Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 22. JÚU2005
Fréttír 30V
Jóhann Garðar Ólafsson er
samviskusamur og hörkudug-
legur starfskraftur. Hann þyk-
ir skemmtilegur með meiru
ásamt þvl að teljast einstak-
lega listrænn.
Jóhann er þverhaus sem
getur áttí erfiðleikum með
mannleg samskipti. Hann
þykir fljótur upp en einnig
fljótur niður. Hann fékk
aldrei að taka þátt í spurn-
ingakeppni framhaldsskól-
anna.
„Helstu kostir hans eru
kannski þeir að hann er
mjög duglegur. Það má
svo bæta því við að
drengurinn er mjög list-
rænn. Hann er náttúrulega
mjög samviskusamur sem er
ótvlræður kostur. Mér dettur nú
ekkert annað íhugí fljótu
bragði. Efvið færum okkuryfir I
gallana erþað nú augljóst.
Hann er þverhaus, þverhaus og
afturþverhaus. Annað var það
nú ekki.“
Jón Axel Ótafsson, bróðirJóhanns
„Kostir hans eru þeir að
hann er einn afmínum
betri vinum. Hann er
svona einn afþessum
mönnum sem gott er að
þekkja. Annar kostur er sá að
hann hefur skemmtilegt áhuga-
mál sem að er að sjálfsögðu
golf. Hann er góður starfskraft-
ur og meiri háttar duglegur.
Hann er líka yfirleitt bóngóður.
Ókostirnir eru þeir aðhann er
oft fljótur upp enn hann líka
fljótur niður. Hann getur líka
verið erfiður I mannlegum sam-
skiptum.“
Sigvaldi Kaldalóns, samstarfsmaður á
FM 957.
„Kostir hans er þeir að
hann er einstaklega upp
með sjálfum sér og
skemmtilegur fram eftir
öllu. Hann er á uppleið á
framabrautinni. Þaö er svolltil
saga á bak við helsta gallann
hans. Þaö er þannig að hann
langaði alltafaö taka þátt í
spurningakeppni framhalds-
skólanna en fékk það aldrei.
Þess vegna spyr hann alltof
margra spurninga. Það er eins
og hann haldi að llfiö sé spurn-
ingakeppni.
Þröstur Gestsson, vinur og Bílasali.
Jóhann Garöar ólafsson, oft nefndur Gassi
í Zúúber, er fæddur þann 21 april áriö 1977
og er því 28 ára. Hann hefur undanfariö
getiö sér gott orö sem símahrekkjalómur í
útvarpsþættinum Zúúber á FM 957.
Trampólínslys
í Keflavík
Laust eftir klukk-
an tíu á miðviku-
dagskvöld var lög-
regla og sjúkrabíll
kölluð að íbúðar-
húsi í Keflavík. í
bakgarði hússins
hafði tólf ára dreng-
ur slasast við leik á
trampólíni. Leik-
tækið var búið ör-
yggisneti en pilturinn féll
um gat sem var á því og
kom harkalega niður á
steypta stétt. Pilturinn hljóp
þá inn í húsið og missti þar
meðvitund. Hann var fluttur
á Landspítala-Háskóla-
sjúkrahús. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík er þetta
fyrsta slys þessarar tegundar
þar í bæ.
Utanríkisráðherra ætlar að opna sendiráð á Indlandi. Nýja
sendiráðið verður það 16. sem ísland heldur úti viðsvegar
um heim. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaðurinn við
sendiráðin i ár nemi 1,7 milljarði. Illugi Gunnarsson, að-
stoðarmaður utanríkisráðherra, segir sendiráðin nauðsynleg
Kaupmannahöfn, opnað 1920
62.830.000 krónur
tmtt:
BimnuaS
fyrir viðskiptahagsmuni íslands.
Skattgreiðendur munu þurfa að
standa straum af nýju sendiráði ef
áætlanir utanríkisráðherra ná fram að
ganga. Heildarkostnaður við sendi-
ráðin í fyrra var rúmur milljarður. Nú á
enn eitt sendiráðið að bætast við, á
Indlandi, og mun kostnaðurinn því
enn halda áfram að aukast.
Utanríkisráðherra mun setja á fót
sendiráð á Indlandi, og bætist það í
hóp fimmtán íslenskra sendiráða sem
Utanríkisþjónustan rekur nú þegar.
Starfsemi sendiráða er einn stærsti
kostnaðarliður Utanríkisþjónustunn-
ar, en gert er ráð fyrir kostnaði upp á
1.696.300.000 krónur í ár. Við þá tölu
mun væntanlega bætast kostnaður
vegna sendiráðs á Indlandi.
