Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjóran
Jónas Kristjánsson
og MikaelTorfason
Fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot 550
5090 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is
Auglýsingan auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Jónas Kristjánsson heima og aö heiman
Rómverskir
atalðsaiHMiiM-
landi voru rómverskir hermenn
ekki berfsettir (sandölum stnum
eins og ætla mætti
af kvikmyndum
og Ástriki. Þeir
voru (þykkum
ullarsokkum
eins og skyn-
samir (slend-
ingar áöur fýrr.
Viö Darlington í
Durham hefurfundiztfótlaga
handfang, sem sýnir ökklabund-
inn sandala og notalega þykka
ullarsokka. Þá vitum viö, aö þaö
var á ullinni, sem rómverskir
hermenn þrömmuöu um heim-
inn, þegar þeir bjuggu til róm-
verska heimsveldið. Engar Itkur
eru á, aö bandaríska heimsveld-
iö endist eins lengi og þaö róm-
verska, enda kunna Amerlkanar
ekki aö meta ullarsokka.
Amason minnkar
amkvæmt skýrslu rlkisstjórnar
Brasillu minnkar regnskógur
Amasonsvæðisins hraöar en
áður var taliö. Frá ágúst 2003 til
ágúst 2004 minnkaöi
skógurinn um
26.000 ferkíló-
metra, 6%
hraöar en á
næsta tlmabili
á undan. Verst
var ástandiö I
Mato Grosso og er
fylkisstjóranum sjálfum kennt
um þaö. Hann er meö sojarækt
til útflutnings og þarf aö ryöja
mikinn skóg I þvf skyni. Rlkis-
stjómin I Brasillu segist hafa
hert eftirlit meö skógarhöggi til
muna og stækkaö friðuð svæöi,
en árangur af þvl hefur enginn
veriö. Nú er svo komiö, aö ein-
um fimmta hluta alls skógar I
Amason hefur veriö eytt.
(V
U
c
o
QJ
Yorker nú þungamiðja heimsins.
Fyrir fjögur þúsund árum var
borgin Ur I Irak mesta borg I
heimi, fyrir 3500 árum var þaö
Þeba I Egyptalandi. Fyrir þrjú
þúsund árum naut Sldon I Ll-
banon þess heiðurs og fyrir
2.500 árum Persepolis
I Persíu. Fyrir tvö
þúsund árum var
rööin komin aö
RómogfyrirlSOO
árum var þaö
annaö hvort Mikli-
garður ITyrklandi
eða Sjangan I Klna. Fyrir
þúsund árum var Kaifeng I Klna
mesta borg I heimi, fyrir fimm
hundruð árum var þaö Flórens
eða Feneyjar og nú er röðin
komin aö New York. Hún mun
samt varla endast marga áratugi
enn I þvl hverfula hlutverki.
Leiðari
Eiríkur Jónsson
Lifandifjölmiðill sem situr uppi með mosavaxið
starfsfólk ber með sér dauðann.
Nokkur góð ráð fyrir nýjan
útvarpsstjóra ríkisins ““
Menntamálaráðherra stendur nú
frammi fyrir því að geta gert þjóð
sinni mikið gagn. Með skipan í
embætti útvarpsstjóra Mdsútvarpsins hefur
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tækifæri til
að hrista upp í staðnaðri stofnun sem deilur
hafa staðið um í áratugi og sólundað hefur fé
skattborgaranna í þvílíkum mæli að jaðrar
við glæp.
Menntamálaráðherra getur með einu
pennastrild gert þetta óskabam þjóðarinnar
að því sem það var og leyst úr læðingi áður
óþekktan kraft f íslenskri fjölmiðlun, öllum til
hagsbóta og þá ekki síst fólkinu í landinu sem
horfir, hlustar og borgar brúsann. Mennta-
málaráðherra hefur lýst þeim vilja sínum að
standa faglega að ráðningu útvarpsstjóra og
eru það f sjálfu sér tíðindi í ljósi sögunnar.
Ef vel tekst til með ráðninguna getur nýr
útvarpsstjóri brett upp ermamar og látið að
sér kveða svo eftir verður tekið.
