Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1951, Page 15

Freyr - 01.09.1951, Page 15
Í’REÝR 283 Á Njálsstöðum í Norðurárdal Ljósm.: G. K. Um það hefir oft verið rætt og ritað, á undanförnum árum, að jarðirnar fari í eyði og það svo, að til auðnar horfi í ýmsum sveitum. Þetta eru allt of mikil sannindi, því er verr. Hins er þó einnig að minnazt, að samtím- is og þetta skeður er verið að nema land og það í miklum mæli, og áður ræktað land er eflt svo að eftirtekja þess vex. Stundum gerast þessir ólíku atburðir — landauðn og landnám — í sömu sveit. Það dæmið, sem fundið verður bezt, og glöggast sannar fráhvarf fólks úr sveit eða dreifbýli, er Sléttuhreppurinn í Norður-ísa- fjarðarsýslu. En skyld dæmi eru til á slóð- um, er liggja miklu nær alfaraleið. Dæmi um „fólksþurrkun" úr frjósamri sveit á fá- um árum, er stundum valið þegar bent er á Laxárdal í Húnavatnssýslu. En sé það glöggt dæmi og gott, þá má um leið benda á, að á bökkum Laxár horfir ekki til auðn- ar, því að þar er einnig verið að nema land- ið, og er það í frásögu færandi. ★ Hann var sólbjartur sumardagurinn þeg- ar sólin hóf göngu sína frá hvarfbaug hin- um nyrðri, suður á bóginn, á síðasta sumri. Þennan dag lagði ég leið mína frá Blöndu- ósi, norður Refasveitina, áleiðis út í mynni Norðurárdals, en það er dalur sá, er ligg-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.