Símablaðið - 01.02.1922, Síða 13
S í M A B L A Ð I Ð
9
Áður en Hnurnar koma inn í þessa
miðstöð, Hggja þær í sérstakt skiftiborð,
sem kallað er »Stumfordeler« eða þögla
borðið. Er það líkt og vanalegt skifti-
borð, að öðru leyti en því, að stúlkurn-
ar, sem við það vinna, nota engan
talsíma.
Þegar einhver hringir upp landssím-
ann, lýsir lampi í þögla borðinu, og
setur þá símastúlkan þann notanda
undir eins í samband við eitthvert
borðið í miðstöðinni, og þar er honum
þá fyrst svarað.
Þögla borðið er notað til þess að
skifta vinnunni jafnt milli stúlknanna í
miðstöðinni, því ofl á tíðum hringja
margir upp í einu, en stúlkurnar við
þögla borðið sjá strax hvar minst er
að gera og gefa þá samband þangað.
Þetta er mjög golt fyrirkomulag, því á
þennan hátt er nokkurn vegin hægt að
skifta vinnunni jafnt milli símastúlkn-
anna og fyrir bragðið þurfa notendurnir
sjaldan að bíða nokkuð, eflir að þeim
sé svarað.
Þögla borðið er í miklu uppáhaldi
bjá simastúlkunum, því þó þeim sé
flestum liðugt um málbeinið, þykir þeim
þægilegt að geta unnið þegjandi einstaka
sinnurn.
Við hlið miðstöðvarherbegisins er stór
salur og er langlínuborðunum þar fyrir
komið, og fer afgreiðsla samtalanna þar
fram. Þaðan liggja línur út uin alla
Danmörku, og ennfremur hefir landssím-
inn beint talsímasamband við helstu
borgir nágrannalandanna, t. d. Kristi-
aniu, Stockholm, Hamborg, Berlín o. s,
frv. Yíir dönsku sundin hafa síðustu
árin verið lagðir margir og ágætir sæ-
simar, svo að samtöl við nágranna-
löndin heyrast eins vel og innanbæjar-
samtöl.
Eins og gefur að skilja, eru útlanda-
línurnar mjög dýrar, og er því um að
gera að nota þær eins mikið og hægt
er. Þar sem því hefir verið við komið,
hafa verið settar upp huldulínur. Pannig
eru t. d. 3 talsímasambönd á 2 línum
til Berlin og þar að auki eitt ritsíma-
samband.
Ritsímasambandið er notað til að
senda á því allar talsímapantanir milli
stöðvanna, og ennfremur alt það, er
við kemur afgreiðslunni. Á þennan hátt
er hægt að nota allar línurnar stöðugt
undir samtöl, því um leið og eitt samtal
fer fram, koma stöðvarnar sér saman
um, með ritsímanum, hvaða samtal
skuli afgreiðast næst, og líða því sjaldan
nema nokkrar sekúndur milli samtal-
anna, því vanalegast er meira en nóg
að gera á þessum línum.
Má viða nota ritsímann meira í þarfir
talsímans en gert er, og vil eg skjóta
því til stöðvarstjóra landssímans, að
athuga, hvort það geti ekki oft orðið
timasparnaður, að senda talsímatilkynn
ingar með ritsímanum, og það annað,
sem afgreiðslunni viðkemur. (Frh.)
Bókasafn F. í. S.
Landssímastjórinn hefir tilkynt stjórn
félagsins, að það fengi til umráða eitt
herbergi undir bókasafnið, þegar lokið
væri breytingu stöðvarhússins. Herbergið
verður á þriðju hæð, og er nægilega
stórt fyrir bókasafnið og lesstofu, og
mun það verða gert sem vistiegast, svo
að símamenn noti það fremur.