Fyrsta verk hans ætti að vera að taka Rík-
isútvarpið alveg út af auglýsingamarkaði og
efla þar með alla fjölmiðlun í landinu. Fé til
rekstrarins verður einfaldlega að finna með
öðmm hætti en því auglýsingavændi sem
viðgengist hefur í Ríkisútvarpinu; oft um-
fram það sem gerist á einkastöðvunum.
Með heilan her auglýsingafólks, undirboð-
um og harðfylgi hefur Ríkisútvarpið ryksug-
að auglýsingamarkaðinn og ekki látið neitt
stöðva sig. Þetta verður nýr útvarpsstjóri að
laga ef einhvem tíma á að nást sátt um til-
vist Rfkisútvarpsins á markaðnum
Næsta verk væri að losa sig við Rás 2
sem er bam síns tíma og gegnir engu hlut-
verki í samtímanum nema ef vera skyldi
að flækjast fyrir öðrum álíka. Það getur
aldrei verið hlutverk ríkisvaldsins að
senda út popptónlist aUan sólarhringinn
nema þá að hana sé ekki annars staðar að
heyra eins og var fyrir tveimur áratugum,
ef ekki þremur.
Þriðja verkið, og líklega það mikilvægasta,
er að afnema rfkisábyrgð á störfum starfs-
manna stofnunarinnar sem sitja þar um ald-
ur og ævi þegar þeir einu sinni em komnir
inn. Hreyfing á starfsmönnum og breytingar
á daglegum verkefiium hvers starfsmanns er
það vítamín sem allir fjölmiðlar verða að fá
og í raun þrífast á ef vel á að ganga. Lifandi
fjölmiðill sem situr uppi með mosavaxið
starfsfólk ber með sér dauðann.
Lokaverkefni nýs útvarpsstjóra væri svo að
leggja Ríkisútvarpið niður. Ef nýjum útvarps-
stjóra tekst það hefur hann unnið fyrir kaup-
inu sínu og gert þjóðinni gagn. Aðrar kröfur
þarf ekki að gera.
Leoncie mótmælt
Yngstu bæjarbúanirí
Sandgerði ósáttir viö
veru söngkonunnar í
bænum.
Bogi Ágústsson
A dúndurlaunum
| hjá almenningi og
\vill alls ekki missa
I vinnuna.
irtæki sem þarf að skila hagnaði og
getur því gert það sem því sýnist.
Ríkisútvarpið hans Boga fær til
Fyrst og fremst
dæmis tvo og hálfan milljarð frá al-
menningi í landinu á hverju ári en
samt tekst Boga og félögum ekki að
reka batteríið sómasamlega.
AUÐVITAÐ VEIT B0GI þetta. Þess
vegna eyddi hann öllum sínum tal-
tíma í Kastíjósi við að reyna að
sannfæra sjálfan sig um að Ríkisút-
varpið væri nauðsynleg stofnun.
Vegna þess að annars yrði hann at-
vinnulaus. Hann reyndi meira að
segja að mála 365 miðlana dökk-
um litum af því að á
bakvið þá
B0GIÁGÚSTSSON YFIRMAÐUR ríkis-
frétta er einn þeirra sem virðist
telja almenning vera fífl. Hann
mætti í Kastíjós ríkisins í fyrra-
kvöld ásamt Karli Garðarssyni, rit-
stjóra Blaðsins, og Sigmundi Erni
Rúnarssyni, fréttastjóra Stöðvar 2,
og hélt því fram að Ríkisútvarpið
hefði engan annan tilgang en að
þjóna almenningi á meðan aðrir
miðlar í landinu, einkareknir,
hefðu þann tilgang einan að græða
peninga.
ÞETTA ER AUÐVITAÐ gamalkunn
tugga sem gefur sér þær forsendur
að fólk sé fífl. Sama viðhorf og olíu-
félögin höfðu svo áratugum skipti.
Bogi virðist ekki gera sér grein fyrir
því að ef fjölmiðill skilar hagnaði er
hann að þjóna almenningi. Fólk {
er nefnilega ekki fífl, eins og (
Bogi heldur, og kaupir ekki fjöl-1
miðla sem ekki veita þeim góða j
og heiðarlega þjónustu.
