Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2005, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ2005 Síðast en ekki síst DV Flatmagað á Laugaveginum. DVmynd Valli Árnieinn íbrekkusöng „Já, nú styttist í brekkusönginn með miklu trukki," segir Árni Johnsen sem er á fljúgandi sigl- ingu þessa daganna sem og jafn- an. Verslunarmannahelgin nálgast óðfluga. Fastur liður eins og und- anfarna áratugi er brekkusöngur- inn frægi þar sem Árni Johnsen stjórnar miklum samsöng sem á sér engan sinn líka. Árni segir dúndrandi stemningu fyr- ir Þjóðhátíð í Eyjum nú sem oftast fyrr. Mikið um pantanir. „Allar leiðir á pampi. Mikið bókað: flug, Herjólfur... allt í góðum gír eins og vera ber.“ Ha? Róbert Marshall hljóp eitt sinn í skarðið fyrir Árna í forföllum. Að- spurður segir Árni ekki standa til Arni Johnsen athafna- maður Missir ekki af brekkusönnnnm hatt« /,rjQ «rr. að Róbert verði með að þessu sinni. „Neinei, ég er bara einn í brekkusöngnum." Hvað veist þú um RÚV 1 Hver er útvarpsstjóri RÚV? 2 Hvenær var Ríkis- útvarpið stofnað? 3 Hver var fyrsti útvarps- stjórinn? 4 Hvaða ár hóf Sjónvarpið útsendingar? 5 Á hvaða dögum og mán- uðum sendi Sjónvarpið ekk- ert út fram til 1987? Svör neðst á síðunni Hvað segir mamma? Ragnar er mikill gleði- gjafi sem kemur mömmu sinni alltaftil að hlæja," segir Guð- rún As- mundsdótt- ir, leikkona móðir Ragn- ars Kjartanssonar myndlistamanns. „Það er samt alltafnokkur alvara á bak við gaigopann, sem kemur fram í verkum hans. Það hefur alltafverið sterkur strengur á milli okkar. Ragnar vissi alltafhvað hann ætlaði, og sagði upp góðri vinnu til að hafa meiri tíma fyrir myndlistina. Sem barn var hann alvarlegur en hafði mikið ímyndunarafl.“ Ragnar Kjartansson er þekktast- ur sem söngvari hljómsveitarinn- ar Trabant og tók sér þá nafnið Rassi Prump. Nú virðist drengur- inn hafa skipt um stefnu og fékk nýlega frábæra dóma erlendra gagnrýnenda fyrir myndlistar- sýningu sem hann hélt undir Eyjafjöllum. G07T hjá Emilíu í Nylon að fara I nám og læra að setja gervineglur á aðra I Snyrtiskólanum. 1. Markús Öm Antonsson 2. Ári61930 3. Jónas Þorbergs- son 4.1966 5. Fimmtudaga og ekkert sjónvarp (júlí. Atli Þór Fanndal, ungur Reykvík- ingur, hefur sótt um starf útvarps- stjóra Ríkisútvarpsins. Hann telur sig hafa allt sem þurfi til að sinna starf- inu. Engar hæfnis- né menntunar- kröfur eru gerðar til umsækjenda. Hann sækir um starfið af fuJlri alvöru og segir að menn eigi ekki að sækja um stöður sem þeir telji sig ekki ráða við. „Ég sæki um þetta starf því ég tel að ég geti sinnt því," segir Atli Þór Fanndal 22. ára Reykvíkingur. „Ég veit að 22 ár em ekki hár aldur en ég hef hins vegar mikla reynslu á sviði fjölmiðlunar, stjómunar og menn- ingarmála." Atli hefur ýmsar hugmyndir um hvemig best sé að reka Ríkisútvarpið. „Það er hægt að hagræða án þess að skera niður í verkefnum. Best væri að reyna að minnka framleiðslu kostnað einstakra verkefna eins og gert er í einkageiranum. Svo hef ég hug- myndir um það hvemig megi finna nýjar tekjuleiðir." Atli er ekki ánægður með það hvernig staða útvarpsstjóra er aug- lýst. „Þegar ég sótti um stöðu út- varpsstjóra gerði ég um leið at- hugasemd við það hvernig að aug- lýsingu um ráðningu útvarpsstjóra er staðið. Mér finnst athyglisvert að þegar auglýst er æðsta staða innan þessarar stofnunar séu ekki gerðar