Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Side 14
74 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Á fréttavef Bæjarins
besta á ísafirði kemur fram
að Hestamannafélagið
Stormur undirbúi nú bygg-
ingu reiðhallar á Söndum á
Dýrafirði. Félagið treystir á
stuðning landbúnaðar-
ráðuneytisins og einkaaðila
en að auki hefur verið farið
fram á stuðning fsaíjarðar-
bæjar. Bæjarráð hefur lagt
til að við bæjarstjórn að
verkefninu verði veittur sex
milljóna króna styrkur á
næsta ári.
FL Group
íhugarkaupá
Sterling
FL Group og eignar-
haidsfélagið Fons, sem á
flugfélögin Sterling og
Maersk, hafa hafið
viðræður um kaup FL
Group á flugfélögunum
tveimur. FL Group sendi
frá sér tilkynningu til
Kauphallar íslands í
gærkvöld um þetta.
Fjörugoði í
framkvæmda-
hug
Jóhannes Viðar Bjarna-
son, eigandi Fjörukráarinn-
ar í Hafnarfirði, vinnur nú
að því að stækka Hótel Vík-
ing um fjórtán herbergi.
Jóhannes, sem kailaður er
Fjörugoði, fhugar nú tvær
hugsanlegar leiðir í þessum
efnum og er hann búinn að
fá vilyrði bæjaryfirvalda fyr-
ir þeim báðum. önnur leið-
in er að bæta hæð ofan á
hótelið en hins er að byggja
nýja byggingu bak við
Fjörugarðinn, en þar hafði
hann áður ráðgert að
byggja víkingasafn. Jó-
hannes Fjörugoði er því
stórhuga sem áður.
Brynjólfur
400 ara
í dag eru fjögur hundruð
ár frá því Brynjólfur Sveins-
son biskup í Skálholti
fæddist. Að því tilefni
verður í Þjóðarbók-
hlöðunni í dag opnuð
heimasíða þar sem
finna má margvísleg-
an fróðleik um
Brynjólf og samtíð
hans. Brynjólfur gegndi
mikilvægu hlutverki í sögu
íslands sem leiðtogi kirkj-
unnar, veraldlegur höfð-
ingi, heimspekingur og svo
mætti áfram telja. Fyrir þá
sem ekki þekkja Brynjólf
má skjóta því inn að hann
prýðir þúsund kxóna seðil-
inn. Maður fær því aldrei
nóg af Brynjólfi.
Þioðm fær Eur
Tónlistarfólk og áhugafólk um gott
skemmtiefni í sjónvarpi gleðst nú
mikið yfir tíðindum sem berast ofan
úr Efstaleiti. Ríkissjónvarpið stefnir
á að halda innlenda forkeppni fyrir
Eurovision á næsta ári, þá stærstu
sem haldin hefur verið til þessa.
Þó svo að götur Reykjavíkur tæm-
ist ekki lengur þegar ísland tekur þátt
í Eurovision em íslendingar samt
upp til hópa mikið áhugafólk um
keppnina og bíða enn eftir lang-
þráðum sigri. Á hverju ári er velt upp
fjölmörgum spumingum um hvað sé
vænlegast til vinnings og er Sjón-
varpið nú að velta fyrir sér að halda
innlenda forkeppni fyrir Eurovision.
Tilefnið er meðal annars að tuttugu
ár em síðan íslendingar tóku fyrst
þátt og RÚV verður fjörutíu ára. En
aðalástæðan hlýtur að vera sú að nú
ætlum við að vinna!
Innlend forkeppni var síðast
haldin árið 2003 með beinni útsend-
ingu frá heljarinnar úrslitakvöldi í
Háskólabíói þar sem Birgitta Hauk-
dal bar sigur úr bítum. Fór hún fyrir
íslands hönd til Úkraínu og hafhaði í
m'unda sæti. Tilhögun keppninnar á
næsta ári er enn á viðkvæmu stigi
innan Sjónvarpsins en víst er að slflc
keppni verður vel þegin af íslensku
tónlistarfólki, tónlistaráhugafólki og
áhorfendum Ríkissjónvarpsins.
Forkeppni eða ekki forkeppni
Forkeppnir vom haldnar óslitið
ffá því Island tók fyrst þátt með
Gleðibankanum árið 1986 ffam til
ársins 1995 en árið þar á undan
fannst fólki nóg komið af bmðli með
fé til innlendrar dagskrárgerðar og
vom aðeins þijú sérvalin lög í und-
ankeppninni. Sú aðferð að láta
nokkra sérvalda poppara berjast inn-
byrðis hefur þó nokkru sinnum verið
reynd á liðnum ámm.
Ekki var haldin forkeppni aftur
fyrr en árið 2000 þegar Einar Ágúst
og Telma fóru utan og tóku tólfta
sætið og svo aftur árið 2003 þegar
keppnin var haldin fyrir fullu Há-
skólabíói.
Ekki sama brandarann tvisvar
Hljómsveitin Botnleðja kvað við
nýjan tón í þeirri forkeppni með lag-
inu Júróvísa en hafnaði í öðm sæti.
