Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.1951, Qupperneq 20

Freyr - 01.09.1951, Qupperneq 20
288 FREYR JÓNÍNA S. LÍNDAL: H úsmæðraþáttur Nútíma húsfreyja (Útvarpserindi, flult d bœndavikunni 194S. — Hér nokkuð stytt). Þær cru svo margar, ungu stúlkurnar, sem yfirgefa sveitina, að til vandræða horfir, og einmitt þess vegna liggur við auðn íslenzkra sveita. Öllum, sem hlotnast hefir það að alazt upp á góðu heimili, hjá góðum foreldrum, þykir vænt um heimil- ið sitt. Þó að unglingarnir yfirgefi heimilin, til þess að reyna krafta sína og afla sér lærdóms og þroska, lifir þó í huga þeirra ósk um það að stofna sjálfstætt heimili og gera það að yndælum samastað fyrir sig og sína. Það eru þessi heimili, sem lifa í hugum unga fólksins, sem við væntum mikils af í framtíðinni. Sveitaheimilin höfðu, og hafa ennþá, sérstakar að- stæður til að binda unglingana traustum böndum. Fyrst og fremst mega þau lrafa börnin óskipt til 10 ára aldurs, þegar þau eru skólaskyld. Það þarf ekki að senda þau í sveit eða á barnaheimili á sumrin eins og í borginni, til að forða þeim frá götunni og gefa þeim tækifæri til að hreyfa sig óáreitt í hreinu lofti. Sveitabörnin læra svo undra -fljót að hjálpa til við alls- konar störf, sem eru svo fjölþætt í sveitinni. Einkum hafa þau flest yndi af að vera með skepnum og um- gangast þær og koma þar fljótt til hjálpar. Þetta er börnunum fyrst leikur, en verður síðar að vinnu og starfi, sem kemur fljótt að gagni á heimilunum. Skemmtilegast er að geta kennt eða látið kenna börn- um stnum heima til 14 ára aldurs, en það er nú eitt af því, sem verður ómögulegt í fólksfæðinni. Ég minnist með gleði þeirra dýrðlegu stunda þegar ég var að kenna börnum mínum og finnst alltaf mikið til þeirra mæðra koma, sem geta kennt þeim og leiðbeint sem lengst. Það er skemmtilegt í sveitinni og lífið fjölbreytt, alltaf skipt um störf eftir árstíðum. Það eru sérstök störf á vorin, önnur á sumrin, þriðju á haustin og síðan koma vetrarstörfin. Það eru skemmtanir sem náttúran sjálf skapar. Er ekki indælt að líta út, eftir snjóa og kuldatíð, þegar vorið kemur og hlýnar í lofti, þegar lækirnir þeysa áfram og brjóta hverja snjóbrúna á fæt- ur annarri? Kolmórauðir þjóta þeir áfram, fullir af gróðurmold, sem þeir færa út um bakka sína og þá dettur mér í hug vísan: Vorvindar glaðir, glettnir og liraðir geysast um lundinn, rétt eins og börn. Lækirnir skoppa, hjala og hoppa, hvíld er þeim nóg við sæ eða tjöm. Eða vormorgnarnir fögru, þegar sólin gægist inn um gluggann og margraddaður fuglasöngur hljómar. Það kom kona til mín úr Reykjavík; hún var þar upp alin. Hún sagði við mig einn morgun: Nú heyrði ég það, sem ég hefi aldrei heyrt; það voru svanir að syngja. Þeir sungu svo mikið á tjörninni í morgun. Það var indælt að vakna við þann söng; ég heyrði hann inn um gluggann minn. Eða að fara snemma á fætur á fögrum vormorgni, líta yfir gróið tún, engi og garða, allt í blóma og allt í eig- in eign, sjá ærnar liggja með lömbin sín eða þau leika sér í kring urn mömmu sína, ef þau eru vöknuð. — Fal- legust og skemmtilegust af ungviðinu eru þó alltaf, í mínum augum, folöldin; þeirra leikir eru svo fjörlegir og skemmtilegir. Það verður allt svo unaðslegt umhverf- is íslenzka hestinn. Sveitabóndinn er framleiðandi. Hann framleiðir rnjólk, kjöt og ull; sumir garðamat og egg. Venjulega vinna bæði hjónin að framleiðslunni. Ef samstarf þeirra er gott og þau samhent við störfin fer allt vel. Verka- skipting þeirra er ekki svo glögg eins og hjá bæjarbúum, þar sem maðurinn vinnur úti og konan sinnir heimilis- störfunum. Þegar börnin komast á legg læra þau undra fljótt að hjálpa til við störfin og þroskast á þann hátt inikið fyrr en bæjarbörnin. Þetta samstarf foreldra og barna er sérlega skemmtilegt, einkum þar sem foreldr- arnir eru skilningsnæmir á eðli barnanna. Starfsþrá barnanna og hugmyndalíf fær að njóta sín og það myndast sterk kærleiksbönd milli foreldra og barna. Það er öðruvísi í borginni þar sem börnin verða, strax og þau geta, að sækja atvinnu út af heimilinu og heimilið verður oft fljótt aðeins staður til að matast og sofa. Þá hefir unga konan í sveitinni sérstaklega góða að- stöðu hvað börnin snertir. Flún hefir gott næði fyrir barnavagninn sinn og grindina, fyrir sunnan húsið, og þegar þau fara að stálpast, getur hún verið áhyggju- laus þó hún láti þau út, fyrst í grind og síðar geta þau vappað um túnið. Ein vinkona mín skrifaði mér í vetur; hún á þrjú stálpuð börn: Ég sé ekki börnin allan daginn; þau koina fyrst inn í rökkrinu. Hún gat verið áhyggjulaus um þau úti.' Þessi börn eru svo lítil, að hún hefði ekki verið áhyggjulaus í borginni.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.