Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1951, Page 19

Freyr - 15.05.1951, Page 19
B’REYR 175 fyrir burð, og ekki einungis það, heldur skyldu kýr ekki mjólkaðar fyrr en 4—6 klst. væru liðnar frá burði. Þannig yrðu kýrnar miklu hraustari eftir burðinn og jafnframt kæmust í hærri nyt. Frá því að ég heyrði þetta hefi ég alltaf fylgt þessari reglu og alveg jafnt, þótt kýrin ætti erfitt með að leggjast vegna júgursins. Og ég vil taka þetta fram um mína reynslu: Hver einasta þessara kúa hefir reynzt hraust eftir burð og engin fengið doða, hvorki bráðan, né heldur né heldur „kroniskan." Þær hafa mjólkað, að mér virðist, eðlilega, og marg- ar ágætlega, og júgurbólga aldrei komið fyrir. Skýringin, sem í upphafi fylgdi þess- ari rannsóknarniðurstöðu var sú, að kýrn- ar væru sjúkar um burðinn, og mjólkur- myndunina mætti ekki örva fyrr en kýrin væri kominn í eðlilegt ástand. Ég get að vísu enga ábyrgð tekið á heim- ildum þeim, sem ég hefi um þessar þýzku tilraunaniðurstöður. Hitt hefir reynslan sannað mér í svo mörgum tilfellum, að til- viljun getur eklci valdið, að það er a. m. k. hættulaust að draga að mjólka kýrnar, þótt júgrin séu firnastór og úttroðin af mjólk, — þar til 4—6 tímar eru liðnir frá burði, þ. e. helzt þar til kýrin er orðin heil. Og út frá reynslu minni er það ályktun mín, að það sé eitt öruggasta ráðið til að tryggja heilsu kýrinnar eftir buröinn. Þannig sé bráða- doðahættan að miklu leyti fyrirbyggð, stálmabólga úr júgri hverfi miklu fyrr, broddmjólkureiginleikarnir hverfi fyrr, venjulega eftir 3—4 mál, óát sé að mestu fyrirbyggt, a. m. k. fyrstu dagana eftir burð- inn, — í stuttu máli: kýrnar verða hraust- ar. Það er að minni reynslu ekki mannúðar- verk að mjólka kýr fyrir burðinn og ekki heldur rétt á eftir, og það er hagfræðileg villa. Kálfinum gef ég ekki fyrri en brodd- mjólk móðurinnar er fyrir hendi handa honum, og 4—7 stunda svelta í byrjun er honum skaðlaus. Að lokum vil ég svo segja eitt dæmi um á- gæti broddmjólkur. Búkolla bar s. 1. vor í byrjun maí. Hún bar á 12. tímanum að kvöldi. Er hún hafði karað kálfinn — það læt ég kýrnar gera — tók ég hann frá henni, gaf henni heytuggu og ákvað að láta bíða morguns að mjólka, eða fulla 7 klukkutíma. En um morguninn, er ég kom í fjósið, var Búkolla ekki orðin heil. Ég mjóikaði hana þá strax og gaf henni broddinn, sem ég ekki þurfti til dagsins handa kálfinum, og það voru að mig minnir aðeins ca. 3 lítrar. Rétt á eftir lagðist kýrin, og að stuttum tíma liðnum lágu hildirnar í flórnum. Ég full- yrði, að það var eingöngu broddmjólkinni að þakka. Ég gef kúm ætíð mjólk um burð, og oftast af þeirra eigin broddmjólk. Það er mikil heilsutrygging. Þetta vil ég segja sveitakonu og öðrum þeim sem annast kýr um burð. H úsmæðraþáltur I SKR ÚÐ GA RÐIISl JJM. Það þykir máske einkennilegt að segja, að götur í blóma- og skrúðgörðum setji einna mestan svip á, en þó má það til sanns vegar færa. Götur, eða gangstíga, á alltaf að hafa þar sem um- ferðaþörfin er mest, krókalausar, beint að réttu marki. Sé vandað vel til gatnagerðarinnar, þá endast þær vel og setja fallegan svip á allt umhverfi hússins. Helzt skal alltaf hafa breiða, fallega götu í kringum húsið, en þó hæfilega langt frá því. Þá er hægt að mynda falleg blómabeð og pláss fyrir runna og jafnvel einstök tré milli götunnar og hússins, og Iáta falleg viðkvæm blóm vaxa þar og ná betri þroska en annarsstaðar. Og til eru vafningsjurtir, sem geta vaxið upp eftir húsveggjum í 3—5 metra hæð á hverju sumri. Má þar nefna bæði merlu og humal, þær eru allt of óvíða til hér af því að fólk þekkir þær ekki. Göturnar eiga aldrei að vera djúpar, sé t. d. gras beggja megin við gangstíginn eiga kantar grasblettsins ekki að vera nema 3—S cm hærri en stígurinn, en miðja hans nær því jafnhá blettinum. I námunda við bygg- ingar fer bezt á að götur séu þráðbeinar, en lengra frá húsinu mega þær vera óreglulegar, ef þörf krefur, en vel skal gá — að hafa bugður á vegi fallegar og vel lagaðar. Með runnum og trjágróðri má mynda skjólbelti kring-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.