Heiðari Emi Kristjánssyni, gítarleik-
ara og söngvara í Botnleðju, finnst
ekki skrýtið að halda eigi forkeppni
nú þar sem hvert lélega lagið hafi rek-
ið annað síðustu ár. „Það er verið að
senda hvert formúlulagið á fætur
öðm sem drukknar í öðmm alveg
eins lögum. Það eina sem stendur
upp úr em lög sem em eitthvað pínu
öðmvísi," segir Heiðar og stingur upp
að hljómsveitin Trabant keppi fyrir
hönd íslands. „Ég er viss um að
Trabant myndi vinna. Það þarf bara
glimmer og læti og þá er sigurinn
vís,“ segir Heiðar sem finnst tími til
kominn að hætta þessari lágdeyðu
sem er viðloðandi keppnina.
Aðspurður hvort Botnleðja hafi
hugsað sér að reyna aftur við for-
keppnina segir Heiðar, „Nei, við segj-
um ekki sama brandarann tvisvar.
Við gáfum þjóðinni séns en hún
hafnaði okkur og valdi Birgittu Hauk-
dal og við sáum hvemig það fór,“ seg-
ir Heiðar fullviss um að Botnleðja
hefði náð langt í aðalkeppninni.
ICY-tríóið saman á ný
Helga Möller flutti Gleðibankann
með ICY-tríóinu þegar fslendingar
tóku fyrst þátt í Eurovision fyrir 20
ámm. Henni finnst frábært að halda
eigi undankeppni því hún vill leyfa ís -
lensku þjóðinni að kjósa sitt lag. „Mér
finnst þetta mikil gleðitíðindi því
þjóðin á skilið að fá almennilegt
skemmtiefni frá Rfldsjónvarpinu,"
segir Helga sem finnst keppnin ekki
eiga að snúast um sigurvegara heldur
eigi þjóðin að velja sitt lag og standa
með því burtséð frá því í hvaða sæti
lagið lendi.
Helga segir að við eigum ekki að
semja lög sem við höldum að falli í
kramið hjá öðrum þjóðum heldur
eigum við að fýlgja eigin smekk og
ekki sé verra að blanda þjóðlegum
áhrifum við lögin.
„Við eigum frábært tónlistarfólk
og ég hvet alla til að taka þátt og
það er aldrei að vita nema ICY-tríó-
ið komi saman aftur í tilefni af tutt-
ugu ára afmælinu," segir Helga og
hlær. svavar@dv.is
Ódæöismenn beita ofbeldi til að komast hjá því að mæta fyrir dóm
Stefnuvottur laminn af ofbeldisfullu tvíeyki
í mánudaginn var þingfest r' Hér-
aðsdómi Reykjaness mál rfkissak-
sóknara gegn Stefáni Axeli Stefáns-
syni og Ólafi Vilberg Sveinssyni fyrir
líkamsárás. Ólafur er þekktari helm-
ingurinn af tvíeykinu, sérstaklega
fyrir það að hafa ráðist inn á skrif-
stofur DV með látum og tekið Reyni
Traustason, þáverandi fféttastjóra
hálstaki.
Þeim Stefáni og Ólafi er þetta
skiptið gefið að sök að hafa ráðist á
stefnuvott svo meiðsl hlutust af.
Stefnuvotturinn var á leið með
stefnu til unnustu Stefáns, en félag-
amir ákváðu að taka á sendiboð-
anum.
Stefán Axel vildi ekki tjá sig um
málið þegar DV hafði samband við
hann r gær.
„Svona lagað gerist nú varla,"
segir Thulin Johansen, einn af eldri
stefnuvottum íslands. „Það er samt
algengt að manni sé hótað, svona
eins og maður um daginn sem sagði:
„Það ætti nú að skjóta þig," en mað-
ur vorkennir bara svona fólki. Það
versta sem hefur komið fyrir mig er
að fá vatnsgusu af sjóðandi heitu
vatni yfir mig."
Honum finnst, eins og Guð-
mundi, misræmi í lögum um birt-
ingar stefnu, þar sem póstburðar-
mönnum er leyft að birta stefnur, en
þurfa ekki að hafa gengist undir
drengskaparheit eins og stefnuvott-
um ber. Thulin sagði þó fólk vera
misjafnt eins og þjóðfélagið ber vitni
um og taldi það ekki vera stéttaskipt
hverjum stefnt er og hverjum ekki.
„Það er engin skömm að því að fá
stefnu," sagði Thulin enn fremur.
„Eitthvað erfiðasta er að finna fólk
þar sem það hefur ekki tilkynnt um
lögheimili eftir flutninga," bætir
Thulin við.
„Það hefur jú ýmislegt komið fyr-
ir og manni verið sagt; ‘Næst þegar
þú kemur læt ég þig hverfa,’ og
eitthvað svoleiðis, en maður er
nú orðinn þokkalega brynvarinn
eftir 25 ára starf í lögreglunni,"
segir Guðmundur Sigurjóns-
son, fyrrverandi rannsóknar-
lögreglumaður. Hann starfar
nú sem bankastarfsmaður og
er stefnuvottur í hlutastarfi.
Thulin Johansen,
stefnuvottur Einn
sá reyndasti I brans-
anum sem kveðst
einu sinni hafa fengið |
yfir sig vatnsgusu.