Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ2005 Fréttir DV Matarsmygl í Norrænu Gríðarlega mikið magn af matvælum fannst í erlendri rútu sem kom með Norrænu til Seyðis- fjarðar í gærmorgun. Að- eins ökumaður og einn farþegi voru skráðir þar um borð. Við fyrstu athug- un fundust hátt í þrjú hundruð kíló af mat, en leit hélt áfram fram eftir degi meðan ferðalangarnir voru yfirheyrðir. Mennirnir sögðu matinn vera til „eig- in neyslu," en hann myndi líklega nægja þeim fram eftir vetri. Hámarksmagn á mann er þrjú kfló. Það sem fannst í rútunni jafngildir því álíka magni og hund- rað manna hópur mætti taka með sér. Hafnir með eigin heima- síðu Atli Már Jóhanns- son, íbúi í Höfnum, sem til- heyrir Reykjanesbæ, var orðinn leiður á hve litía umijöllun Hafnir fá á vef Reykjanesbæjar. Honum fannst tími til kominn að sýna Höfnum þá virðingu að búa til vef um staðinn. Vefurinn fór í loftið á mið- vikudag og þegar eru komnar inn á hann margar skemmtilegar fréttir. Vefur- inn er hinn glæsilegasti en þar er meðal annars ágætís myndasafn, spjaliborð og fleira. Einnig er hægt að sækja um tölupóstfang með endinguna @hafnir.is Vélamiðstöð- in einkavædd Fyrirtæki stoðtækjasmiðsins Kolbeins Gíslasonar í Kanada varð gjaldþrota fyrir um mánuði. Kolbeinn hafði flutt tæki og tól úr verksmiðju sinni á Ólafsfirði, sem sett var á laggirnar með hjálp Byggðastofnunar, til Kanada þar sem tækin voru aft- ur veðsett. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, segir að ef rétt reynist sé um fjársvik að ræða. Tapaöi hundraö milljóaum on er llæktur í finrsvikamnl „Auðvitað er ég svekktur. Ég er búinn að missa allt,“ segir Kol- beinn Gíslason stoðtækjasmiður. Fyrir um tveimur árum festi Kolbeinn kaup á stærstu skóverksmiðju í Norður-Ameríku. Áformin voru stór en á endanum hrundi reksturinn eins og spilaborg. Fyrirtækið er gjaldþrota og í ljós hefur komið að fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins veðsetti eignir í Kanada sem þegar voru veðsettar hjá Byggðasjóði. Kanadískir fjölmiðlar fjölliiðii um gjaidþrot Canadian Ortopedic Shoe Company um síðustu helgi. Þar kom fram að gjaidþrotið næmi um hundrað rrtilljónum. Kolbeinn hafði hér á landi fengið styrk frá Byggðastofnun til að setja á laggirn- ar verksmiðju á Ólafsfírði. Kolbeinn flutti hins vegar verksmiðjuna úr landi og til Kanada og hún var aftur veðsett í banka í Nova Scotia. Koi- beinn segir að það hafl verið gert án hans vitneskju. Lítill markaður „Ég keypti stærstu skóverk- smiðju Norður-Ameríku og ætíaði að hefja rekstur fyrir þennan risamarkað," segir Kolbeinn Gísla- son sem er nú staddur hér á landi, svikinn og svekktur eftir þetta risa- gjaldþrot. Kolbeinn er sonur Gísla Ferdinandssonar skósmiðs, hann keppti á ólympíuleikum í júdói og hefur getið sér gott orð sem stoð- tækjasmiður hér á landi. Hæfni hans í framleiðslu á sérsmíðuðum skóm vakti athygli langt út fyrir landsteinana. Vegna fjölda pantana frá útíöndum ákvað Kolbeinn að söðla um og stofna verksmiðju út í heimi. Markaðurinn hér á landi var einfaldlega of lítill. Erfið byrjun „Við vorum búin að fá vilyrði fyrir stórum styrk frá Redfund í Kanada," segir Kolbeinn, en Red- fund gegnir svipuðu hlutverki og Byggðastofnun hér á landi. „Vanda- „Viö vorum búin að fá vilyrði fyrir stórum styrk frá Redfund í Kanada," málið var hins vegar alltaf að hefja framleiðsluna. Ég kom til Kanada fyrir tveimur árum og byrjaði. í fýrstu fengum við lélegt húsnæði, fýrrverandi bókasafn þar sem raf- magnið var ekki nægilegt fyrir jafn stórar vélar og við vorum með.