Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 22. JÚLl2005 Heimilið 33V Mummi þjöl leysir Steina sleggju afi bili sem þúsundþjalasmiður DV og reddar málunum fyrir lesendur. Hann tekur á móti ábendingum og svarar spurningum lesenda í gegnum netfangið heimili@dv.is. Draumatækið Dreymdi lengi vel um að eignast hrærivél ~ „Ég man að þegar ég var að # ••«5* byrja að búa dreymdi mig lengi um að eignast hrærivél en þær voru svo dýrar að maður þurti að borga þær með afborgun- um," segir Margét Sig- fúsdóttir skólastýra Hússtjórnarskólans og önnur umsjóna- manna þáttarins Allt í drasli. „Nú man ég nú ekki eftir neinu einu tæki sem mig dreymir sérstaklega um. Það væri nú samt alger draumur að eignast sjálfvikra skúringavél, sem næði vel í öll horn en ég er ekki alveg viss um að slík vél sé til' Þau Guðrún Bóasdóttir og eiginmaður hennar Jón Þorgeirssson eru mikið garðáhugafólk og hefur garð- ur þeirra í Ægisgrund í Garðbæ vakið verðskuldaða athygli. Þau segja garðræktina sérlega skemmtilegt áhugamál og afar gefandi fyrir líkama og sál. Flestum þykir gaman að virða fyrir sér fallega garða en þeir eru færri sem búa yfir þeim hæfileikum og dug sem þarf til að skapa og halda einum slíkum við. Hjónin Guðrún Bóasdóttir og Jón Þorgeirsson eru meðal þeirra sem búa yfir því sem til þarf til að skapa fallegan garð. „Mér finnst áhuginn á garð- rækt og því að hafa snyrtilegt í kringum sig hafa aukist afar mikið á síðustu árum," segir Guðrún Bó- asdóttir garðáhugamanneskja í Garðabæ. Þau eiginmaður henn- ar, Jón Þorgeirsson, eru svo hepp- in að búa yfir sameiginlegum áhuga á flestu sem viðkemur garðvinnu og hafa þau hlotið verðskuldað lof fyrir störf sín og voru þau til dæmis meðal þeirra sem unnu til viðurkenningar frá bæjarstjórn Garðabæjar árið 2004 fyrir garð sinn. þessi störf séu og þá er varla hægt að snúa við í átt að illgresi og óreiðu. Síbrosandi hjón „Ég er viss um að þetta er mjög gott fyrir sálina. Við hjónin erum að minnsta kosti alltaf brosandi í þessu, enda er allt sem að þessu snýr svo skemmtilegt, að maður tali nú ekki um þegar þetta er sameiginlegt áhugamál hjóna. Þú getur varla ímyndað þér hvað þetta er skemmtilegt," segir Guð- rún með mikilli áherslu og fjöri. Gefandi og áhugavert Þeir eru margir sem segjast varla komast yfir að slá blettinn við húsið hjá sér, hvað þá að reyta mesta illgresið úr beðunum, og því rekur blaðamann í rogastans þegar Guðrún segir hæversldega að auk verðlauna garðsins heima fyrir hafi þau hjón einnig hugsað um landskika rétt fyrir utan bæinn síðustu ár. „Þarna höfum við hjónin fengið mikla útrás, safnað trjám og fleira skemmilegt," segir Guðrún og hlær. Hún segir gömlu bábiljuna um að ekkert þrífist hér á landi loks vera að hverfa og fólk eigi bara að vera duglegt að setja niður. Það komist fljótlega að því hve gefandi og áhuga- verð Þangað til þau flytja í blokk Guðrún segir að þótt alltaf sé gaman að fá viðurkenningu fyrir störf sín hafi þau aldrei unnið að því markmiði að hreppa einhver verðlaun þótt vitaskuld sé gaman að fá þau. „Við eigum eftir að halda ótrauð áfram í þessu - að minnsta kosti þar til kemur að því að flytja í bloJddna en það verður nú varla í bráð," segir Guðrún að lokum og er hún eflaust spennt að geta haldið áfram að dytta að garðinum og njóta sumarsins. karen@dv.is Samlynd hjón í fögrum garði Steinahæðin l garði þeirra hjóna ersvo sannarlega augnayndi Hver vinnur næst? Eins og sést á eftir- farandi umsögn þarf að huga að mörgu í fallegum garöi, spennandi veröur að sjá hver hlýtur verölaun nú isumar. Eigendur Ægisgrundar 16 fengu viö- urkenningu fyrir sérlega blómlegan og heimiiislegan garð. Snyrti- mennska og skemmtilega útfærður frágangur við garðinn. A baklóðinni rækta þau matjurtir og trjáplöntur [ skógræktarlandið. Snyrtimennskan er ekki einskorðuð við lóðina, heldur sést handbragð eigendanna úti við götu. Garðurinn fékk viðurkenningu fyrir 16 árum og honum hefur farið enn fram síðan með aukinni grósku og stöðugri natni eigendanna. Þótti þvf ástæða til að ítreka viðurkenninguna. Birkiaska Syndsamlegar sam iS bessu vandamali °9 1síssr imlokur eins og Þ* 9 smart í hönnun. Þu setu iipp^ } f’ Mí \ ''' \\ .w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.