Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.02.1922, Blaðsíða 9

Símablaðið - 01.02.1922, Blaðsíða 9
SÍMABLAÐIÐ 5 Félagsmál á víð og dreif. I. Fyrir nokkrum árum birtist grein í Elektron, með fyrirsögninni »Hugvekj- ur«. Höf. er þar að benda á, hve mis- ráðið það sé, þegar blöð sérstakra stétta eru nær eingöngu skrifuð af ör- fáum mönnum, og það þá helst þeim, sem hafa með höndum velferðamál stéttarinnar. Hann er að hvetja síma- menn til að skrifa um áhugamál sin í félagsblaðið og sýna fram á hve mikil nauðsyn það sé, að skoðanir sem flestra heyrist í einstökum málum, sem stéttina varða. Mér finst það vel til fallið, að fyrsta blaðið með þessu nýja nafni flytji einnig nokkrar hugvekjur til (élagsmanna, bæði hér í Rvík og þó sérstaklega úti um land. Eigi það að ganga svo til framvegis, eins og að undanförnu, að nær eingöngu þeir menn, sem eru i stjórn F. í. S., skrifi í málgagn félagsins, verður til- gangi blaðsins aldrei náð, nema að hálfu leyti. Ekkert er meir drepandi fyrir stjórn í einu félagi en það, að heyra aldrei raddir frá félagsmönnum að neinum mun, vita aldrei vilja þeirra og afstöðu til þýðingarmikilla félagsmála. En við þetta hefir stjórn F. í. S. orðið að búa að mestu leyti til þessa. F’að er eins og félagsmenn haíi tekið ástfóstri við þögn- ina. Og ef nokkuð verður til að kæfa þennan félagsskap, þá óltast eg að það verði þögnin, — ókunnugleikinn milli félaga hér í Rvík og úti um land, — tómiætið, sem hefir náð svo miklum ítökum í þessum félagsskap. Á því höfum við þegar fengið að kenna — áþreifanlega. .Símablaðið' ætti að vera í því frá- brugðið ,Elektron‘, að velferðamál síma- mannastéttarinnar yrðu rædd þar af fleirum en hingað til. Fað myndi verða stéttinni til ómetanlegs gagns. Þá þyrfti stjórn símamannafélagsins ekki að ganga gruflandi að því, hver vilji manna væri, eða hvort áhugi félagsmanna væri svo mikill, að hægt væri að treysta honum ef mikið lægi við. Hingað til hefir tóm- Iætið verið svo mikið, að það hefir ekki verið hægt. Og á því skerinu hefir eilt þýðingarmesta félagsmálið strandað, hvort sem félagið á eftir að bera gæfu til að bjarga því þaðan. — Eg vildi þá fara nokkrum orðum um ýms mál, sem F. í. S. og síma- mannastéttina yfirleilt varða, og eg vona, að félagar úti um land birti skoðanir sínar á þeim hér í blaðinu, áður en langt um líður. II. Fél. ísl. símamanna, eins og öll sams- konar stéttafélög, er stofnað í þeim til- gangi, að efla stéttina og gæta hagsmuna hennar út á við. Skilji slíkt félag ekki köllun sína, eða sé það ekki fært um að gæta réltar og hagsmuna stéttarinn- ar, er það þýðingarlaust. Hið fyrsta, sem krafist verður af því, er svo mikill þroski, að það geti leilt til heppilegra lykta þau mál, sem annars yrðu hnekkir fyrir tilverurétt og framtíðargetu þess. Slíkt mál höfum við nú á dagskrá i þessu félagi. Stundalöfiumálið svokallaða er ekki leitt til lykta. Enn er ekki séð fyrir það, hvort F. í. S. á um ókomna tfma að vera vöggubarn, eða félag sem hefir þrótt og samheldni til að halda fram rétti og hagsmunum félagsmanna,

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.