Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 Fréttir JJV Nýr hjá krossinum „Ég er mjög spenntur, hlakka til að takast á við þetta," segir Kristján Sturlu- son sem hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Rauða kross íslands. „Þetta er hugsjón sem maður vill vinna að," bætir hann við. Kristján hefur starfað lengi hjá samtökunum. „Já, næstum því samfellt frá 1994, bæði sem starfsmað- ur og síðar sjálfboðaliði. Ég þekki því samtökin vel og vissi að það væri áhuga- vert." Kristján tekur við starfinu í lok október af Sig- rúnu Árnadóttur sem hefur gegnt því síðustu tólf ár. Starfsmenn Rafteikningar hafa undirbúið afmælisferð til Búlgaríu lengi. Þeir segja i dreifibréfi að vanefndir Úrvals-Útsýnar stöðvi þá ekki í að fara og hafa því tekið heila þotu á leigu. Um hundrað sæti eru laus og ættingjum og vinum er boðið með í fjögurra daga ferð, fyrir þrjátíu þúsund. Ma potu á leigu til að komast í alaiælisterð Klipptu af 11 bílum Það má búast við því að nokkrum Hafnflrðingum hafi brugðið heldur illa í brún í gær- morgun þegar þeir hugðust leggja af stað í vinnuna á bíl- um sínum. í fyrrinótt klippti lögreglan í Hafnar- firði bílnúmer af ellefu bíl- um. Ástæðan var að eig- endur bílanna höfðu ekki greitt lögboðnar tryggingar af þeim. Að sögn lögregl- unnar eru teknar rassíur í þessum málum af og til og er unnið út frá lista frá tryggingafélögunum, svokölluðum „tossalista." Austfirðir hækka mest Laun hækkuðu lang- mest á Austfjörðum fyrstu sex mánuði ársins 2004 og 2005, eða um 17,19 pró- sent. Þetta kemur fram í yfirliti sem hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélagajj hefur tekið saman. Ástæðan er hinar miklu virkjana- og stóriðju- framkvæmdir þar eystra. Launahækkunin er hins vegar langminnst á Vest- fjörðum og Norðurlandi Vestra eða undir fimm pró- sent á báðum stöðum. Næstmest hækka launin á höfuðborgarsvæðinu ef Reykjavík er undanskilin, um 12,07 prósent. Láta ekki stööva sig og taka þotu á leigu Úrval-Útsýn treysti sér ekki til að skipuleggja ferð og því tók fyrirtækið þotu á leigu hjá Loftleiðum með j tæplega 200 sætum. Starfsmenn Rafteikningar á ferð i Kárahnjúkum í sumar Nú erþað Búlgaria en þangað ætla starfsmenn að fara þann 20. september. Mynd af heimasíðu Rafteikningar. Starfsmenn Rafteikningar hf. hafa tekið á leigu flugvél hjá Loft- leiðum og bjðða nú ættingjum, vinum og velunnurum starfs- manna flug með gistingu til Sofíu í Búlgaríu fyrir innan við 40 þúsund krónur. í dreifibréfi sem Rafteikning hef- ur sent út segir að vegna ófyrirsjáan- legra vanefnda ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar sem tekið hafði að sér að skipuleggja ferðina bjóðist nú ferð til Búlgaríu fyrir 30 þúsund á mann, með flugvallasköttum. Sé tekin gisting á hóteli í fjórar nætur kosti ferðin 39 þúsund. Látum ekki stoppa okkur Um er að ræða afmælisferð fyrir- tækisins með maka en farið verður þriðjudaginn 20. september rétt fyrir miðnætti en komið til baka sunnudaginn 25. september að kvöldi. Vélin tekur tæplega 200 manns en starfsmenn Rafteikningar með mökum eru liðlega 90. Gunnar Ingi Gunnarsson forstjóri Rafteikn- ingar vill ekki ræða vanefndir Úr- vals-Útsýnar en segir að það verði saga sem sögð verði síðar. „Við látum ekki neitt stöðva okkur í að fara þessa ferð og því leit- uðum við annarra leiða. Við erum með vélina á leigu og bjóðum þeim sem vilja sætið á þijátíu þúsund. Um það er h'tið annað að segja," segir Gunnar Ingi og vill ekki gera mikið úr þeirri fjárhagslegu áhættu sem felst í að fylla ekki vélina. Farið verði hvort sem það takist