeina um þessi efni.
í þessu sambandi telur Búnaðarþing að stefnt hafi
verið í rétta átt með þeirri útsendingu afveginna
áburðarskammta til bænda, sem framkvæmd var síð-
astliðið vor, og þessu beri að halda áfram og koma
sem beztri skipan á dreifingu áburðarskammtanna og
söfnun árangursins."
Erindi stjórnar Búnaðarsambands
S.-Þingeyinga viðvíkjandi rafveitum
í sveitum.
Mál þetta var til meSferðar í allsherjar-
nefnd og var eftirfarandi ályktun hennar,
í 4 liðum, samþykkt:
Búnaðarþing ályktar:
1. Þar sem með rafveitulögunum nr. 12, frá 2. apríl
1946 er lagður grundvöllur að því, að öll býli á
landinu geti notið rafmagns og þessi lög eru í
fullu samræmi við vilja og þörf þjóðarinnar, legg-
ur búnaðarþing áherzlu á, að framlög rikisins til
þeirra séu stórum aukin og að sem allra fyrst
verði gerður fullur jöfnuður á verði rafmagnsins
milli sveita og kaupstaða.
2. Að tekið verði til gagngerðrar athugunar, hvort
ekki sé gerlegt að leggja þrífasa rafmagnsleiðslur
um byggðir landsins, þrátt fyrir aukinn stofn-
kostnað, þar sem slíkt kerfi er miklum mun ör-
uggara og ódýrara fyrir bændur í innkaupi og
rekstri hinna stærri rafmagnshreyfla.
3. Að þær strjálbýlu sveitir, sem koma vilja á hjá
sér rafmagni á skipulagsbundinn hátt, með smá
orkustöðvum, njóti allra sömu hlunninda og raf-
veitur frá stórri orkustöð. Telur Búnaðarþing þýð-
ingarmikið, að hinar strjálbýlli sveitir verði ekki
afskiptar í þessu efni með tilliti til framtíðarör-
yggis byggðaririnar.
4. Að raforkumálasjóði sé gert fært að fullnægja
gildandi lögum um hámark lánveitinga til bænda,
sem ekki geta í náinni framtíð fengið rafmagn frá
stærri eða minna samveitum, en vilja koma upp
einkarafstöðvum með vatnsafli eða olíuhreyflum."
Guöjón Jónsson og Jón Hannesson
fluttu þingsályktunartillögu viðvíkj-
andi sögulegum minjum gömlu rjóma.
búanna.
Ályktun allsherjarnefndar í þessu máli
var samþykkt þannig:
„Búnaðarþing ályktar að fela stjórn Búnaðarfélags
Islands að gera sem fyrst ráðstafanir til að safnað sé
saman ýmsum gögnum og skilríkjum, er snerta starf-
semi rjómabúanna gömlu, svo scm fundarbókun,
reikningum o. fl.
Síðan verði gerðar ráðstafanir til að tryggja sem ör-
uggasta varðveizlu þessara gagna.“
Ásgeir Bjarnason.
Gunnar Guðbjartsson.
Nýliðar á Búnaðarþingi.
Benedikt H. Lindal.