FÓLK ER ALMENNT stálheiðar-
legt á íslandi. Það mundi ekki
tryggja rekstur óheiðarlegs fjöl-
miðils. Það sama er ekki hægt að
segja um stofnanir. Þær eiga það til
að breytast í bákn sem hefur ekki
sömu forsendur og einkarekið fyr-
Guðbergur bloggar
Guðbergur Bergsson rithöfundur er einn besti penni þjóð-
arinnar. Hann er iðinn við að blogga á heimasíðu út-
gefanda síns, www.jpv.is, undir yfirskriftinni
Hugsun dagsins. Nýjasta færslan hans fjallar
um hryðjuverkin í London.
Nú er vitað að hryðjuverkamennimir
í London stunduðu íþróttir og bama-
hjáip, góðir drengir, áttu góðar mömm-
ur og álíka góðar ömmur og ömmur em
íbókum Laxness. Feðra ogafa ekkigetið.
Góðverkadrengimir, Bush og Blair, em
góðir drengir, áttu góðar mömmur og ekki
síðri ömmur en ömmumar í bókum Lax-
ness. Afar ogpabbarpríma. Hvíermunurá
ódæði fyrmefhdra í London oggóðverkum
síðarnefndra í Bagdad? Er skýringu að
fínna í femínískrí úttektDr. Ólafar Biöndal
frá Oxford á ósamræmi mæðra ogfeöra innan hins arabíska
karlaveldis en samræmis íkynjafíéttunni hjá engilsöxum?
GuðbergurBergsson
oLCCUli ÖICCIÖIU
viuoAjpiauiujsjui
landsins, með sína djúpu vasa.
Ekkert var minnst á djúpa vasa
ríkisins sem Bogi og hans lið teygir
sig dýpra og dýpra í með hverju ári.
SÚ SÓUN Á ALMANNAFÉ sem á sér
stað í Efstaleitinu er til skammar.
Bogi hefði átt að verja meiri tíma í
að tala um það en að gera lítið úr
einkareknum fjölmiðlum, Morg-
unblaðinu, Blaðinu, DV, Bylgj-
unni, Stöð 2 og Fréttablaðinu.
Þessir miðlar sóa ekki peningum
skattgreiðenda, heldur er rekstur
allra þessara miðla í blóma, sem
ekki er hægt að segja um RÚV.
mikael@dv.is
Sigmundur Ernir
Rúnarsson Hlustaði
llka d Boga I Kastljósinu.
Karl Garðar-
son Hlustaði d
Boga IKastljós-
inu I fyrrakvöld.
• ■ •
• •
um Leo
Guðbergur
Bergsson Hægtað
lesahugsanirhans
d www.jpv.is.
Sandgerðísbær sendi frá sértilkynningu I
gær varðandi fréttir af teoncie, fbúa I bænum.
Á dögunum greindi DV frá mótmælum sem
ungmenni viðhöfðu fyrir utan hús söngkon-
unnar I Sandgerði. Bærinn er að sögn framar-
lega meðal Islenskra sveitarfélaga hvað varðar
fræðslu meðal íbúa um einelti og
kynþáttafordóma og afleiöingar
sllks háttalags. Að lokum skora
bæjaryfirvöld á bæjarbúa að taka
ekki þátt í umfjöllun fjölmiðla
um þetta mál. Sjálf bæjarstjórnin
mun ekki tjá sig opinberlega
um Leoncie hér eftir.
Öll yfirlýsingin erá
þessa leið. Að þetta
vandamál I bænum
hverfi ef bæjarbúar og
bæjarstjórn þegi bara. Þá
muni vandamátið hverfa.
Það er látið að því liggja
að það sé eingöngu til I
miðlum, sem erauðvitað firra. Fjöl-
miðlar voru ekkert að fjalla um Leoncie þegar
krakkarnirí bænum tóku sig saman og héldu
mótmæli fyrir utan hús söngkonunnar. Við
fjölluðum bara um þann atburð þegar hann
hafði gerst. Fengum Ijósmyndirað láni frá Vik-
urfréttum, sem einnig fjölluðu um málið.
Sendiboðinn er bara sendiboði og ekki aðili
málsins. Þetta ætti bæjarstjórnin að vita og
reyna frekar að leysa málið ásamt bæjarbúum
og Leoncie i stað þess að benda á fjölmiðla
sem einhverja sökudólga Iþessu leiðindamáli.