Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2005, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005
Síðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Óboðinn gestur {morgunmarmelaðinu. DV-mynd E.ÓI.
Ætlar í varaformann en samt ekki
Ólga og spenna einkennnir ung-
liðastarf Sjálfstæðisflokksins þessa
dagana. Barist er á tveimur vígstöðv-
um, Heimdalli og SUS. Ein af þeim
sem miklar vonir hafa verið bundnar
við er Helga Kristín Auðunsdóttir
sem situr í stjóm Heimdallar. Hún
hyggur á framboð til varaformanns
enda hæfileikarík kona þar á ferð.
„Ég ætla að bjóða mig fram en það
er ekki staðfest ennþá," sagði hún í
gær þegar DV spurði út í
hagi hennar.
Staðfest?
„Já, ég á eftir að senda frá mér til-
kynningu."
Þannig að þú ætlar að bjóða þig
Ha?
Helga Kristín Auðunsdóttir
sjálfstæðiskona Ferí varafor-
mannSUSot ' " -
>g styður Borgar Þór.
fram?
„Það er eiginlega óstaðfest ennþá
en jú, ég fer örugglega fram."
Þannigað þetta er allt ílausu lofti?
„Nei, en maður viil ekki vera með
stórar yfirlýsingar of snemma."
Þú talaðir kannski afþér?
,Ætli það ekki."
Hvað með Borgar Þór - styður þú
harm?
„Hundrað prósent."
Helga er því framtíðarkona og
ekki spiilir fyrir að maður hennar
Einar Þorsteinsson, fréttamaður á
RÚV, er einnig sjálfstæðismaður, var
formaður Týs, Ungra sjálfstæðis-
manna í Kópavogi, þar til hann byrj-
aði í sjónvarpinu. „Jú, hann sagði sig
frá öllum ábyrgðarstöðum. Nú sé ég
um pólitíkina á heimilinu."
Hvað veist þú um
Bessa Bjarnason
1. Hvað varð Bessi
gamall fyrir skömmu?
2. Hver var fyrsta leik-
sýningin sem hann tók
þátt í í Þjóðleikhúsinu?
3. Hvern lék Bessi í Dýrun-
um í Hálsaskógi?
4. Hvenær hlaut Bessi
Menningarverðlaun DV?
5. Hvað heitir eftirlifandi
eiginkona Bessa?
Svör neðst á síðunni
Hvað seqir
mamma?
„Óli er
duglegur
og áhuga-
samurí
tónlistinni
og ég dá-
ist að því
hvaö
hann er
fylginn
sér/'segir
Sigríður
Óiafs-
dóttir,
móðir
Ólafs
Vals Þrastarsonar (Óliófur).„Óli er ekki
menntaður i tónlist en hefur mikinn
áhuga á henni. Hann er rótyndur en
ákveðinn, þægilegur og Ijúfur i samskipt-
um. Ólihefur alltafvitaö hvaö hann vildi
og stefnt að þvl að láta það rætast. Hann
er gæðadrengur og hefur alltaf verið góð-
ur við systkini sini."
Óli Valur Þrastarson er fæddur á
Akranesi 28. október 1982. Hann
lærði rafeindavirkjun við Iðnskól-
ann og starfar sem tæknimaður hjá
Ríkisútvarpinu. Þess utan er hann
plötusnúður og hefur ásamt félaga
sínum sett á laggirnar tónleikaröð
undir nafninu Vibe.
Rauðu djöflarnir fagna
Formaðurinn segir beint flug
til Manchester vera nýtt líf
„Ailt fyrir Manchest-
er United," var svar Guð-
bjöms Þórs Ævarssonar þegar
blaðamaður spurði hann hvort
hann hefði tíma í stutt spjall.
Guðbjörn er formaður
Rauðu djöflanna sem er
stuðningsmanna-
klúbbur Manchester
United hér á landi.
Hann og fleiri
stuðningsmenn
liðsins hoppuðu
hæð sína af gleði
í fyrradag þegar
Icelandair til-
kynnti
Sáttur Guðbjörn Þór
Ævarsson segir beint
flug til Manchester
veranýttiff.
að frá og með sjöunda apríl næst-
komandi myndi félagið bjóða upp á
beint flug til Manchester tvisvar
sinnum í viku.