Milljónir í sendiráð
Umtalsverða fjármuni þarf til að
koma á fót sendiráði ef fyrri dæmi eru
skoðuð. Nýjasta sendiráði íslands, í
Japan, var komið á fót árið 2001, og
kostaði 800 milljónir króna. Mesti
kostnaðurinn var við kaup á húsnæði
undir starfsemina auk sendiherrabú-
staðar.
Á síðasta ári var 300 milljónum
varið í að standa straum af kostnaði
við byggingu sendiherrabústaðar í
Berlín. Þetta var umdeild ákvörðun
vegna þess að hægt hefði verið að
kaupa hús fyrir mun lægri upphæð.
DV rannsakaði málið á sínum tfma og
komst að því að hægt hefði verið að
kaupa samskonar eign á 95 milljónir, í
sama hverfi.
Kostnaðaráætlun ekki til
Utanríkisráðuneytið hefur ekki enn
gert kostnaðaráætlun fyrir fyrirhugað
sendiráð. Ef miðað er við rekstrar-
kostnað annarra sendiráða árið 2003
má gera ráð fyrir að kostnaður við
rekstur hlaupi á bilinu 22-110 milljón-
um, allt eftir umfangi starfseminnar.
Til glöggvunar má nefna að sendiráðið
f Kína kostaði 72,6 milljónir í rekstri
árið 2003. Kína og Indland eru tvö fjöl-
mennustu ríki heims, með yfir milljarð
íbúa hvort um sig.
saevar@dv.is
London, opnað 1940
84.898.000 krónur
Sendiráðum fjölgar
Stefnt er að nýju
sendiráði á Indlandi.
Ottawa, opnað 2001
57.238.000 krónur
Umtalsverður kostnaður
Gert ráð fyrir 1,7 mitijörðum í
rekstur sendiráða iár.
Washington, opnað 1941
86.064.000 krónur
„Það eru ýmis slík atriði sem þarfað
fara yfir áður en menn geta séð hver
áætlaður kostnaður verður."
Skráningu sumarbústaða ábótavant
Öryggið er í höndum eigenda
„Þessi númer geta skipt sköpum
þegar mannsh'f er í húfi," segir Þórhall-
ur Ólafsson, forstöðumaður Neyðarlín-
unnar. Aðeins helmingur sumarbú-
staðaeigenda á íslandi er með svoköll-
uð öryggisnúmer á bústöðum sínum.
Þau númer skipta miklu máli fyrir
björgunaraðila þegar neyðarástand
skapast í dreifbýli.
Verkefni í tengslum við númera-
skráningu fór af stað fyrir nokkmm
árum en eigendur sumarbústaða virð-
ast margir hveijir ekki kippa sér upp við
nauðsyn þess að hafa þau, þrátt fyrir að
það auðveldi björgunaraðilum vinn-
una með því að hægt sé að leiðbeina
þeim beint á staðina í stað þess að
eyða tímanum í leit að ákveðnum bú-
stöðum. „Ef til dæmis. eldsvoði kemur
upp í sumarbústað og menn vita ekki
hver eigandinn er vegna númersleysis
þá getur verið býsna slungið að vinna
að málinu."
Þórhallur Ólafsson Forstöðumaður Neyð-
arlinunnar segir öryggi i höndum eigenda.
Þórhallur segir það alfarið í hönd-
um sumarhúsaeigenda að skrá bústaði
sína. „Öryggið er í þeirra höndum,"
segir hann.
Neyðarlínan skráir hnit bústaða í
Sumarbú staður Helmingur sumarbústaða
á landinu er ekki með öryggisnúmer til að
auðvelda vinnu björgunar aðila. Myndin
tengist ekki fréttinni.
tölvukerfi sitt og er einnig hægt að skrá
upplýsingar um veikindi eða sjúkdóma
í hverjum bústað. Þórhallur segir það
eitt geta skipt sköpum við björgun.
„Það eina sem fólk þarf að gera er að
panta númer og við skráum það,“ segir
Þórhallur. Einnig segir hann að sveita-
félögin eigi að koma sér upp eigenda-
skrá og staðsetningu á öllum bústöð-
um og að stjómvöld ættu að setja regl-
ur um þetta málefni. gudmundur@dv.is
Frjálshyggju-
félagið vill
forsetann frá
Fijálshyggjufélagið hefur skilað
inn erindi til stjórnarskrámefridar
vegna fyrirhugaðra stjómarskrár-
breytinga. Meðal hugmynda og at-
hugasemda sem félagið setur á odd-
inn em tillögur þess efnis að
embætti forseta íslands verði lagt
niður og þær stjómskipulegu skyld-
ur sem hvíldu á embættinu verði
faldar forseta Alþingis, forsætisráð-
herra eða forseta Hæsta-
réttar.
Gunnlaugur
Jónsson er formað-
ur Frjálshyggjufé-
lagsins og sonur
Jóns Steinars
Gunnlaugssonar
hæstaréttardómara
sem hefur sett
fram svipaðar
hugmyndir.