Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005
Sport DV
Renault meist-
ari bflasmiða
Spánveijinn Femando
Alonso á Renault sem á
dögunum tryggði sér heims-
meistaratitil ökuþóra í For-
múlu 1
kappakstrinum,
gulltryggði
Renault, heims-
meistaratitil
bflasmiða eftir
auðveldan sigur
í Shanghai-
kappakstrinum í
gærmorgun.
Renault hamp-
aði titíi bflasmiða með 191
stigi. Finnski ökuþórinn
Kimi Raikkönen á McLaren
varð annar í gærmorgun en
lið hans varð í 2. sæti
bflasmiða i ár með 182 stig.
í 3. sæti varð Ferrari með
100 stig, Toyota í fjórða með
88 og Williams í fimmta sæti
með 66 stíg.
Valurtapaði
Kvennalið Vals er úr leik í
Evrópukeppni félagsliða í
knattspyrnu eftir 11-1 tap
gegn Evrópu-
meisturunum
Turbine Pots-
dam en leikur-
inn sem fór fram
ytra í gær var
síðari viðureign
liðanna í 8 liða
úrslitum keppn-
innar. Margrét
Lára Viðarsdótt-
ir skoraði mark Vals þegar
hún minnkaði muninn í 2-1
en hún tábrotnaði skömmu
síðar og var skipt útaf á 16.
mínútu. Staðan í hálfleik var
6-1 en samanlagður sigur
þýska liðsins var 19-2 eftir
8-1 sigur á Laugardalsvelli
fyrir viku. Aldrei áður hefur
íslenskt félagslið náð jafn
langt í Evrópukeppni í
knattspyrnu.
Gunnar Heiðar
skorar enn
Gunnar Heiðar Þorvalds-
son heldur áfram að fara
hamförum í sænska fótbolt-
anum en hann
skoraði tvö
mörk fyrir
Halmstad í gær
sem valtaði yfir
botnlið sænsku
úrvalsdeildar-
innar, Assyriska,
5-0. Fyrra mark-
ið skoraði
Gunnará31.
mínútu þegar hann kom
sínum mönnum í 1-0 en
seinna markið kom á 67.
mínútu og var lokamark
leiksins.
Ronaldo með
tvö mörk
Brasilíumaðurinn Ron-
aldo gerði tvö
mörk fyrir Real
Madrid sem
sigraði erkifj-
endursínaíAt-
letico 0-3 á úti-
velli á laugardag
í spænsku úr-
valsdeildinni.
Þriðja markið
var sjálfsmark
en Real var einum fleira
síðustu 80 mínútur leiksins.
Tvö mörk frá Ronaldinho
nægðu ekki til að sigra
Deportivo. Leiknum lyktaði
með 3-3 jafntefli og jöfnuðu
Deportívo metin á 86. mín-
útu með marki frá Ruben
Castro. Real er komið í
toppsætið og er með fimm
stiga forskot á Barcelona
sem er f fimmta sæti.
Haukar unnu í gær sinn fyrsta sigur í riðli sínum í Meistaradeildinni í handbolta.
Liðið lagði ítölsku meistarana í Torggler Group Meran og höfðu Haukarnir þriggja
marka sigur sem hefði mátt vera helst til stærri. Haukarnir þurfa nú að vinna
ítalina og Árhus GF á útivelli ætli þeir sér annað sætið í riðlinum.
Eitt af ellefu Jón Karl Björnsson átti
stórleik með Haukum igær. Hér
skorar hann eitt afellefu mörkum
sínum. DV-mynd Valli
Sigur Hauka á Torggler Group Meran hefði hæglega getað orðið
stærri ef ekki hefði komið til skelfilegur kafii um miðjan síðari
hálfleik þegar sóknarleikur liðsins hrundi og vömin og mark-
varslan í kjölfarið. Lokatölur urðu 32-29. Ætli Haukamir sér að
minnsta kosti þriðja sætið í riðlinum má liðið ekki tapa með
þremur mörkum eða meira fyrir ítölunum ytra.
„Ég er ánægður með stigin tvö. En
hins vegar hefði ég vilja stærri sigur
því við spiluðum geysilega vel stóran
hluta leiksins. Síðan hleyptum við
þeim inn í leikinn að óþörfu og í lok-
in var þetta allt í einu orðinn hörku-
leikur," sagði Páll Ólafsson þjálfari
Hauka.
„Reynsla Halldórs Ingólfsssonar í
lokin var okkur mjög mikilvæg. Nú
em Danimir næstir og svo fömm við
til Ítalíu og spilum aftur við þá í leik
sem við verðum að ná ágætis úrslit-
um úr.‘‘
ítalimir byrjuðu leikinn betur en
Haukar spýttu í lófana eftir um tutt-
ugu mínútna leik í fyrri hálfleik og
náðu fjögurra marka forystu í hálf-
leik 15-11. í byijun síðari hálfleiks
virtust Haukarnir ætla að rúlla yfir
ítalina og náðu sjö marka forystu. En
þá var sem allur vindur væri úr Hafn-
firðingum og undir lokin þurftu þeir
að treysta á gamla brýnið, Halldór
Ingólfsson til að innbyrða sigurinn.