„Þetta er æðislegt og gefur mikla
möguleika hjá okkur því það er flog-
ið á föstudögum og mánudögum,"
segir Guðbjöm. Hann segir marga
íslendinga fara til Manchester í
hverri viku. „Það em um fimm til tíu
manns að fara um hverja einustu
helgi á leik," segir hann en eins og
málum er háttað nú er það þó nokk-
urt ferðalag að komast til Manchest-
er. Fyrst þarf að fljúga til London og
þaðan tekur við fjögurra tíma lestar-
ferð til Manchester. „Þetta er nýtt
líf."
En það em ekki bara stuðnings-
menn United sem njóta góðs af
þessari nýbreytni hjá Icelandair.
„Það má ekki gleyma því að vinir
okkar í Liverpool-klúbbnum hljóta
að geta lent á þessum velli líka, þó
svo að þeim kunni að vera illa við
það," segir Guðbjörn og hlær. Það
hlakkar greinilega í honum vegna
þessa. „Þeir fá púst líka, það er bara
hálftími frá Manchester til Liver-
pool."
„Ég gef það ekki upp," segir Guð-
björn spurður út í það hversu oft
hann fari út á völlinn, „og núna sé ég
fram á að fara enn oftar." Svarið gef-
ur til kynna að það sé ansi oft. Enda
ekki nema von þar sem Guðbjörn er
einn af tveimur United-mönnum
hér á landi sem eiga ársmiða á Old
Trafford, heimavöll United. „Núna
get ég jafnvel farið að bregða mér
um hverja helgi sem er heimaleik-
ur,“ segir Guðbjörn íbygginn. Miðað
við kynni blaðamanns af Guðbimi
verður það að teljast líklegt.
Gamla myndin
Davíð tekur til í garðinum
Hér má sjá kvikmyndagerðar-
manninn Jón Karl Helgason leik-
stýra Davíð Oddssyni í auglýsinga-
mynd sem bæta átti umgengni
manna við höfuðborgina og hvetja
fólk til að taka til í kringum sig.
Myndin er tekin 1985 en þá var Dav-
íð borgarstjóri í Reykjavfk og taldi
ekki eftir sér að koma fram í auglýs-
ingamyndum gerðu þær honum og
öðrum borgarbúum gott.
Um svipað leyti og þessi mynd
var tekin var nýju slagorði hleypt af
stokkunum sem lengi átti eftir að
hljóma og gera sitt gagn: Hrein torg,
fögur borg! Höfundur slagorðsins
var ekki Davíð Oddsson, þótt marg-
ir kynnu að halda að svo væri, held-
ur samdi það auglýsingamaður að
nafni Jón Þorvaldsson sem síðar átti
mörg önnur slagorð sem þekkt urðu
og eru sum enn.
Af Jóni Karli Helgasyni er
það hins vegar að frétta að
hann hefur víða komið
við í íslenskri kvik-
myndagerð síðan þessi
mynd var tekin og alltaf
verið í fremstu röð; einn
frumkvöðlanna sem vörð-
uðu þá braut sem aðrir hafa
fylgt og eru nú íjölmenn stétt.
Davið í garðinum Fei
létt með hrífuna og Jón
Karl Helgason fylgist
með, lengst tiihægri.
i i iiju i iuuiu i lunuumyiu uy jvciii
Sigurjónssyni að útfæra risastóran og
spennandi skemmtigarð byggðan á
Snorra-Eddu.
1. Hann varð 75 ára gamall. 2. Það var Litli Kláus og Stóri
Kláus. 3. Hann lék Mikka ref. 4. Hann hlaut heiðursverð-
laun Menningarverðlauna DV árið 2003. 5. Hún heitir
Margrét Guðmundsdóttir.
Krossgátan
Lárétt:
1 undirmaður,4 stór-
hýsi, 7 smávatn, 8 sjá,
10 spyrja, 12 rittákn,
13 megn, 14aðgæslu,
15 hrós, 16 sleif, 18
sigaði, 21 bolta,22
birta, 23 starf.
Lóðrétt:
1 ógæfa, 2 hratt, 3
hræddur,4sirkill,5
námstímabil,6 þreytu,
9 vömb, 11 bátskýli,
16 orka, 17 hlóðir, 19
nöldur,20 svelg.
Lausn á krossgátu
■ng| oz 'gni 6 l'öis ZL 'UB 9 L 'isneu t L 'nnsi 6 'en| g 'uuo
S 'uegöuuq p'sne|>jjef>| £ 'po z '|t?q l liajggi nfg! iz 'spf| ZZ 'njgnj iz 'pje 8 L 'esne
91 'J0| s i 'ujneö þ l '>|æis £ t 'uru z t 'euu| o L 'ejj| 8 'ujofj l 'IIQq v '>|0|q t :»ajei