Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2005, Qupperneq 23
r*V Sport
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST2005 23
Flottur fyrirliði ÓliStefán Flóventsson
kom sínum mönnum yfir 11-0 og átti slöan
mjög góöan leik i vörn Grindavikur.
Zebina
bjartsýnn
Franski, hægri bakvörðurinn
Jonathan Zebina er bjartsthm á
tímabilið hjá Juventus. Hann telur
að liðið eigi góða möguleika á að
hrósa sigri, bæði í ítölsku deild-
inni og Meistaradeildinni. Hann
segir að með tilkomu Patricks
Vieira á miðjuna sé búið að bæta
þann veikleika sem háði iiðinu á
síðasta leiktímabiii. „Vieira er |
einmitt leikmaðurinn sem vant-
aði £ liðið. Hann er kominn með
aukinn kraft og smellpassar inn á
miðjuna. Með tilkomu hans get-
um við sett stefnuna á að vinna
alla þá bikara sem í boði eru. Við
förum í alla leifci með það að
markmiði að sigra," sagði Zebina
en hann reiknar með að baráttan I
um meistaratitiiinn muni standa
milli AC Milan, Inter og Juventus.
íslenska liðið
íníundasæti 1
íslenska piltalandsliðið í
handbolta lagði ísrael að velli í
leiknum um níunda sætið á
heimsmeistaramóti 21 árs iiða í
handknattleik í Ungveijalandi á
laugardaginn, 35-32. Ásgeir Öm
Hallgrímsson, sem hefur verið
besti leikmaður íslenska liðsins á
mótinu, var markahæstur í ís-
lenska liðinu með 11 mörk auk 10
stoðsendinga en Emir Amarson
og Andri Stefan komu næstir með
sex mörk. Björgvin Gústavsson
varði 11 skot í marki íslands og
Davíð Svansson fimm.
Owen orðinn
áhyggjufullur
Michael Owen er sagður
áhyggjufullur yfir stöðunni sinni,
en framtíð hans hjá Real Madrid
er enn óljós. Sven-Göran Eriks-
son, þjálfari enska Iandsliðsins,
vonast til þess að mál Owens
skýrist sem allra fyrst þar sem
hann er mikilvægur fyrir England. j
„Ég vonast til þess að Owen nái
að fá sín mál á hreint sem fyrst. |
Hann mun örugglega fá að spila
hjáRealMadridefhannfærtæki- I
færitilaðsannasigþvíhanner '
frábær leikmaður og sýndi það á
síðustu leiktíð að hann skorar ef
hann færi tækifæri. Kæmi hann til
Englands á nýjan leik yrði hann
lykilmaður, sama hjá hvaða liði
hann væri. Hann er markaskorari
af guðs náð. En það er erfitt fyrir
hann að komast í byrjunarliðið ,
hjá Englandi ef hann verður ekki í; j
nægilega góðri
leikæfingu, því
Jermain Defoe
er í toppformi
og verður það
eflaust
áfram."
Framarar ætla enn eitt árið að berjast við falldrauginn á lokasprettinum
Utanlandsferð í boði og Grindavík vann 3-1 sigur
„Það hefur oft verið sagt um okkur að við berjumst til síðasta
manns og ég held að við höfum lagt okkur alla í þetta í dag,“
sagði Óli Stefán Flóventsson eftir mikilvægan 3-1 sigur á Fram í
Grindavík í gær. Leikmenn Grindavíkur fá líka góðan bónus fyr-
ir að halda sér uppi því allt liðið fær að launum utanlandsferð.
Grindvíkingar hafa ekki sagt sitt
síðasta í faUbaráttunni og gerðu fólki
það ljóst í gær að liðið ætlar sér ekki
að taka upp á því nú að falia í fyrsta
skipti í sögu félagsins. Sigur þeirra á
Fram í gær var sannkallaður vinnu-
sigur og hann kom á besta tíma því
sigurinn þýðir að Fram er komið í
bullandi fallbaráttu, enn eina ferðina.
Það var jafnræði með liðunum í
fyrri hálfleik en það voru heima-
menn sem skoruðu fyrsta markið og
það gerði Óli Stefán Flóventsson eft-
ir hornspyrnu. Heimamenn fengu
svo tækifæri til að bæta við marki
þegar brotið var á Guðmundi
Bjarnasyni í vítateig gestanna. En
eins og svo oft áður varði Gunnar
Sigurðsson vítaspyrnuna frá Eyþóri
Atla Einarssyni. EkJd fyrsta víta-
spyrnan sem Gunnar ver á ferlinum
og eflaust ekki sú síðasta. Gestimir
tóku þá við sér en tókst hins vegar
ekki að skapa sér alvöru marktæki-
færi. Þvert gegn gangi leiksins skor-
aði svo Óskar Örn Hauksson eftir vel
útfærða aukaspyrnu og staðan 2-0 í
leikhléi.
Seinni hálfleikur var ekki gamall
þegar gestirnir fengu vítaspyrnu eft-
ir að boltinn hafði farið í hönd Sinisa
Kekic. Hans Mathiesen urðu ekki á
nein mistök og skoraði hann af
mildu öryggi. Eftir markið virtust
heimamenn ætía að veija forystuna
með kjafti og klóm því þeir vörðust
af miklum móð og sóttu nánast á
tveimur mönnum. Þegar leit út fyrir
að heimamönnum ætíaði ekki að
takast að halda þetta út skoraði Paul
McShane, þvert gegn gangi leiksins.
Fyrsta markskot Grindvíkinga í
seinni hálfleik staðreynd.
Grindvíkingar em enn í fallsæti
þegar tveir leikir em eftir en nú
munar aðeins einu stigi á þeim og
ÍBV og síðan eru aðeins tvö stig í
Framara.