Freyr - 01.09.1951, Blaðsíða 13
Honiið klippt af og þannii
hellt úr pappírsflöskunni.
PREYR
28Í
voru gerðar 4 vélar
1945---50 og margir
agnúar mættu, sem
yfirstíga varð. Eftir 7
ára samfellt starf
náðist loks það mark,
sem viðunandi þótti,
svo að sýna mætti
almenningi árangur-
inn og þá var fram-
leiðsla hafin, í tak-
mörkuðum mæli þó.
★
Það væri of flókið
mál að gera grein
fyrir hvernig paraf-
fínsmurður kraft-
pappír kemur inn í
vélarnar, pressast og
límist þar saman,
tekur í sig afmældan
skammt af mjólk og
kemur aftur út sem
lokað hylki með af-
bragðs nýmjólk, til-
búið að fara til neyt-
andans. Óþarft er að
geta þess, að auð-
vitað er pappírinn gerilsneyddur, svo að
ekki þarf að óttast mjólkurgalla vegna
baktería, sem umbúðunum fylgja. Hinsveg-
ar er það augljóst mál, að vinningurinn við
að nota svona umbúðir er sá, að ekki þarf
að flytja mjólkurflöskur til baka til mjólk-
urbúsins og ekki þarf að hafa vélar í gangi
og hóp manna til þess að þvo flöskur. Svo
er það talinn kostur, að nú losnar maður
við óbragð það af mjólk, sem hún fær ein-
att á útmánuðum, en það líkist blikkbragði
og er talið stafa af áhrifum ljóssins þegar
mjólkin hefir vissa efnasamsetningu — þá,
sem einatt er um að ræða um það leyti árs.
★
Þegar umræddar pappírsumbúðir eru
notaðar, sem framleiðendurnir nefna
„TETRA PAK“, er þeim bara fleygt þegar
búið er að tæma þær.
Upplýsingar um verð á umbúðunum hafa
L