Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 Menning DV Bragi fær Lóð Árlega veita íslenskir bóksalar viðurkenningu þeim sem lagt hafa fram ríkan skerf til íslenskrar bókmenningar. Þeir kalla það Lóð á vogarskálar íslenskra bók- mennta og verður Lóðið veitt í fimmta sinn í dag. Berast tilnefn- ingar frá bóksölum alls staðar af landinu. Guðrún Helgadóttir, Þórarinn Eldjárn, Guðmundur Páll Ólafs- son og Þorsteinn frá Hamri hafa fengið Lóðið. Nú fær Lóðið Bragi Kristjóns- son fombókasali. Hann hefúr í áratugi starfrækt verslun með notaðar bækur; Bókavörðuna eða Bókina ehf. sem var áður á Vest- urgötu en nú á Klapparstíg. Utan þess starfrækja þeir Bragi og son- ur hans Ari verslun á netinu og eiga þeir því viðskiptavini um all- an heim. Af þessu tilefni mun stjórn Fé- lags starfsfólks bókabúða, vel- unnarar Braga og viðskiptavinir hittast í versluninni, drekka sam- an kaffi og snæða kökusneið um kl. 16 í dag um leið og Braga er af- hent Lóðið! Sinfónísk músík á Snæfellsnesi Starfsár Sinfóníunnar startaði með glæsibrag á laugardag og næstu tvo daga verður bandið að spila á Snæfellsnesi. Þau halda tvenna tónleika; í kvöld og á fimmtudag. Þá fyrri í Ólafsvík, kl. 20 og þá seinni í Stykkishóimi og hefjast þeir klukkan 19.30. Á þessum tónleikum mun homieikarinn Stefán Jón Bem- harðsson leika einleik, en svo skemmtilega vill til að hljómsveit- arstjórinn Bernharður Wilkinson er faðir hans. Fieiri fjölskyldu- meðlimir verða á sviðinu þessi kvöld því móðir Stefáns, Agústa Jónsdóttir, er fiðluleikari í Sinfón- íuhljómsveitinni. Annars er efnisskráin blönduð: tónlist eftir Glinka, Borodin og fs- landsvininn Khachaturian, Strauss og Bartok. Tónleikarnir í Ólafsvík verða haldnir í Félags- heimilinu á Klifi en í Stykkishólmi fara þeir fram í Stykkishólms- kirkju. Miðasala verður við inn- ganginn. Á fy..' Hotakainen talar ekki hátt og það mikið fyrir honum. Hann er ærsta nafnið í finnskum skáld- nær tveggja áratuga feril að en er á slíku flugi að vænta má onum stórvirkja á næstu árum. r verðlaunasaga hans um Matta fmáimtu hefur bundið tilfinningalíf sitt í raðir af hljóðritunum. Þegar Kari er spurður um hlut tónlistarinnar í lífi sínu verður hann eitt bros og fer að aka sér í sætinu: hann hefur í morg- un verið nærri tvær klukkustundir í bænum að fletta rekkum og hlusta á diska til að taka heim méð sér. Jú, hann á það sameiginlegt með Matta í Skotgrafarvegi að hlusta mikið á tónlist. Vetrarstríð Hefúr heiti sögunnar og vísunin í skotgröfina fleiri merkingar á finnsku, spyr ég? Hann svarar því neitandi. Skotgröfin hefur máttuga og sára vísun til finnskrar sögu: Vetrarstríðið finnska merkti þjóð- ina um langan aldur. Tengsl valda- hópa í Finnlandi við Þjóðverja urðu þeim dýrkeypt. Barátta þeirra við Rússa kostaði þá mannfómir, upp- töku lands, fluming á hundruðum þúsunda: enn er Karelia - hið foma finnska land sem Rússar tóku yfir bannsvæði mörgum Finnum. Skot- gröfin er því hugtak sem kallast á við liðna tíð sem enn er í lifandi minni þeirra eldri. „Enn koma til mín eldri lesendur sem spyrja hvemig ég geti sett þennan titil á skáldverk," segir Kari. Hann er ættaður að norðan, fæddur í litlu fjögur hunchuð manna þorpi á norðurlandinu. Hann flutti til Helsinki og stundaði þar háskólanám, sneri sér síðan að blaðamennsku og skrifum fyrir aug- lýsingastofur. Hann hefur gefið út fjórar skáldsögur, samið ljóð og leik- rit, skrifað fyrir sjónvarp og útvarp. Hugarfylgsni og bíó „Sumarið var erfitt. Ég vann mikið með leikstjóranum að þessu verki og leikhópnum og er satt að segja hálfþreyttur eftir þá töm." Hann ætlar ekki að taka til við skriftir fyrr en í nóvember og segist þá hafa óljósar hugmyndir sem geti íeitt saman efiii í sögu. Norður- landaráðsverðlaunin breyttu miklu i fyrir hann á erlendum mörkuðum. Skotgrafarvegur seldist í yfir hundrað þúsund eintökum á heimamarkaði og er nú komin út á fjölda tungumála, og tvær sögur hans hafa verið settar á filmu. „Það er annað að sjá einhverja persónu á tjaldi en hina sem maður skapar í huga sér, það er sköpun sem á bæði við um höfund og lesanda." Ógeðslega ríkir „Húsið í Skotgrafarvegi er bara metafóra. Draumtákn fyrir hamingju og fjölskyldu. f Finnlandi um þessar mundir búa tvær þjóðir: Nokia-þjóðin og hinir. Bilið milli fátækra og ríkra hef- ur breikkað og við getum státað okkur af nokkmm einstaklingum sem em auðkýfingar. Það er svæðið kringum Helsinki og höfuðborgin sem dregur þjóðina til sín. Sveitimar og norður- landið em fátækrasvæði, rétt eins og í Svíþjóð. Pólitiskt ástand hefur