Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER2005
Fréttir DV
Greta er glaðvær, hæfileikarík
knattspyrnukona og það gust-
ar afhenni.
Hún getur verið óþolinmóð
og veit ekki nógu vel af
eigin verðleikum.
„Greta er komin vel á stað en
hún á eftir að komast miklu
lengra vegna hæfileika sinna.
Greta er fjöihæfog gæti
að standa sig vel í
fteiri íþróttagreinum.
Annars er hún yndis-
ieg stúika, dugieg og
fljót að öllum hlutum.
Þá er hún skipulögð,
vel gefin, glaöiynd og skemmti-
leg. Hennar helsti galli er að
hún þarfmeiri þolinmæði á
köflum."
Samúel örn Erllngsson, faOir Gretu.
verið
„Greta er aiveg frábær, hún er
alltafhress og kát og heiðarleg
stelpa. Það ergott að vinna
með henni og hún er
efniiegasti kvennateik-
maður Islands. Greta er
létt á því og það koma
oft skemmtilegar at-
hugasemdir frá henni.
Hún talar stundum án þess að
hugsa sem er bara skemmti-
legt. Hennar helsti gaili er að
hún veit ekki nógu vel hvað
hún getur."
Þóra Björg Helgadóttir, markmaður og
fyrirliði hjá Breiðablik.
„Greta er afgóðum ættum og
sem betur fer hefur hún hæfi-
leika móöur sinnar. Hún er efni-
leg knattspyrnukona
og efhún leggurhart
að sér á hún framtið-
ina fyrir sér. Greta er
létt og skemmtiieg og
ég bind miklar vonir
við hana I kvennafótbolta I
framtíðinni. Það sem hugsan-
lega gæti flokkast sem galli er
að hún borðarmikiö."
Jörundur Akl Sveinsson, þjálfari
kvennalandsliðsins.
Greta Mjöll spilar fótbolta með Breiða-
bliki og þykir einn efnllegasti leikmað-
ur i kvennaknattspyrnu á íslandi. Hún
er fædd 5. september 1987 og býr i for-
eldrahúsum. Greta er á þriðja ári við
Menntaskólann I Kópavogi.
Brotist inn í
skóla
í fyrrinótt var brotist inn
í Fjölbrautaskólann í Garða-
bæ og tveimur skjávörpum
stolið. í tilkynningu á
heimasíðu skólans er haft
eftir Þorsteini Þorsteins-
syni, skólameistara FG, að
keyptir verði nýir skjávarpar
strax og öryggiskerfið í skól-
anum eflt til muna með því
að koma enn fleiri þráð-
lausum skynjurum fyrir víðs
vegar um skólann.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir er einstæð móðir sem á við þunglyndi að stríða. Hún fær
80 þúsund á mánuði frá Félagsþjónustunni en borgar 70 þúsund krónur í leigu á
mánuði. Jóhanna fær ekki niðurgreiðslu á húsaleigu og nú nýlega var henni neitað
um niðurgreiðslu leikskólagjalda fyrir dóttur sína.
„Eg er osatt við þá
þjohustu sem ég fæ
frá Félagsþjónustunni
og mér finnst að það
þurfi að upplýsa fólk
betur um réttindi sín."
Félagsráðgjafi hennar í þjónustu-
miðstöðinni í Mjódd vill hins vegar
að hún fari að vinna sem fyrst. „Mér
finnst hart að það eigi að taka mig
af bótunum af því ég veit um fólk
sem hefur verið árum saman á kerf-
inu," segir Jóhanna.
Léleg þjónusta á þjónustu-
miðstöðinni
Jóhanna segist ekki vera eins
ánægð með Félagsþjónustuna síð-
an hún var færð út í hverfin. „Ég
fékk frábæra þjónustu á meðan
hún var á Skúlagötunni," segir
Jóhanna.
Jóhanna segir að það þurfi að
upplýsa fólk betur um hverju það
á rétt á í kerfinu og hún er líka ósátt
við þjónustu þjónustumiðstöðvar-
innar í Mjódd. „Það þarf að senda
þetta fólk á námskeið í mannlegum
samskiptum, það er hryllilegt
hvemig starfsfólkið þarna kemur
fram við mann, bæði félagsráðgjaf-
ar og þær sem svara í símann."
Fólk á alltaf rétt á fram-
færslu
Björk Vilhelmsdóttir borgarfull-
trúi R-listans segir fólk alltaf eiga
rétt á framfærslu sveitarfélagsins,
Þjónustumiðstöð í Mjódd
á vegum Reykjavíkur-
borgar „Þarfað senda
starfsmenn þar á námskeið I
manniequm samskiptum. “
hafi það tekjur undir ákveðnum
viðmiðunarmörkum. „Framfærslan
er hins vegar lág og þess vegna er
fólki bent á önnur úrræði eins og
t.d nám eða atvinnu," segir Björk.
