Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Side 3
DV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 3
Ekkert gæludýr
„Nei, ég á ekkert gæludýr."
Kristján Kristjánsson
verslunarstjóri.
„Nei, \
frekar vil ég
hund."
Tamara La-
terashvili
veitinga-
kona. y
Vegna umfjöllunar um slæma meðferð á köttum vildi DV vita hvort kattaeign
væri almenn meðal fólksins á götunni.
„Nei, ég
þoli ekki ketti."
Hafdís Ingvars-
dóttir kennari.
0TGísli^
W . M?rteinn mætti
<,Jr* rssuri 1 síðustu
vikukomþað átakan
ekkAilh,?5 að-hann e3
1 sla3im
Hann virkaði ein-
\ hvernveginn núm-
\ erioflítillí
\ djobbið.“ \
Það var tímanna tákn að Gísli Marteinn Baldursson
og Stefán Jón Hafstein skyldu koma og kveðast á um
pólitík í sjónvarpinu um daginn: tvær af skærustu stjörn-
um ljósvakans komnar á bólakaf í pólitík. Sjónvarps-
stöðvarnar eru uppeldisstöðvar ráðamanna framtíðar-
innar. Nú þurfa menn fyrst og fremst að kunna að brosa.
f ailt sumar stóð yflr vel hönnuð áróðursherferð sem
átti að sannfæra okkur Reykvíkinga um að Gísli Mart-
einn sé hinn ákjósanlegi borgarstjóri. Rökin? Það vantar
bros í Reykjavík, hljómaði ein fyrirsögnin.
Gísli Marteinn er sérlega viðkunnanlegur ungur
maður. Með faliegt bros og hlýlega framkomu. Hann
hefur að vísu sagt í viðtali (á Stöð 2) að hann hafi
engin málefni - nú snúist þetta um persónur.
Gísh Marteinn á allt gott skilið en hann mun
aldrei leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík til valda.
Til þess er hann helsti reynslulítiU á vettvangi borg-
armála og aUtof hægrisinnaður, bænheitur frjáls-
hyggjumaður og uppeldissonur hins ágæta dr.
Hannesar H. Gissurarsonar.
Samanburður fylgismanna Gísla Marteins við
Davíð Oddsson er út i hött. Jú, Davíð varð borgar
stjóri 34 ára, en þá hafði hann verið borgarfuUtrúi í
heil 8 ár, bæði í meirihiluta og minniMuta. Gísli
Marteinn hefur verið varaborgarfulltrúi í 3 ár,
og hafði sáralítið tU hans sést á þeim vett
vangi fyrr en á forsíðum glanspressunnar í
sumar.
Ég kaus Davíð Oddsson í hinu sögu-
lega prófkjöri 1981, þegar hann lagði Al-
bert heitinn Guðmundsson (og Markús
örn!) og tryggði sér
leiðtogasætið. Síst
langar mig að vera
meinyrtur í garð
Gísla Marteins, en
ósjálfrátt koma upp í
hugann hin fleygu orð
sem kempan Lloyd
Bentsen notaði á hinn
seinheppna Dan Quayle, sem
hafði vogað sér að líkja sjálfum sér við John F.
Kennedy: Senator, þú ert enginn Jack Kennedy.
Nei, Gísli Marteinn er enginn Davíð. Ekki enn
þá. Kannski einhvern tímann: þegar hann hefur puð-
að í pólitfldnni í nokkur ár, komið sér upp mál-
efnum og stefnu, sett sig inn í málaflokkana,
öðlast innsýn í það flókna gangvirki sem
Reykjavíkurborg óneitanlega er.
Þegar Gísli Marteinn mætti dr. Össuri í
síðustu viku kom það átakanlega í ljós að
hann er ekki tilbúinn í slaginn. Hann virk-
aði einhvem veginn númeri of lítill í djobbið.
En kannski seinna.
a.lla.r i
Hrafn Jökulsson
Spunapólitík
dagsim
Fljótlega kom í
ljós til hvers ref-
arnir voru
skorn-
ir.