“ Verksmiðjan flutt Á sama tíma var starfsemi í Brown Shoe-skóverksmiðjunni, þeirri stærstu í Norður-Ameríku, hætt. Kolbeinn sá tækifæri til að láta reksturinn ganga. „Það tók hins vegar mjög iangan tíma að semja um leigu á verksmiðjunni. Þegar það var komið á hreint vantaði okk- ur hluta úr verksmiðju minni heima á íslandi í Ólafsfirði. Ég flutti því tæki og tól frá Ólafsfirði til Kanada og dæmið virtist ætla að ganga upp. Fór úr axlarlið Óheppnin var ekki hætt að elta Kolbeinn. Hann segist hafa dottið í hálku í Kanada og axlarbrotnað. „Þetta var í febrúar og ég fór úr liði. Kippti mér reyndar sjálfur í axlar- Iiðinn en við skoðun heima á ís- landi kom í ljós að ég var brotinn. Það tók mig fjóra mánuði að kom- ast aftur í form og þegar ég fór aftur til Kanada var reksturinn hruninn," útskýrir Kolbeinn. Fjársvik Kolbeinn Gíslason segir að fram- kvæmdastjórinn sem fór með um- boðið fýrir reksturinn, kona að nafni Unnur Einarsson, hafi veðsett eigur fyrirtækisins ytra meðan hann var frá vegna veikinda, eigur sem þegar voru veðsettar hjá Byggðastofnun hér á landi þegar Kolbeinn fékk styrk til að koma verksmiðjunni á laggirnar á Ólafsfirði. Aðalsteinn Þorsteins- son, forstjóri Byggða- stofnunar, segist ekki hafa kannað málið, en reynist þetta rétt sé um hrein og klár veðsvik að ræða. „Það er t ljóst að ef eignir, veð- settar hjá Byggða- stofnun, eru fluttar úr landi eru það fjár- svik," segir Aðalsteinn. simon@dv.is Kolbeinn Gíslason stoðtækjasmiður £r gjaldþrota og eigna- laus eftir stóra drauma í Norður-Ameríku. Borgarráð samþykkti á fundi i gær að selja Véla- miðstöðina ehf. hæstbjóð- anda, en Vélamiðstöðin er í eigu Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur. Átta tilboð bárust í mið- stöðina. Hæsta tilboðið átti íslenska gámafélagið ehf. en það bauð 735 millj- ónir króna. Borgarstjóri segir þetta lið í að borgin dragi sig úr rekstri fyrir- tækja sem hún á misstóran hlut í. Slíkt hafi hún gert undanfarin ár með góðum árangri. Málefni stofnfjáreigenda Sparisjóös Hafnarfjaröar eru enn í deiglunni. Fundur stofnQáreigenda var haldinn í gærkvöldi. Skýringa krafist á tengslum bæjar og sjóðs „í staðinn fyrir að láta einhvem lögfræðing leita að þessu getur sjóð- urinn vonandi gefið okkur þessar upplýsingar. Ég hef rætt þetta við stjórnarformanninn og á ekki von á öðru en að vel verði tekið í þessa umleitan," segir Gunnar Svavars- son, forseti bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar. Bæjarráð hefur farið fram á það við stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, með vísan í umræðu um málefni bankans, að lagðar verði fram skýr- ingar og upplýsingar um lögform- lega réttarstöðu milli sjóðsins og bæjarins og hvort fyrir liggi einhverj- Hvað liggur á? ar samþykktir eða ákvæði í stofn- samningi bankans. í gærkvöldi var haldinn fundur meðal stofnfjáreigenda bankans en þeir hafa verið mjög í deiglunni undanfama daga og vikur eftir að spurðist að stofnfjáreigendur hefðu sumir hverjir selt sína hluti fyrir stjarnfræðilegar upphæðir. Hver og einn stofnfjáreigandi, en þeir em aðeins 47 að tölu, er skráður fýrir 200 þúsundum að nafnvirði, en í fréttum hefur komið fram að hlutur hvers um sig hafl farið á allt upp í hundrað milljónir. Málið hefur vald- ið verulegri ólgu í Hafnarfirði. Vilja sumir bæjarbúar ganga svo langt að „Það liggurýmislegt á,"segir Emilia Björg Óskarsdóttir Nylon-gella.„Það er auðvitaö fyrst og fremst Nylon hjá mér núna en við verðum á Akureyri, Siglufirði og Galtalæk um verslunar- mannahelgina. Svo vorum við að gefa út myndband við Dans, dans, dans sem ég er mjög ánægð með. Ég byrjaði líka í naglaskóla á mánudaginn sem ergottsvona með söngnum. ætla að fjölmargir muni færa viðskiptí sín annað ef svo fer sem horflr. Gunnar segir vissulega ólgu innan bæjarfélagsins vegna málsins þótt hann vilji ekki gera mikið úr þeim þætti málsins. „En ijölmargir bæjarbúar hafa haft samband við bæjar- stjóra og bæjarfulltrúa og verið að spyrjast fýrir um tengsl bæjar og sjóðsins. Enda hafa verið tengsl í gegnum tíðina. Til dæmis sátu bæjarfulltrúar áður í stjórn sjóðsins." Árni Mathiesen sjávar- útvegsráðherra er meðal stofnfjáreigenda og hann hefur sömuleiðis vísað því á bug að hafa nokkuð með þetta að gera. Ámi vill því meina að ef stofnfé verður selt sé erfitt að draga sig til pólitískr- Mathiesen; fund / gær var fundur meðal hinna umdeildu stofnfjáreigenda bankans. ar ábyrgðar. Þá velta menn fyrir sér stöðu Gissurar Guðmundssonar, en hann er bæði stofnfjáreigandi sem og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.