eða ekki en sjálfsagt sé að bjóða þeim sem tengjast starfsfólkinu laus sæti. Ekki vanefndir Helgi Eysteinsson sölu- og mark- aðsstjóri hjá Úrval-Útsýn kannast ekki við vanefndir fyrirtækisins við Rafteikningu. Þvert á móti hafi verið tilkynnt með meira en mánaðarfyr- irvara að ekki gæti orðið af ferðinni til Búlgaríu. „Það þótti sýnt að ekki tækist að ná í þann lágmarksfjölda sem til þurfti í þessa ferð þrátt fyrir að við auglýstum í blöðum enda voru sáralítil viðbrögð. Því til- kynntum við forsvarsmönnum Raf- teikningar það og áttum ekki von á neinum eftirmálum," segir Helgi og bæti við að Úrval-Útsýn hafi farið að þeim lögum sem gildi um alferðir. „Það kemur okkur því á óvart að þeir skuli auglýsa vanefndir okkar í þessu dreifibréfi." Úrval Útsýn bauð ferðina á 59.940 sem er umtalsvert hærra verð en fólki gefst færi á að kaupa beint af Rafteikningu. Helgi bendir á að ekki komi fram hvaða hótel sé boðið upp á og geti hann því ekki tjáð sig um verðmuninn. Gunnar Ingi vildi held- ur ekki ræða það hvort ferðin væri seld á kostnaðarverði eða ekki. Það skipti engu máli og væri ekki til um- ræðu. „Það þótti sýnt að ekki tækist að ná í þann lágmarksfjölda sem tilþurfti í þessa ferð þrátt fyrir að við auglýstum í blöðum enda voru sáralítil viðbrögð. Þvítil- kynntum við forsvars- mönnum Rafteikning- ar það og áttum ekki von á neinum eftir- málum „Það er allt fínt að frétta á Blönduósi,skólinn nýbyrjaður og við afskaplega heppin með kennara og allir að setja sig I startholurnar fyrir haustið," segirJóna Fanney Friðríks- dóttír, _______ Landsíminn stjóri á Blönduósi. „Það eru samein- ingarkosningar í október. Lagt verður til að við sameinumst Skagabyggð, Ashrepp og Höfðahrepp. Ég trúi ekki öðru en að fólk sé komið inn 121. öldina og samþykki. Samein- ing hefur ekki einungis með fjármál og yfírstjórn að gera, heldur samstöðu sem getur af sér drifkraft og áræðni." Eigendur einkanúmera reiðir Margmenni fyrir Spencer Tunick Borga 25 þúsund kall á átta ára fresti Það kostar 25 þúsund krónur á átta ára fresti að vera með einka- númer á bíl sínum. Bíleigendur, sem fengu sér einkanúmer fyrir átta árum þegar þau komu fyrst á mark- aðinn, fengu bréf á dögunum frá Umferðarstofu þar sem þeim var boðið að endurnýja einkarétt sinn á númerinu til næstu átta ára fyrir 25 þúsund krónur samkvæmt reglu- gerð 751 frá árinu 2003. Lúther Þorgeirsson úr Hafnar- firði er einn þeirra sem fengu þetta bréf og sagði í samtali við DV að hann væri steinhissa á þessu. „Ég stóð í þeirri trú að ég hefði keypt einkaréttinn fyrir lífstíð fyrir átta árum. Þessi reglugerð er varla aftur- virk," sagði Lúther. Siggerður Þorvaldsdóttir, verk- Einkanúmer Eigandi þessa númers þarfað borga 25 þúsund kall áátta ára fresti fyrir einkaréttinn. efnisstjóri ökutækjaskráninga hjá Umferðarstofu, sagði í samtali við DV í gær að það væri skýrt í fyrstu samningum sem gerðir voru að einkarétturinn væri ekki nema til átta ára. „Við skoðuðum gömlu eyðublöðin fyrir stuttu og þar var þetta skýrt. Ef fólk vill halda þessum númerum þá verður það að borga 25 þúsund krónur. Reglugerðin var ein- göngu sett til að skýra fyrirkomu- lagið enn frekar." 1500 berir Frakkar Um fimmtán hundruð Frakkar söfnuðust saman í miðborg Lyon í Frakklandi í gærmorgun. Allir voru þar mættir að beiðni hins heimsfræga bandaríska ljósmyndara, Spencers Tunick. Frakkamir sem spurðir vom í gær sögðust afklæðast listarinnar vegna. Sumir vom reyndar langt að komnir og var ein fjölskylda mætt frá London til að taka þátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.