breyst mjög með batanum sem náðist í efna- hagslífinu. Á tveimur áratugum hefur allt breyst. Vinstrið er veikt og allir flokkamir tíu hafa svipaða stefnu." Hann segir titilinn á nýja leikritinu sínu vera nafn á sjúkdómi, hvítablett- um sem stundum falla á hömnd manna þegar litarefni hverfa úr húðinni og lit- leysið tekur við. „Á finnskunni þýðir það bókstaflega að rauði liturinn sé á burt," segir hann. „Hann er á burt í mörgum skilningi í lífi okkar. Það er kómedía og fjallar um trú okkar og guð. Það er ekki lengur hægt að fjalla um guð nema í gamanleik." Mér finnst miðaldra karlmaður á okkar tímum vera skemmtilegt við- fangsefni. Hann er Jilægilegur og sorglegur, skemmti- legur og hræðilegur. Mér finnst mikið í hann spunnið." Það er mið- aldra karlmaður sem talar, finnsk- ur, verðlaunahöfundurinn Kari Hotakainen sem hér er vegna bók- menntahátíðar. Frumsýning á morgun Kari Hotakainen harmar að hann getur ekki stoppað lengi við á bókmenntahátíðinni. Hann las upp í fyrrakvöld í Iðnó, verðlauna- saga hans um Matta og tilraunir hans, miðaldra manns sem þráir að I skapa fjölskyldunni sinni skjól, er Íkomin í reykvískar búðir, og þegar viðtalið var tekið var framundan daglangt flug austur á bóginn, heim til Helsinki: í kvöld er frum- sýning hjá KOM-leikhúsinu í Helsinki á fyrsta leikriti hans fyrir fullorðna. Ekki óperur Þetta er sjö persónu verk, sem hann segir býsna stórt fyrir sig. Fram að þessu hefur hann einkum einbeitt sér að smærri formum leikbókmenntanna: útvarpsleikn- um og bamaleikverkum. Þegar hann afréð fyrir tíu árum að snúa sér að skrifum sem aðalstarfi var hann staðráðinn í að reyna allt. „Nema librettó fyrir óperur," segir hann. Brosið er feimnislegt. Hann slær ekki um sig þessi maður, hefur þessa hljóðlátu kurteisi sem margir Finnar geta státað sig af. í öðm homi veitingastofunnar sitja tveir íslenskir karlar og hafa hátt um fjármagn og bankamenn. Kari er fæddur fimmtíu og sjö. Sagan sem færði honum Bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs 2004 ber þess merki að hann finnur til með kynslóðinni sinni. Aðalper- sóna sögunnar er tónlistarffkill og Ung kona í ráðherrastóli Danir hafa náð langt í iðnaði af hvaða tagi sem er: sjónvarpsefnið þeirra hefur á sér fægt yfirbragð, í smíði þeirra allri er allt settlegt og snoturt innan formúlunnar. Þar hefur lengi ríkt frjálslynt borgarlegt samfé- lag sem máir hinar sterkari misfellur samfélagsins út í samhjálp, pússar ósléttur af yfirborði veruleikans. Krónprinsessan var vinsælt verk f heimalandi höfundar og skóp henni frekari frægð, auð og álit. Nú er sagan komin út á íslensku en höfundurinn er hér gestur á Bókmenntahátíð og les þar upp á fimmtudagskvöld. Sagan hennar er þokkalega fléttuð samtímasaga sem lýsir óvæntum frama ungrar konu f pólitfsku samfé- lagi stjórnvalda þar sem konur bakka konur og karlar bakka karla.Stjórn- málastarf fer fram á bak við tjöldin og Hanne Vibeke Holst skáldkona DV-mynd Morten Holtum Nielsen fjölmiðlar gera allt sem í þeirra valdi stendur til að skaða pólitískan frama þeirra sem verður á. Sagan nærist f frásagnarhætti á stíl spennusagna, leggst í væmnar og klisjukenndar lýsingar á nútfmalegu fjölskyldulffi og er að mörgu leyti frek- ar f ætt við trivial-roman en alvarlega hugsaðan skáldskap. Þetta eru iðnað- arbókmenntir, skrifaðar fyrir stóran hóp kvenna f millistéttinni og er ætlað að metta þær með staðalmyndum sem höfða til þeirra flesta. Þetta er ekki vanhugsað efni sem slíkt.Gæti vel gengið í einfaldan frá- sagnarhátt sjónvarpsserfu eða kvik- myndar og gæti komið frá hvaða landi sem væri f hinum vestræna heimi. Spurningin er bara þessi: er nauð- synlegt að þýða slíkar bókmenntir? Er ekki nær að smfða okkur höfunda, þeir mega vera af hvaða kyni sem er, karlar eða konur, undir réttu nafni eða lognu, sem fengju þetta verkefni: ung- um kvenkyns ráðherra bolað úr embætti f umhverfisráðuneytinu af valdaklíku ungra karla fflokknum? Það er spurning að hve litlu eða miklu leyti róman Hanne er lykilsaga, Krónprínsessan eftir Hanne Vibeke Holst Þýðandi: Hall- dóra Jónsdóttir Vaka Helgafell 2005 Bókmenntir bólstruð lýsing á pólitfskum veruleika, lykilsaga með leifum af raunveruleik- anum. Sem ég reyndar held hún sé ekki. En klisjuleg skrif hennar sem samtímakennd skáldsaga eru undar- lega á skjön við flest það sem borið er á borð sem alvarlegur skáldskapur á bókmenntahátfðinni sem nú stendur yfir og var valin sem útgáfutfmi þess verks sem hér hefur verið rætt. Pdll Baldvin Baldvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.