Það verður æ algeng-
ara að sjáist merki um
spuna í íslenskri pólitík,
það er að segja hannaða
atburðarás sem leiðir til
fyrirframgefinnar niðurstöðu, en
þvi samt haldið fram að atburð-
irnir séu innbyrðis ótengdir og að
niðurstaðan sé alger tilviljun. Til
þessa ráðs er gripið af þeim aug-
ljóslegu ástæðum að menn vilja
ekki segja berum orðum hvað til
stendur og telja nauðsynlegt
að villa um fyrir almenn-
ingi.
Ráðning ótvarps-
stjóra fyrr í sumar fell-
ur að minu mati undir
spuna. Birt var auglýsing
um starfið, sem var satt að
segja furðuleg, einkum vegna
skorts á kröfum um menntun í
starfið. Það vakti grunsemdir
um að lýsingin væri sniðin utan
um fyrirframákveðinn umsækj-
anda.
Meðal umsækj-
enda voru vel mennt-
aðir og reyndir
nenn. Þa
má nefna Sig-
rúnu Stefánsdóttur,
Tryggva Gíslason,
Birgi Guðmundsson og
Elínu Hirst. Gengið var
framhjá þeim og
skýringar eru afar fá-
tæklegar. Það er óút-
skýrt hvers vegna
Páll Magnús-
son var val-
inn umfram
aðra.
Annað dæmi um
spuna er yfirlýsing Áma
Þórs Sigurðssonar, borgarfull-
trúa þess efnis að hann sæktist
ekki eftir 1. sæti á lista Vinstri
grænna fyrir næstu borgarstjórn-
arkosningar heldur öðru sæti.
Svandís Svavars-
dóttir, sem áður
hafði lýst því yfir að
hún ætlaði ekki að
fara i framboð, sneri
við blaðinu og ákvað að
sækjast eftir efsta sætinu.
Björk Vilhelmsdóttir, borgar-
fulltrúi ákvað í framhaldinu að
gefa ekki kost á sér. Leikflétt-
an gekk upp.
Síðasta dæmið um spuna er
brottför Davíðs Oddsson-
ar úr landsmálunum.
Birgir ísleifur, seðla-
bankastjóri, sem um
nokkurn tíma hefur
getað hætt og farið á
eftirlaun, kemst að
þeirri niðurstöðu af
algerri tilviljun að
nú sé heppilegur
timi til þess að
hætta og kaupið er
hækkað af annarri
tilviljun og af algerri
tilviljun er það allra mál að
Geir Haarde verði næsti for-
maður Sjálfstæðisflokksins og
Þorgerður Katrín næsti varafor-
maður.
Og örugglega var það einskær
tilviljun að Davíð tilkynnti
ákvörðun sína daginn eftir að for-
sætisráðherra hafði
kynnt tillögur
ríkisstjórn-
arinnar um
ráðstöfun
Símapening-
anna.
HALLÓ
REYKJAVÍK!
FOREX hefur opnað útibú á íslandi! Við erum stærsta fyrirtækið í almennum
gjaldeyrisviðskiptum á Norðurlöndum, með 72 vel staðsett útibú í Svíþjóð,
Danmörku, Noregi og Finnlandi.
Við höfum stundað gjaldeyrisviðskipti í yfir 40 ár -
við kunnum á gjaldeyrinn!
• 70 gjaldeyristegundir á lager
• Samkeppnishæft gengi og góður opnunartími
• Það kostar ekkert aukalega að kaupa af okkur erlendan gjaldeyri og ef þú
geymir FOREX-kvittunina þína geturðu skipt aftur til baka ókeypis
• Sendu peninga um víða veröld á aðeins 10 mínútum! Við sjáum um
peningasendingar með MoneyGram og FOREX Transfer
Verið hjartanlega velkomin til FOREX í Bankastræti 2, Reykjavík
Opnunartímar: mán-fös 10-18, lau 10-16 og sun 10-14
Þú getur líka hringt í okkur í síma 551 7755 og lagt inn pöntun og við
höfum gjaldeyrinn tilbúinn fyrir þig þegar þér hentar