Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2005, Side 23
DV Sport
MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 23
Juventus
óstöðvandi
ítölsku meistararnir í
Juventus ætla ekkert að gefa
eftir í úrvalsdeildinni því
liðið vann á laugardag sjö-
unda leik sinn
í röð og eru því
með 100% ár-
angur það sem
af er móti. Al-
essandro Del
Piero gerði
mark Juve á
24. mínútu.
A.C. Milan
sigraði Caliari
2-0 á útivelli í
gær og eru
fimm stigum á eftir meistur-
unum í öðru sæti. Gilardino
og Schevchenko gerðu mörk
Milan.
Guðjón Valur
með þrettán
Guðjón Valur Sigurðsson
er besti handboltamaðurinn
í þýska handboltanum um
þessar mundir. Á laugardag
gerði hann þrettán mörk fyr-
ir Gummers-
bach sem sigr-
aði Concordia.
Félagi hans
Róbert Gunn-
arsson gerði
tvö mörk fyrir
liðið sem er í
öðru sæti á
eftir Mag-
deburg. Alex-
ander Peter-
son gerði 11
mörk fyrir
Grosswallstadt
sem sigraði
Hambourg og Einar Hólm-
geirsson fimm. Snorri Steinn
Guðjónsson gerði tíu mörk
fyrir Minden sem tapaði fyrir
Lemgo í gær. Logi Geirsson
og Ásgeir Öm Hallgrímsson
léku ekki með Lemgo vegna
meiðsla. Jaliesky Garcia skor-
aði 4 mörk fyrir Göppingen
sem gerði jafntefli við
Dússeldorf á heimavelli sín-
um. Markús Máni Michaels-
son skoraði 3 mörk fyrir
Dusseldorf.
Ciudad tapaði
Magdeburg vann tíu
marka sigur á Bregenz í
Þýskalandi, 37-27, í Meist-
aradeild Evrópu í handbolta.
Arnór Atlason gerði þrjú
mörk fyrir Magdeburg og
Sigfús Sigurðsson tvö. Dagur
Sigurðsson sem er spilandi
þjálfari skoraði 5 mörk fyrir
Bregenz. Ólafur Stefánsson
skoraði 2 mörk fyrir Ciudad
Real sem tapaði fyrir Fotex
Vezsprem á útivelli, 31-29.
Ciudad er af flestum álitið
besta lið Evrópu um þessar
mundir.
Válerenga á
toppinn
Válerenga, lið Árna
Gauts Arasonar, er komið
eitt á toppinn
í norsku úr-
valdsdeildinni
í knattspyrnu
eftir marka-
laust jafntefli
gegn Viking á
útivelli. Start,
lið Jóhannes-
ar Harðarson-
ar, sem er í
öðru sæti stigi
á eftir topp-
liðinu, tapaði
fyrir Haraldi
Frey Guðmundssyni og fé-
lögum í Álasundi 5-4 á
laugardag. Válerenga eru
með pálmann í höndunum
þegar aðeins tvær umferðir
eru eftir.
Önnur umferö Iceland Express deildar karla í gær
Fjögur lið enn taplaus
Njarðvík, Grindavík, Keflavík og
Hamar/Selfoss eru enn með fullt
hús stiga að loknum tveimur um-
ferðum í Iceland Express deild karla
í gær. íslandsmeistararnir í Keflavík
unnu 9 stiga sigur á Borgnesingum á
heimavelli, 105-96, og var Jón Norð-
dal Hafsteinsson stigahæstur sinna
manna með 24 stig.
í KR-heimilinu áttust við heima-
menn og bikarmeistarar Njarðvíkur
og var Einar Árni Jóhannsson, þjálf-
ari Njarðvíkur, síður en svo ánægður
með leikinn þó svo að hans menn
höfðu sigur. „Þetta var ekki góður
leikur, heilt yfir,“ sagði Einar Árni.
„Varnarleikurinn var í sjálfu sér fínn
en við vorum ekki að gera góða liluti
í sókninni."
Jafnræði var með liðunum fram-
an af en á síðustu sex mínútum
leiksins sigu gestirnir fram úr og var
Jeb Ivey þeirra besti og stigahæsti
maður, með 21 stig. „Við megum
vera mjög sáttir við að hafa náð að
landa sigri hérna í kvöld enda töp-
uðum við hér illa síðastliðinn vetur.
Það er ekki hægt að kvarta undan
því að vinna í Frostaskjólinu."
eirikurst@dv.is
Jeb Ivey
Hefur farið mikinn í fyrstu
tveimur leikjum Njarðvíkur í haust.
KÖRFUBOLTI KARLA
,
Urslit leikja í lceland Express deild
karla í gærkvöldi:
KR-Njarðvlk 59-69
Stig KR: Ashley Champión 19, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 11,
Skarphéðinn Ingason 11.
Stig NJarövíkur: Jeb Ivey 21, Guðm.
Jónsson 17, Friðrik Stefánsson 14,
Brenton Birmingham 12.
Flaukar-Fjölnir 78-86
Þór Ak.-Grindavlk 90-94
Hamar/Selfoss-Höttur 90-76
ÍR-Snæfell 106-94
Keflavlk-Skallagrlmur 105-96
Stig Keflavíkur: Jón Norðdal
Hafsteinsson 24, AJ Moye 22,
GunnarStefánsson 11.
Stig Skallagrlms: Jovan Zdravevski
26, Christopher Manker 23, Dimitar
Karadzovski 15, Pétur Sigurðss. 11.
TRlBAN0
VEKJARI
MYNDAVEI
DAGB0K
MYNDSKILAB0Ð
Q vodafone
mm m
MA\Á'ú\:/D
AGA
AF0NE 8. - 23. 0K1ÓBER
hcii sem kaupa Nokia símteki á tiniabilinu skrá nafn sitt s
pott og eiga mögoieika á að vinna ferð fyrir tvo til Evrópu.
SKIPT UM ÚTLIT
B0KGARFERÐ
OðVoððfone
www. öövoóáifíwwJs
1414
tuv
NQKIA
LASER SKEL FYLGSR