Símablaðið - 01.02.1922, Qupperneq 16
12
SÍMABLAÐIÐ
IV. Línan skift — L1 við áhaldið,
L* við aukabj.
V. — — — L2 við áhaldið,
L1 við aukabj.
þá er þessi nýi skiftir útbúinn með
tveim nýjum setningum, sem ætlaðar
eru vegna línurannsókna, sem sé:
VI. Linan rofin til beggja handa.
VII. Línan sveifluð til beggja handa.
Setningarnar fara fram með þrýsti-
hnöppum, sem geta eftir vild verið þann-
ig, að þeir stöðvist inni eða hrökkvi út
aftur, þegar þeim er slept. Hnapparnir
fyrir tvær siðasttöldu setningarnar eru
ávalt þannig, að þeir hrökkva út sjálf-
krafa um leið og þeim er slept.
Hnapparnir, neðstu í röðinni, sem
eru fyrir áhaldið og aukabjölluna, eru
ávalt þannig, að þeir staðnæmast.
Hnappar þeir, sem skifta línunni (þeir
eru í miðjunni), geta verið útbúnir á
hvorn hátt sem er, eftir vild. Á stöðv-
um, er hafa lítil símaviðskifti, verða
hafðir hnappar sem hrökkva til baka,
en á stærri stöðvum verða notaðir
hnappar, sem staðnæmast inni.
Skiftitæki þetta er búið til úr 3/i þuml.
þykku mahogni. Til þess að verja þræð-
ina, er liggja frá skrúfunum efst á skifti-
tækinu og niður í fjaðraskiftarana, eru
skrúfaðar tréplötur aftan á bakið, bæði
að ofan og ueðan, svo að um miðjuna
verður áhaldið laust við vegginn. Áhald-
ið er aflæst og fylgja því tveir lyklar.
Hnapparnir eru festir á mahogniplötu,
sem er tylt með 4 koparskrúfum, og
má, með því að taka þá plötu út, hæg-
lega komast að öllu verki skiftisins, ef
viðgerðar skyldi þurfa. Á þennan hátt
er einnig mjög hægt að eftirlíta skifti-
tækið, án þess að taka það niður af
veggnum.
Stöðvarstjórum, sem fá þessa gerð
skiftitækja, mun verða fyrirskipað að
hafa þau ávalt aflæst þær stundir, sem
stöðin á ekki að vera opin, til þess að
varna óviðkomandi mönnum að eiga
við þau, og einnig til þess að vernda
þau frekar fyrir raka.
Eins og drepið var á, eru átta skrúfur
utan á skiftitækinu að ofan, sem eru til
þess að tengja það við línur og áhöld.
Skrúfurnar tvær, sem eru lengst til
vinstri, eru fyrir línu nr. 1 (þá sem
kemur frá gæslustöðinni), og þær næstu
fyrir línu nr. 2. Næstu tvær eru fyrir
aukabjölluna og þær, sem eru hægra
megin, eru fyrir talsímatæki stöðvar-
inDar.
Taugakerfi skiftitækisins og notkun
þess skýrir meðfylgjandi teikning.
Umburðarbréf
frá landsímastjóranum.
*/i, nr. 1. Stöðvarstjórinn R., ís., A.,
Sf. Auglýsið eftirfarandi á stöð yðar:
Varðstjórastaða við ritsímann í Reykja-
vík er laus til umsóknar. Laun samkv.
launalögunum. Umsóknir sendist lands-
símastjóra fyrir 8. þ. m.
17/i, nr. 2. Frá og með deginum á
morgun, 18. janúar, verður landsíma-
stöðin á Varmá 1. fl. B.
24/i, nr. 3. Stöðvarstjórinn R., ís., A.
og Sf. Auglýsið á stöð yðar eftirfarandi:
Símritarastaða á ísafirði er laus til um-
sóknar. Umsóknir sendist landssímastj.
fyrir fimtudagskvöld, 26. þ. m.
Áf ýmsnin ástæönm hefir útkoma þessa
tölublaðs tafist mjög, en blaðið mun fram-
vegis koma út reglulega, annan hvern mánuð.
Prentsmiðjan Gutenberg.