Freyr - 01.09.1951, Side 22
290
F R E Y R
J. C. Andersen
heitir maður einn. Hann er danskur og er fram-
kvæmdastjóri fræræktarsambands dönsku búnaðarfélag-
anna.
X sumar var Andersen á ferð hér á landi tii þess að
kynna sér skilyrði og ræktun, sérstaklega með tilliti til
hvaða stofnar fræs rnundu heppilegastir til notkunar
hér, en fræræktarsamband dönsku búnaðarfélagantra
hefir á síðustu árum haft nokkur yiðskipti við ísland
og fara þau í vöxt.
Er því eigi að ófyrirsynju að eitthvað sé gert til þess
að athuga þessi efni, en með sívaxandi frænotkun er
það stórkostlegt fjárhagsspursmál að unnið sé á heil-
brigðum grundvelli. Taldi framkvæmdastjórinn eðlilegt
og sjáifsagt, að stofnanir þær, er annast fræverzlun hér,
hafi fagmanni á að skipa sem leiðbeinanda og athug-
anda um árangur fræsins, en fyrir löngu er málum
þessum skipaður fastur sess meðal grannþjóða okkar.
Um þetta efni mun FREYR ræða síðar.
Gabrit
heitir tjörukennt efni eitt, sem nýkomið er hingað til
lands og nota skal til þess að tjarga steinsteypta veggi
og verja þá gegn áhrifum sýru og raka. Er efni þetta
sérstaklega tilbúið til þess að sýruverja votheyshlöður
innan og gera þær endingargóðar, en sýra sem mynd-
ast í votheyi, getur 'á fáum árum eyðilagt veggina ef
ekki er fyrirbyggt.
Gabrit hefir verið þrautprófað sérstaklega í þessum
tilgangi og reynzt öllum öðrum hliðstæðum efnum
betra. Ekki þarf að hita það þegar því er smurt á vegg-
ina. Kaupfélögin munu geta útvegað bændum þetta
efni.
Frostnœtur
komu nokkrar fyrir miðjan ágúst, einkum norðan-
lands, og ollu miklum skemmdum á kartöflukáli. Einnig
sunnanlands hafa kálskemmdir orðið á þennan hátt, en
eigi til saka er þetta blað FREYS var í smíðum, siðast
í ágúst.
Þurrkar
hafa í sumar verið óvenju miklir sunnanlands, svo
að afleiðinga þeirra gætir víða. Vatnsþrot er bæði í
brunnum og lækjum, jarðargróður skrælnandi, meira
að segja kartöflugras, sem víða var visnað á blettum í
görðum um 20. ágúst, vegna þurrka. Er háarspretta
mjög rýr og sums staðar engin syðra, af þessum sökum.
Nyrðra eru á sama tíma kuldar og þokur með súld.
Klaki
var óvenju lengi í jörð á þessu sumri. Um miðjan júlí
varð klaka víða vart í ruðningum úr skurðgröfugröfn-
um skurðum, og þ. 10. ágúst hafði Freyr fregnir af því,
að jarðýta var að dreifa ruðningi í Laugardal og kom
þann dag stórt klakastykki fyrir tönnina.
Kjötiðnaðarnámskeið
hófst í Reykjavík mánudaginn þ. 20. ágúst. Var það
haldið að tilhlutun Framleiðsluráðs landbúnaðarins og
tveir danskir sérfræðingar fengnir til þess að kenna
slátrun og kjötiðnað. Þátttakendur i kjötiðnaðarnám-
skeiðinu voru um 20, en slátraranámskeiðið sóttu 15
manns.
Sumarslátrun
hófst í þetta sinn mánudaginn þ. 20. ágúst.
The Agricultural Situation
heitir rit, sem stjórn U.S.A. gefur út. Það upplýsir, að
28—33% af bygguppskeru Bandarikjanna sé notað til öl-
gerðar og þar að auki 22—26% af rúgnum.
Ennfremur er frá því sagt, að af hverju hundraði
bænda hafi 40 síma. Af þessum hóp er helmingur með 8
eða fleiri bændur á sömu línu en aðeins S af hundraði
hafa sjálfstæða línu.
Útgefendur: Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda. — Útgáfunefnd: Einar
Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. — Ritstjóri: Gisli Kristjánsson. —
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 1023. Sími 1957.
BÚNAÐARBLAÐ Prentsmiðjan Edda h.f.