Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.02.1922, Blaðsíða 5

Símablaðið - 01.02.1922, Blaðsíða 5
f SIMABLAÐIÐ -: MÁLGAGN F. í. s. r~—- VII. árg. Reykjavík, febrúar 1922. 1. tbl. Síraablaðið kemur út annan hvern mánuð. — Áskriftargjald 4 kr. á ári. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Schram, Stýrimannastíg 8, sími 474. Utanáskrift blaðsins: Símablaðið, Box 575, Reykjavík. Simablaðið, áð u r Elektron. Á aðalfundi Félags íslenskra síma- manna var samþykt að skifta um nafn á málgagni félagsins, og í stað »Elek- tron« að kalla það »Símablaðið«. Vér höfum tekið eftir því undanfarin ár, að nafn blaðsins lét illa í íslenskum eyrum og var oft og tiðum afbakað. Ennfremur þykir oss að mörgu leyti heppilegra, að nafn blaðsins bendi á hverjir að því standa. Vér vonutn að öllum vinum blaðsins falli vel breyting nafnsins, og treystum því, að þeir sýni því hina sömu velvild og stuðning, sem undanfarin ár. Það eru margir örðugleikar á því fyrir fámenna stétt, að gefa út blað, og sökum sérstaklega mikils kostnaðar á öllu, sem að útgáfunni lýtur, urðum vér nevddir til, að láta það koma út aðeins ársfjórðungslega siðasta ár. Prátt fyrir það, þótt kostnaður hafi lítið lækk- að, höfum vér ákveðið, að lata síma- blaðið koma út annan hvern mánuð þettá árið. Blaðið mun, eins og undanfarið, berj- ast fyrir öllum áhugamálum símastétt- arinnar, og flytja fræðandi greinar um símamál og annað það, sem að gagni getur komið símamönnum. Vér viljum hér með alvarlega skora á símamenn, að styrkja blaðið sem allra best, og ræða þar öll áhugamál sín, sem við kemur stéttinni. Vér væntum einnig að allir félagsmenn geri sitt til að útbreiða blaðið og útvega því kaup- endur; því það á ekki að eins erindi lil símamanna, heldur og til allra þeirra, sem að einhverju leyti vilja kynnast símamálum og fylgjast með framförum þeim, sem gerðar eru í síma- og raf- magnsfræði. Vér munum kappkosta að flytja greinar í þeim efnum, eins og undanfarin ár, einkum sniðnar fyrir þá, sem ekki hafa átt kost á að leggja sér- staka stund á þær greinar. Að svo miklu leyti sem efnin leyfa, verða birt- ar myndir til skjringar. Til þess að blaðið geti orðið sem fjölbreyttast og við sem flestra hæfi, er nauðsynlegt að fjölga kaupendum, og í trausti þess, að símamenn vinni ótrauð- lega að því, sendum vér jafnframt blað- inu áskrifendaeyðublöð, sem vér vonum að verði endursend með nafni nýs kaupanda. Ritstj.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.