Hann tók leikinn alfarið í sínar hend-
ur og fiskaði vítaköst, skoraði og gaf
stoðsendingar á víxl síðustu tíu mín-
útur leiksins. Lokatölur urðu 32-29
fýrir Hauka.
„Búningamaðurinn" með
ellefu mörk
Eins og áður segir átti Halldór
góðan leik en bestir í liði séra Friðriks
vom þeir Ámi Sigtryggsson og Jón
Karl Bjömsson. Þrátt fyrir að líta
frekar út eins og búningamaður er
Jón Kari mjög öflugur vinsti homa-
maður og gerði 11 mörk í gær. Hann
er einn þessara leikmanna sem
aldrei fær það hrós sem hann á skil-
ið. Markvarsla Hauka var upp og
ofan, Birkir ívar Guðmundsson varði
vel í lok fyrri hálfleiks og byijun þess
síðari en síðan fjaraði leikur hans út
og Jónas Stefánsson leysti hann af
hólmi og varði nokkra bolta í lokin.
Slök markvarsla (talanna
ítalska liðið er sterkara enn menn
þorðu að vona. Blessunarlega fyrir
Haukana vom markverðir þeirra
arfaslakir og vörðu varla skot í leikn-
um. Varamarkvörður þeirra, hinn
geðþekki Michael Kessler var afar
ósannfærandi milli stanganna. Lflc-
lega um 1.70 sentimetrar og ekki
meira en 60 kfló. Menn með slíkan
vöxt eiga ekki að standa í marki í
Meistaradeildinni í handbolta.
Kóngurinn lofar sigri á Ítalíu
Kóngurinn að Ásvöllum, Halldór
Ingólfsson lofar stuðningsmönnum
Hauka sigri gegn ítölunum ytra.
Kóngurinn var hins vegar ekki sam-
mála blaðamanni um að hann hafi
reddað málunum í síðari hálfleik.
„Ég meina það skiptir ekki máli hver
bjargaði þessu það var fyrir öllu að
vinna leikinn. Við vomm komnir
með fína forystu en slökuðum á og
var refsað fyrir það. Nú lendum við
væntanlega í úrslitaleik við ítalina á
Ítalíu og ég lofa sigri þar,“ sagði
Kóngurinn og skelltí sér sturtu með
strákunum.
hjorvar@dv.is
Mörk Hauka: Jón Karl Bjömsson
11, Ámi Sigtryggsson 8, Anclri Stefan
4, Kári Kristjánsson 4, Halldór Ing-
ólfsson 4 og Guðmundur Pedersen 1.
Fram vann sinn fimmta leik í röö í DHL-deildinni og trónir á toppnum
Árangurinn kemur már á óvart
„Ég verð að segja að árangurinn
hefur komið mér talsvert á óvart,"
sagði Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari Fram, eftir að hans menn
unnu nauman sigur á ÍBV í gær,
28-27. Framarar vom með fjögurra
marka forystu þegar fjórar mínútur
vom óleiknar en misstu forskotíð
niður á síðustu mínútum leiksins en
náðu þó að landa sigrinum. „Þetta
var hörkuleikur enda er lið ÍBV mjög
gott. Að því leytinu til var sigurinn
afar góður."
Guðmundur segir að deildin sé
jöfn og spennandi og að greinilegt sé
að allir geti unnið alla. „Þannig hef-
ur það verið og þannig verður það
áfram. Það virðist ekki vera það mik-
ill getumunur á liðum. Við höfum
haldið okkar striki og emm ánægðir
með það. Ég áttí ekki von á að lið
sem er svo komungt og með nýjan
þjálfara myndi ganga svona vel strax
í upphafi móts. En það er lflca ljóst
að hver einasti leikur er mjög erfið-
ur." eirikurst@dv.is
MörkFram: Sergiy Serenko 8, Jón
B. Pétursson 6, Jóhann Einarsson 4,
Þorri Gunnarsson 4, Haraldur
Þorvarðarson 3, Stefán Stefánsson 2,
Sigfús Sigfússon 1.
Mörk ÍBV: Mladen Cacic 8,
Goren Kuzmanoski 7, Ólafur Víðir
Ólafsson 5, Michal Dostalin 4, Jan
Vtipil 2, Sigurður Bragason 1.
Markahæstur Sergyi
Serenko skorar hér eitt
af átta mörkum slnum i
gær. DV-mynd Valli