neinar hæfniskröfur né krafa um lágmarksmenntum. Þetta er fyrir- tæki upp á þrjá og hálfan milljarð króna, sem að megninu til er feng- inn af skattpeningum lands- manna." Ferilskrá Atla Menntun: Foldaskóli1989 -1999 Nýsköpunl994 -1999 Framhaldsskólinn á Laugum 2000 - 2001 - 2002 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 2002 - 2003 Stúdentsprófi ekki lokið. Starfsferill (Upptalning): Fljótt og Gott Afgreiðsla I nætursölu 01.04-01.05 Castor Miðlun ehf Markaðs- og fram- leiðslustjóri 05.03 - 04.05 Félagsþjónusta Skagafjarðar Liðshjálp 06.03 - 08.03 Félagsþjónusta Skagafjarðar Forvarnir 06.03 - 08.03 Félagsþjónusta Skagafjarðar Verkstjóri (Vinnuskóla Skagafjarðar 06.02 - 08.03 Atli telur að þrjár ástæður geti legið að baki því að ekld séu gerðar neinar kröfur til umsækjenda um starf útvarpsstjóra. „Fyrir það fyrsta gæti verið að nú þegar sé búið að ráða í þessa stöðu og að sá aðilli uppfylli ekki neinar kröfur sem mættí gera. í öðm lagi gæti hugsast að menn væm hreinlega ekki búnir að setjast niður til að álcveða hvaða kröfur þeir vilji að útvarpsstjóri upp- fylli. í þriðja lagi gæti verið að þeir viti nákvæmlega hvað þeir vilja en gefa það hreinlega bara ekki upp." Á þriðjudaginn býðst lesendum DV einstakt tilboð,tveir fyrir einn á söngleikinn Annie sem sýndur er í Austurbæ þessa dagana. Til að fá tilboðið þarf að geyma blaðið og framvísa því í miðasölunni. Sýning- in Annie hefur slegið í gegn og fékk fjórar stjömur hjá^ gagnrýnanda DV þegar það var fmmsýnt. Söngleikurinn fjallar um munað-J arleysingjan Annie og er sagan sprottin upp úr kreppunni mikJu. Harold Gray teiknaði um áratuga- skeið myndasögu fyrir dagblöð vestanhafs um rauðhærða steplu sem lætur aldrei bilbug á sér finna. Myndasagan var afar vinsæl þegar í upphafi, ekki síst af því hún lýsti þolgæði og bjartsýni ungrar sögu- hetju þegar bölmóður ríkti vestan- hafs. Söngleikurinn var gerður eftir sögunni 1977 og hefur verið settur upp víða um heim utan Bandaríkj- anna, í Noregi, Annie Thelma Lind Waage fer með hlutverk Annie Svíþjóð og London. Sagan er Æfing á Annie Viðar Eggertsson er leikstjóri en þýðingin er eftir Gísla Rúnar Jónsson. skemmtfieg spennusaga sem endar vel, tónlistin er í anda krepp- unnar með léttu jassívafi. Sagan gerist í New York á kreppuárunum um 1930. Annie er 11 ára stúlka, ákveðin og hugrökk. Hún býr á munaðarleysingjahæli en foreldrar hennar skildu hana eft- ir ungbam á tröppum hælisins með brotið silfumisti um hálsinn. Annie er munaðarleysingi en samt ávallt bjartsýn og hana dreymir um betra líf. Sýningin sem lesendur DV fá tveir fyrir einn á er á þriðjudag- inn klukkan sjö. Þetta er tilvalið tækifæri til að fara með börnin og leyfa þeim að upplifa ævintýri Annie. Krossgátan Lárétt. 1 sker,4straum- ur, 7 spor, 8 yfirhöfn, 10 kjána, 12 blási, 13 vísa, 14 nálægð, 15 loga, 16 kjötkássa, 18 málmur, 21 fugl,22 harma,23 skraut. Lóðrétt: 1 eiginkona, 2 tré,3 stöðuglyndi,4 haf- dýpi, 5 kraftar, 6 fjör, 9 smá, 11 hótar, lösvala- drykkur, 17 elska, 19 svif- dýr, 20 gagn. Lausn á krossgátu •}0U oz 'nj? 61 'ise L i 'so6 g 'jbu69 u '||}j| 6 'd?} 9 'go s 'dnípujöaj y 'e}sajde>js £ 'dso z 'rug t majgpi ■}und £Z 'B}ns zz '10J}S iz 'ujýf 81 's?|6 91 'pja s 1 'pu?u t- l 'ga}s £ 1 'jnd j t 'd9|6 01 'edjn 8 'jaJ>|s l Tsoj y 'sog t þÖVAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.