Freyr - 15.05.1951, Blaðsíða 9
FREYR
165
Tillaga um dýralœkningar.
Vegna tilmæla, sem Búnaðarþingi höfðu
borizt, úr Barðastrandarsýslu, um aðstoð
og leiðbeiningar dýralækna, var samþykkt
eftirfarandi:
„Búnaðarþing ályktar að bcina því til stjörnar Bún-
aðarfélags íslands, að hún beiti sér fyrir því við land-
búnaðarráðuneytið:
1. Að það hlutist til um, að lyfjabúðir og héraðs-
læknar hafi til sölu öll nauðsynleg erlend lyf til
dýralækninga.
2. Ennfremur að ráðuneytið reyni eftir fremsta
megni að útvega lærða dýralækna til að gegna
þeim dýralæknisumdæmum, sem enga dýralækna
hafa. Fáist ekki innlendir dýralæknar, verði reynt
að fá erlenda.
Meðan svo er ástatt, að ekki fáist dýralæknar,
verði reynt að bæta úr brýnustu þörf á þessu
sviði með því að fá dýralækni til þess að halda
námskeið í dýralækningum, komi óskir um það.
Greinargerð:
Málið er flutt á Búnaðarþingi vegna erindis sýslu-
nefndar V.-Barðastrandarsýslu um, að B. í. hlutist til
unr að dýralæknir ferðist um sýsluna árlega til eftir-
lits með búpeningi, leiðbeininga o. fl.
Mjög mikil þörf er á fleiri starfandi dýralæknum.
Nokkur reynsla er þegar fengin hér á landi af þýzk-
um dýralækni, og er sú reynsla góð.
Nefndin leggur því til, að athugaðir verði mögu-
leikar á innflutningi erlendra dýralækna, ef svo reyn-
ist að innlendir læknar fáist ekki og að haldin verði
námskeið í dýralækningum sé þess óskað, enda mælir
yfirdýralæknir með slíkum námskeiðum.
Erindi landðúnaðarráðuneytisins,
Nautgriparœktarsambands Árnessýslu
og Nautgriparœktarsambands Borgar-
fjarðar, um tilraunabú í nautgriparœkt.
Ályktun búfjárræktarnefndar, samþykkt
þannig:
„Búnaðarþing mælir eindregið með því, að stofn-
sett verði hið allra fyrsta tilraunabú í nautgriparækt
á Suðurlandsundirlendinu, í Borgarfirði og á Norð-
urlandi.
Jafnframt beinir Búnaðarþing því til stjórnar B. í.
að hún vinni að því við landbúnaðarráðherra og Al-
þingi að hafist verði handa í þessu efni og fé veitt á
fjárlögunr árið 1952 til þessarar starfsemi, enda liggi
þá fyrir Alþingi greinargerð um það, á hvaða grund-
velli tilraunirnar skuli framkvæmdar ásamt sundur-
liðaðri áætlun um stofnkostnað og rekstur og upp-
lýsingar um staðarval og aðstæður.
Greinargerð:
Búnaðarþingi hafa borizt tvö erindi um stofnun til-
raunabúa í nautgriparækt. Annað er frá landbúnaðar-
ráðuneytinu vegna erindis til ráðun. frá Nautgripa-
ræktarsamband Arnessýslu og Skálholtsnefnd um til-
raunabú á Suðurlandsundirlendinu og hitt frá Naut-
griparæktarsambandi Borgarfjarðar um tilraunabú í
nautgriparækt á Hvanneyri.
Nefndin lítur svo á, að afkvæmaprófun nauta sé
mest aðkallandi á sviði nautgriparæktarinnar, til þess
að fá úr þvi skorið, hvaða kynbóta- og erfðagildi naut-
in hafi.
Ennfremur lítur nefndin svo á, að nauðsynlegt sé að
rækta úrvals nautgripastofna á tilraunabúunum, svo
að bændur geti í framtíðinni fengið þaðan úrvals kyn-
bótagripi."
Erindi Framleiðsluráðs landbúnaðarins
viðvíkjandi alifuglarœkt og eggja-
framleiðslu.
Ályktun búfjárræktarnefndar var sam-
þykkt svohljóðandi:
1. Búnaðarþing ályktar að beina því til Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, að það semji frumvarp að
lögum um framleiðslu og sölu á eggjum og komi
því á framfæri við Alþingi. Frumvarp þetta verði
í höfuðatriðum sniðið eftir þeim tillögum, sem
eru í erindi Framleiðsluráðs landbúnaðarins til
Búnaðarþings.
2. Búnaðarþing beinir því til Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, að það láti rannsaka á hvern hátt bezt
verði aflað fóðurs handa alifuglum og geri síðan
raunhæfar tillögur til úrbóta á því sviði.
3. Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að
vinna að því, að ráðinn verði hæfur maður til að
gegna ráðunautsstarfi í alifuglarækt, nú þegar.