Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1951, Qupperneq 12

Freyr - 01.09.1951, Qupperneq 12
FRE YR 280 hún verður það er ekki fullséð, né hvenær það kann að verða. Þetta er engan veginn í fyrsta sinn, sem tilraun er gerð með þessa dreifingaraðferð. Vestan hafs hefir oft ver- ið farið inn á þessa braut, og við og við og hér 'og þar, notaður pappír og pappi sem umbúðir um mjólk og mjólkurafurðir. Árið 1937, er undirritaður dvaldi erlendis, gafst eitt sinn tækifæri til þess að koma á mjólk- urbú þar sem barnamjólk var framleidd og henni tappað í umbúðir úr þykkum paraf- fínsmurðum pappír. Var þetta á Sofienborg við Hilleröd í Danmörku, hjá Jarli stór- bónda þar, en frásögn um heimsókn þessa, og það sem þetta varðaði, birti Freyr á bls. 175—178, 1937. Nú er hugmynd um veruleika þessarar að- ferðar færð á vettvang í Svíþjóð. Það var laust eftir 1930 að hlutafélagið Ákerlund & Rausing í Lundi byrjaði að at- huga leiðir til þess að framleiða pappirs- umbúðir utan um mjólk, svo hægt væri að losna við flöskur. Þeim var kunnugt um, að í Ameríku og Englandi hafði þessi aðferð verið notuð, en reynzt of dýr. Markmiðið var nú að gera aðferöina ódýrari en öorum hafði tekizt, svo að hagnýt yrði í daglegri mjólkurdreif- ingu. Þó var það ekki fyrr en 1944 að verulegt skrið komst á þetta mál. Það var alls ekki auð- velt að gera umbúðir, sem féllu vel saman í flutningum, án þess að pressa á hjáliggjandi umbúðir og innihald, svo vel gengi, en styrk- leikinn hlaut auðvitað að vera háður því, hve miklum þrýstingi um- búðirnar mættu. Eftir endurteknar tilraunir tókst loks að finna að- ferð, sem viðunandi þótti og vélar voru bún- ar til, sem klippa skyldu, líma og pressa umbúð- irnar. í þessum tilgangi Sjdlfvirk pökkun, en pessir biklefamynduðu pakkar rúm- ast vel og falla þétt saman.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.