Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Side 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 7 7
Guðmundur
Kjærnested
jarðsunginn
Guðmundur Kjæme-
sted, fyrrverandi skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, var
jarðsunginn í gær frá Hall-
grímskirkju. Gamlir sam-
starfsfélagar Guðmundar,
skipherrar, flugmenn, vél-
stjórar og loftskeytamenn
báru kistu hans út úr kirkj-
unni. Sjö starfsmenn Land-
helgisgæslunnar stóðu
heiðursvörð við útförina.
Guðmundur varð þjóðhetja
vegna vaskrar framgöngu
sinnar í þorskastríðunum
við Breta 1972 og 1975.
Hann varð 82 ára.
Veiðiþjófar
eða dyravinir
Lögreglan á Höfn í
Hornafirði rannsakar nú
meintar ólöglegar hrein-
dýraveiðar á Fiatey á Mýr-
um síðastliðinn laugardag.
Tveir veiðimenn em sakaðir
um að hafa skotið einn tarf
og tvo kálfa. Þeir halda því
hins vegar fram að dýrin
hafi verið helsærð fýrir og
því hafi þeir talið það
skyldu sfna að lóga þeim.
Að sögn lögreglunnar á
Höfn stendur yfir rannsókn
á málinu og er beðið eftir
skýrslu frá dýralækni. Þá
fýrst kemur í ljós hvort
mennimir tveir séu veiði-
þjófar eða dýravinir.
Innbrot á
Selfossi
og í Hvera-
gerði
Brotist var inn í íbúðar-
hús á Selfossi og í Hvera-
gerði í gærdag og höfðu
innbrotsþjófarnir á brott
með sér sicartgripi, mynda-
vélar og tölvutæki. Lög-
reglan á Selfossi segir að
ummerki á báðum stöðum
bendi til að sömu menn
hafi verið að verki og að
þeir hafi valið hús sem
væm umlukin miklum
gróðri og ekki sýnileg frá
götu. Þá var brotist inn í
íbúðarhús í Hveragerði í
nótt og þaðan stolið far-
tölvu. Lögregla á svæðinu
biður fólk um að hafa aug-
un hjá sér og tilkynna
grunsamlegar mannaferðir
til lögreglu.
Bíræfnir innbrotsþjófar tóku traktorsgröfu traustataki i gærmorgun og keyrðu
henni inn í tölvuverslun í Kópavogi. Þjófarnir mættu ungum manni rétt áður en
þeir létu til skarar skriða og buðu honum góðan dag.
Buðu góðun daninn og
bökkuðu gröíu i búð
f gærmorgun var framið innbrot í eina víggirtustu tölvuverslun í
landinu. Þjófarnir notuðu traktorsgröfu til að brjóta sér leið inn
í verslunina og stálu þaðan þremur fartölvum. Þetta er þriðja
innbrotið í verslunina á tveimur árum auk þess sem innbrotstil-
raun var gerð í síðustu viku. Ungur maður mætti þjófunum
stuttu áður en þeir létu til skarar skriða.
„Ég var á leið tii vfrmu eldsnemma
í morgun og geng þá fram á traktors-
gröfu nálægt tölvuversluninni. Þá
kemur maður milli þrítugs og fertugs,
bíður mér góðan dag og fer svo upp í
gröfuna. Ég
pældi svo
ekkert
meira í
því og
hélt áfram
til mirrnar
vinnu, segrr
ungur mað-
ur sem varð á
vegi innbrots-
þjófa í tölvu-
verslunina Start,
snemma í gær-
morgun. „Svo
þegar ég kem
í vinnuna
heyri ég
fólk taia
um að
þjófar
hafi
brotið
sér
leið
með
Vigfús Svein-
björnsson, eigandi
Start Þriðja innbrotið
á tveimur árum.
„Þetta segir ýmislegt
um hvertþetta þjóð-
félag er að stefna ef
ítrustu þjófavarnir
duga ekki til."
gröfu inn í tölvuverslunina og stolið
þaðan þremur fartölvum," segir ungi
maðurinn.