Hún segir að veilcindi geti hamlað
því að fólk fái vinnu en að nú sé
atvinnumarkaðurinn mjög góður
og tilvalið fyrir fólk að fá sér vinnu
þó ekki væri nema hluta út degi.
hugrun@dv.is
Jóhanna er greind með þunglyndi, kvíðaröskun, einbeitingar-
leysi, fæðingarþunglyndi og félagsfælni. Hún hefur nú þegið
bætur af Félagsþjónustunni í 3 ár en nú vill þjónustumiðstöðin í
Mjódd, sem sér um mál Jóhönnu, að hún fari að leita sér að
vinnu. Geðlæknir sem Jóhanna er í viðtölum hjá telur hana hins
vegar ekki tilbúna til þess.
Jóhanna segir þunglyndi sitt
vera svo slæmt að hún geti ekki
farið í fjölskylduboð. Hún treysti
sér því eldd til að fara út að vinna og
fjárhagurinn sé slæmur. „Ég leigi
íbúð á frjálsum markaði og borga
Björk Vilhelmsdóttir,
borgarfulltrúi R-listans
Stefnan að koma fólki út
á vinnumarkaöinn aftur.
70 þúsund krónur á mánuði," segir
Jóhanna og bætir við að hún myndi
aðeins borga helming þeirrar upp-
hæðar ef hún fengi húsaleigubætur.
Uppfyllir ekki skilyrði
Jóhanna þarf að hafa ákveðið
magn punkta til að eiga kost á nið-
urgreiðslu húsnæðis en uppfýllir
ekki þau skilyrði. „Ég safna skuld-
um sem nú nema á fimmtu milljón
króna," segir Jóhanna sem reynir að
lifa á 10 þúsund krónum á mánuði.
Jóhanna segir að dóttir hennar
hafi beðið eftir leikskólaplássi í eitt
og hálft ár en nú fær hún ekki
niðurgreiðslu leikskólagjalda fyrir
hana eins og hún á rétt á.
Of veiktil að vinna
Jóhanna er í viðtölum hjá geð-
lækni sem metur hennar andlega
ástand þannig að hún sé ekki hæf til
að fara út á vinnumarkaðinn.
JóhannaVilhjálms-
dóttir Finnst þjónustu
hjá Hverfamiðstöðinni í
Mjódd vera ábótavant.
Snarfari sakar björgunarsveitir um seinvirkar aögerðir
Voru of seinir á staðinn
Félagsmenn í smábátafélaginu
Snarfara saka lögreglu og björgunar-
sveitir um seinvirkar björgunarað-
gerðir. Stjórnarmaður í félaginu,
Örn Ottesen, segir að ekki hafi verið
beðið um aðstoð félagsins eftir að
ljóst varð að áhöfn Hörpu væri í
vanda. Lögregla hefði getað verið
komin hálftíma fyrr á vettvang.
„Við erum með mann á vakt niðri
við höfn allar nætur. Hann gat verið
til reiðu með bát sem hefði getað
verið kominn í viðbragðsstöðu
þegar lögreglan kom niður á höfn.
Það hefði sparað um hálftíma," segir
örn.
Maðurinn sem var á vakt fýrir
Snarfara þessa nótt heitir Hákon
Gissurarson. Hann vildi eldd tjá sig
um málið þegar DV leitaði eftir því.
örn segir félagið ætla að halda
fund og ræða málin. Þeir hafi þegar
flautað af afmælisveislu sem átti að
vera um helgina og breytt í minning-
arathöfn. Örn segist jafiiframt kann-
ast við þær sögur að hringt hafi verið
oft en einu sinni úr bátnum á hjálp.
„Þetta er auðvitað háalvarlegt mál,"
segir hann.
Gagnrýnisraddir innan Snarfara
eru háværar enda er Jónas Garðars-
son meðlimur f Snarfara.
DV hafði fýrir slysið fjallað ítar-
lega um mál Snarfara; meðal annars
að ekki sé greiddur tollur af mörgum
skemmtibátanna, þeir skráðir er-
lendis og uppfylli sumir ekld örygg-
isskilyrði.
simon@dv.is
Fyrstu fréttir af sjóslysinu við
Viðey gáfu til kynna að ungur
drengur um borð í skemmtibátn-
um Hörpu hefði hringt á hjálp
eftir að báturinn strandaði. Lög-
fræðingurinn Friðrik Á. Her-
mannsson hefur enn ekki fundist
eftir slysið en sambýliskona hans
Matthildur Harðardóttir fannst
látin. Jónas Garðarsson, formað-
ur Sjómannafélágs Reykjavflatr
og eiginkona hans liggja bæði á
spítala. Samkvæmt heimildum
DV var það eiginkona Jónasar
sem hringdi á hjálp úr síma
stráksins. Aðeins var hringt eitt
símtal og fóru björgunaraðgerðir
umsvifalaust í gang.