Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ2005
Sport DV
Tommyfráí
mánuð
Danski vamarmaðurinn
Tommy Nielsen, sem spilar með
FH, verður frá keppni i mánuð
hið minnsta vegna meiðsla sem
hann hlaut undir lok leiksins
gegn Neftclii í forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu. Tommy Niel-
sen hefur verið einn af bestu leik-
mönnum FH í sumar. Hann hefur
leikið með Auðuni Helgasyni í
hjarta vamarinnar og hafa þeir fé-
lagar náð vel saman. Sverrir Garð-
arsson, sem lék sem miðvörður í
fyrra, er meiddur og verður ekki
með í sumar. Það er því ijóst að
FH gæti lent í vandræðum með
að manna stöðu miðvarðar það
sem eftir er af sumri.
Emil á fullu í
krikket
Varalið Tottenham Hotspurs r-
býr sig nú fyrir keppnistímabilið f
ensku úrvalsdeiidinni. Clive Allen,
fyrmrn leikmaður Tottenham og
núverandi þjálfari varaliðsins, lof-
aði Emil HaÚfreðssyni og félögum
að vera með skemmtilegar æfing-
ar í vikunni. Leikmenn
liðsins fóm í krikket til
tilbrevtingar, þar sem í ’SJ 1
þeir vom búnir að f
vera i erfiðum lík- Æ&jÉbi
amlegum æfing- yfl
um. „Þetta var
mjög gaman. Ég
sagði við strákana
að þessi æfing '
yrði óhefðbundin. j w \
krikket og það J ^
staklegagam- íj
anaðfylgjast (*\. CT\
með Emil og v 'O
Reto Ziegler en
þeir höfðu aldrei prófað þetta
áður. Þetta var skemmtileg til-
breyting."
Samdi við
Chelsea
Spænski knattspymumaður-
inn Enrique De Lucas og Chelsea
hafa komist að samkomulagi eftir
að leikmaðurinn lögsótti félagið
fyrir að segja upp samningi sínum
árið 2003. De Lucas gekk til liðs
við félagið árið 2002 frá Deportivo
Alaves og lék samtals 31 leik fyrir
félagið. Þegar Roman Abramovich
keypti félagið var þjónustu hans
ekki lengur óskað og var samningi
hans rift. De Lucas sætti sig ekki
við það og lagði fram skaðabóta-
kröfu upp á 2,5 milljónir punda.
Ekki er gefið upp hve há greiðslan
er sem báðir aðilar sættust við.
Góðar til
Grindavíkur
Þrír leikmenn nafa ákveðið að
skipta í kvennalið Grindavíkur á
næsta tímabili. Erna Rún Magn-
úsdórtir kemur aftur eftir
skamma dvöl hjá ÍS á }
síðasta tímabili en Jto v \
hún fylgir þjálfarnum ÆSiw*.
Unndóri Sigurðssyni i <iéí |
sem hefur tekið við
liðinu. HildurSigurð-
ardóttir var kosin
besti leikmaður fyrstu j
deildar kvenna tvö ár í
röð áður en hún hélt í - S*-
víking til Svíþjóðar í
fyrraog skrifaðiá
dögunum undir
samning við liðið og
einnig er búið að ganga frá ráðn-
ingu erlends leikmanns fyrir
næsta tímabil en sú heitir Jerica
Watson og lék við frábæran orðsír
með KR á síðasta tímabili og skor-
aði 35 stig og tók 14 fráköst að
meðaltali.
Willum Þór Þórsson og félagar í Val gerðu góða ferð í Vesturbæinn í gærkvöldi þeg-
ar þeir slógu lánlausa KR-inga út úr bikarkeppninni með marki Garðars Gunnlaugs-
sonar á elleftu stundu. j
Herra Island kláraöi KR
/niar Þór Björnsson Hefurstaðið
vel á mótinu og skoraði 11 stigígær.
Endurkomu Willums Þórs Þórssonar í Vesturbæinn hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu í allt sumar, en Willum var lát-
inn taka poka sinn sem þjálfari KR í fyrra, því liðið þótti staðnað
undir hans stjórn. Það var þó Willum sem átti lokaorðið á KR-
vellinum í þetta sinn, því Valsmenn stálu senunni á dramatísk-
an hátt í blálokin.
Valsmenn voru betri aðilinn í
fyrri hálfleiknum í gær og hetja
þeirra og fyrirliði Sigurbjörn Hreið-
arsson kom þeim verðskuldað yfir á
25. mínútu eftir að Valsmenn höfðu
nánast tjaldað inni í teig KR-inga.