Miklar þjófavarnir duqðu ekki
til
„Þeir bökkuðu sér leið inn í versl-
unina, brutu niður framhliðina og
notuðu stórar klippur til að klippa
sundur rafmagnssnúrur sem tengdar
eru við tölvumar," segir Vigfús Svein-
bjömsson, eigandi tölvuverslunar-
innar Start. „Við emm líklega best víg-
girta tölvuverslunin með sérsmíðaða
stálrimla fyrir öllum gluggum og
sumir hafa talað um að þjófavamir
hjá okkur séu helst til of ýktar," segir
Vigfús og bætir við að víggirðingin
hafi greinilega ekki dugað til en auk
þess er verslunin með vöktun sem
hafi heldur ekki skilað sér.
„Þeir bökkuðu sér leið
inn í verslunina og
brutu niður framhlið-
.• _ //
ma.
Þriðja innbrotið á tveimur
árum
Vigfús segir þetta þriðja innbrotið í
tveggja ára sögu verslunarinnar en
auk þess hafi ein misheppnuð inn-
brotstilraun verið gerð í síðustu viku.
„Þetta segir ýmislegt um hvert þetta
þjóðfélag er að stefria ef ýtrustu þjófa-
Innbrot Svona
varumhorfs
eftir gröfuna.
vamir duga ekki til,“ segir Vigfús sem
átti alls ekki von á innbroti. „Við höf-
um leyft okkur að vera með flottar
sýningarvélar í gluggunum en það
gerir þjófana kannski æstari í að kom-
ast inn“, segir Vigfús og veltir upp
þeirri spumingu hvort verslunin sé
betur sett í Kringlunni eftir það sem á
undan hefur gengið.
svavar@dv.is
öflug græja Þjófarnir
nældu sér í svona gröfu og
dúndruðu á stálrimlana.
Snarfari sakar björgunarsveitir um seinvirkar aðgerðir
Voru of seinir á staðinn
Félagsmenn í smábátafélaginu
Snarfara saka lögreglu og björgunar-
sveitir um seinvirkar björgunarað-
gerðir. Stjómarmaður í félaginu,
Öm Ottesen, segir að ekki hafi verið
beðið um aðstoð félagsins eftir að
ljóst varð að áhöfn Hörpu væri í
vanda. Lögregla hefði getað verið
komin hálftíma fyrr á vettvang.
„Við erum með mann á vakt niðri
við höfn allar nætur. Hann gat verið
til reiðu með bát sem hefði getað
verið kominn í viðbragðsstöðu
þegar lögreglan kom niður á höfri.
Það hefði sparað um hálftíma," segir
Öm.
Maðurinn sem var á vakt fyrir
Snarfara þessa nótt heitir Hákon
Gissurarson. Hann vildi ekki tjá sig
um málið þegar DV leitaði eftir því.
öm segir félagið ætla að halda
fund og ræða málin. Þeir hafi þegar
flautað af afmælisveislu sem átti að
vera um helgina og breytt í minning-
arathöfn. Örn segist jafnframt kann-
ast við þær sögur að hringt hafi verið
oft en einu sinni úr bátnum á hjálp.
„Þetta er auðvitað háalvarlegt mál,"
segir hann.
Gagnrýnisraddir innan Snarfara
em háværar enda er Jónas Garðars-
son meðlimur í Snarfara.
DV hafði fyrir slysið fjallað ítar-
lega um mál Snarfara; meðal annars
að ekki sé greiddur tollur af mörgum
skemmtibátanna, þeir skráðir er-
lendis og uppfylli sumir ekki örygg-
isskilyrði.
simon@dv.is
Móðirin hringdi
á hjálp
Fyrstu fr éttir af sjóslysinu við
Viðey gáfu til kynna að ungur
drengur um borð í skemmtibátn-
um Hörpu hefði hringt á hjálp
eftir að báturinn strandaði. Lög-
fræðingurinn FriðrikÁ. Her-
mannsson hefur enn ekki fundist
eftir slysið en sambýliskona hans
Matthildur Harðardóttir fannst
látin. Jónas Garðarsson, formað-
ur Sjómannafélags Reykjavfkur
og eiginkona hans liggja bæði á
spítala. Samkvæmt heimildum
DV var það eiginkona Jónasar
sem hringdi á hjálp úr síma
stráksins. Aðeins var hringt eitt
símtal og fóm björgunaraðgerðir
umsvifalaust í gang.