Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Síða 31
V
DV
Fazmo
fara að slást
löglega
„Það eru einhverjar reglur fyrir
„grappling" á fazmo-síðunni,“ seg-
ir Ingvar Þór, einn af Fazmo-
mönnunum, en þeir hafa tekið
slagsmálin sín af götunni og fært
þau inn í íþróttasal. „Grappling"
mætti kalla glímutök upp á
íslensku og það sem er stundað er
svo kölluð uppgjafarglíma. Þá
glíma tveir einstaklingar á gólfinu
með það að takmarki að skella
hinum í lás eða kyrkingu og alveg
er bannað að kýla, sparka, bíta og
klóra. Þeir staðir sem hafa kennt
svonefnda gólfglímu á íslandi eru
helst júdófélögin og svo brasiliskt
jiu jitsu. „Það er myndskeið á síð-
unni af Halla-í Fazmo að glíma við
Snævar fyrrverandi íslandsmeist-
ara í júdó og rúmlega 3000 manns
hafa náð í það á einni viku,“ segir
Ingvar og efast ekki um hversu
vinsæl glíman geti orðið. Mynd-
böndin sem birtast á Fazmo er fag-
lega unnin, en þar er hægt að sjá
klipptar útgáfur og óklipptar. „Það
verður ekkert bara Halli sem á að
glíma heldur allir sem vilja,“ segir
Ingvar en á dagskrá á næstunni
eru ýmsar glímur. „í haust ætlum
Ætla að stunda glímuna.
við svo að halda mót, reyna að
hafa verðlaun og svona,“ en unnið
er að því að stofna samtök í kring-
um þetta sem viðurkennd yrðu af
ÍSÍ. Ingvar bendir öllum þeim sem
vilja koma að glíma eða læra
meira um þetta að senda sér eða
Halla tölvupóst á ingvar@fazmo.is
eða hallli@fazmo.is.
Leikkonan
Arnbjörg Hlíf
Dóttir bankastjórans
syrgir föður sinn sem
lést í hræðilegu
flugslysi.
ar
->