Símablaðið - 01.02.1922, Side 6
2
SÍMABLAÐIÐ
Aðalfundur
í Félagi ísl. símamaDiia var haldinn
þriðjudaginn 7. febrúar 1922 í Iðnó.
Fundinn setti form. félagsins, Gunnar
Schram, en stakk upp á Friðbirni Að-
alsteinssyni sem fundarstjóra, og var
það samþykt.
Pá var Iesin upp fundargerð síðasta
fundar og hún samþykt. Sömuleiðis
fundargerð frá stjórnarfundi og í öðru
lagi frá sameiginlegum fundi póst- og
símafélagsstjórnanna. Á þeim fundi hafði
verið rætt um samvinnu milli þessara
tveggja félaga, til að fá lögum um Líf-
eyrissjóð embættismanna breytt, og hafði
þar verið ákveðið, að halda sameigin-
legan fund í félögunum til að ræða um
Lífeyrissjóðinn.
Því næst las form. upp umboð frá
21 félaga utan af landi, til að fara með
atkvæði þeirra á aðalfundi.
I. mál á dagskrá. Starfsemi fél. á síð-
asta ári. Fór form. nokkrum orðum um
hana. Taldi hann félagslifið á árinu
betra en nokkru sinni áður, og að ýmsu
leyti merkilegra. Félagið hefði haft mörg
þýðingarmikil mál á dagskrá, svo sem
stundatöflumálið, sumarleyfin, Lifeyris-
sjóðinn o. fl. Starfsemi fél. í þessum
málum væri að vísu ekki farin að bera
sýnilegan árangur í öðru en því, að fé-
lagið hefði orðið samfeldari heild. En
seinna meir myndi það koma enn betur
í ljós, að sérstaklega stundatöflumálið
hefði gert fél. ómetanlegt gagn.
Ennfremur hefði félagið haldið marga
skemtifundi á árinu, sem hefðu átt góð-
an þátt í því, að glæða félagsskapinn.
Sagðist hann óhikað líta björtum augum
á framtíð félagsins.
Þá skýrði gjaldkeri frá fjárhag félags-
ins. Tekjur á árinu höfðu orðið kr.
1205.06, þar af í sjóði frá f. á. (1920)
kr. 661.00.
Gjöld fél. á árinu 1921 voru samtals
kr. 689.39. Þar á meðal greiddar eftir-
stöðvar af gömlu láni frá landssímanum,
kr. 321.02, og styrkur til Elektrons, kr.
150.00. í sjóði við árslok 1921 voru þá
kr. 515.67, en auk þess kvað hann tals-
vert af árstillögum félagsmanna ógreidd
ennþá.
II. Lagabreyting. Viggó Snorrason
hafði lagt svohljóðandi tillögu um breyt-
ingu á 7. gr. félagslaganna fyrir fundinn:
»1. málsgrein 7. gr. félagslaganna hljóði
svo: í stjórn félagsins skulu vera 5
menn: form., gjaldkeri, ritari og 2 með-
stjórnendur.« Var þessi lagabreyting
samþ. með öllum gr. atkv.
III. Kosningar. Þá var kosið í stjórn,
og hlutu þessi kosningu: Form. Gunnar
Schram, Andrés G. Þormar, HaHgrímur
Matthíasson, Ásta Jónsdóttir og Kristín
Sigurðardóttir.
í varastjórn voru kosnir Sig. Dahl-
mann og Snorri Arnar.
Endurskoðendur reikninganna Snorri
Arnar og Viggó Snorrason.
í fulltrúaráð starfsmanna ríkisins:
Gísli J. Ólafson, Gunnar Schram,
Andrés G. Þormar, Hallgr. Matthíasson
og Friðbjörn Aðalsteinsson.
Ritstj. Símablaðsins: Gunnar Schram,.
Snorri Arnar og Andrés G. Rormar.
ÍV. Elektron. Ritstjórinn skýrði frá
því, að fjárhagslegur halli myndi ekki
verða á rekstri blaðsins, þrátt fyrir það
hve pappír og prentun væri ennþá dýr,
og lagði hann til, að blaðið kæmi út
annan hvern mánuð framvegis.
Var þá rætt um breytingu á nafni
blaðsins. Voru allir sammála um það*
að núverandi nafn væri óhæft lengur.;
Margir stæðu í þeirri meiningu, vegpa