Ekki tók betra við á þeirri 40. þegar
Sölvi Sturluson fékk að líta rauða
spjaldið eftir að hafa fellt Matthías
Guðmundsson sem var kominn
einn inn fyrir vöm KR-inga.
Valsmenn sungu og trölluðu á
bekkjunum og hafa eflaust fúndið
lyktina af sigri á erkifjendum sínum.
Hart barist KR-ingar enduðu með tvær hendur tómarþrátt fyrir hetjulega baráttu eins
manns.
KR skorar
Hálfleiksræða Magnúsar Gylfa-
sonar hefur að öllum líkindum verið
bönnuð börnum innan sextán ára,
því KR-ingar virkuðu öllu hressari
eftir te og uppskáru jöfhunarmark á
57. mínútu, en þar var að verki Ágúst
Þór Gylfason. Skyndilega mátti
heyra í bróðurparti þeirra 1570
áhorfenda sem mættir vom til að
fylgjast með leiknum og vom flestir
á bandi KR-inga. Þessi gleði lifði þó
ekki lengi, því þegar stuðningsmenn
KR þreyttust á að fagna, um fimm
mínútum eftir jöfhunarmarkið,
heyrðist ekkert nema stöku röfl í
dómaranum frá áhangendum KR,
en sambatrumbusláttur Valsmanna
ómaði lengst af í bakgrunninum.
Valur sigrar
Næstu 30 mínútur leiksins vom
satt best að segja hrútíeiðinlegar og
ekkert útlit fyrir annað en framleng-
ingu. Stuðningsmenn KR virðast
ekki geta skemmt sér yfir öðm en að
öskra á dómara, því lítið heyrðist í
þeim allan leikinn nema þegar þeir
töldu brotið á sínum mönnum.
Þeim verður kannski ekki kennt
um, því þeir hafa litíu geta fagnað
í allt sumar og nú var útíit fyrir að
þeir yrðu formlega af voninni um
verðíaun þetta sumarið.
Hinn fagri Garðar Gunn-
laugsson, fyrrverandi Herra ís-
land, gerði út um leikinn á síðustu
mínútu leiksins. Bingó, KR-ingar
geta farið að hlakka til næsta
sumars.
Garðar
Gunnlaugss
on Valsari
Skoraði
sigurmarkið á
elleftu stundu.
B-deild Evrópumeistaramóts U-18 landsliða í körfubolta:
íslendingar komnir í undanúrslitin
íslenska landsliðið í körfubolta
skipað leikmönnum 18 ára og yngri
vann í gær sigur í æsispenn
andi leik gegn Úkraínu,
71-70, í lokaleik milliriðla-
keppninnar í B-deild Evr-
ópumeistarakeppninnar.
íslenska liðið, sem vann
riðil sinn í fyrstu umferð
keppninnar, lauk keppni í .
öðm sæti í milliriðli en ásamt
íslendingum vom Úkraína og
Austurríki með tvo sigra. Inn
byrðis árangur íslands og
Úkraínu var betri og
því fara þessi tvö
lið áfram.
Leikurinn í
gær var sem fyrr
segir æsispenn-
andi. Þegar tvær og
hálf mínúta var eftir leiddi ísland
með sex stiga mun eftir að hafa skor-
að sjö stig í röð. Úkraínumönnum
tókst að saxa á forskotið án þess þó
að komast yfir og vann ísland að lok-
um með einu stigi. Úkraínumenn
gátu verið sáttir við sitt því úrslitin
þýddu að þeir lentu í efsta sætí
riðilsins engu að síður.
Fjölnismaðurinn Hörður Vil-
hjálmsson var stigahæstur ís-
lendinga með 20 stig og Pa-
vel Ermolinskij, sem
leikur á Spáni, var
með 19 stig, 6 frá-
köst, 5 stoðsend-
ingar og 6 stolna
bolta. Þá skoraði
KR-ingurinn
Brynjar Þór
Björnsson 11
stig.
Ef ís-
land vinn-
ur í und-
anúrslitum hefur liðið unnið sér
keppnisrétt í A-deild Evrópu-
keppninnar á næsta ári. Til þess
þarf liðið sennilega að bera sig-
urorð af Finnum sem ísland
vann að vísu í fyrri riðlakeppn-
inni. Undanúrslitin fara fram á
laugardaginn.
urst@dv.is
Efísland vinnur í
undanúrslitum hef-
ur liðið unnið sér
keppnisrétt í A-
deild á næsta ári.
Stigahaeslur Hörður Vilhjálmsson
Skorað' 20 stig gegn Úkrainu igær og
var stigahæstur Islendinga I ieiknum