Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1933, Síða 18

Símablaðið - 01.11.1933, Síða 18
S I M A B L A Ð I Ð 34 er best borgið innan vébanda félagsins, án þess, að um nokkra þvingun sé að ræða. Með hinum nýju lögum eru meiri kröfur gerðar til félaganna, en áður, — en þeim veitast líka meiri hlunnindi og öruggari styrkur. En nú á tímum, þegar alt logar í stjórnmála-erjum og liatri, og reynt er að troða þeim inn i öll möguleg félög, þá má ef til vill telja það eitt af merki- legustu ákvæðum hinna nýju laga F. í. S., og sem vænta má öryggis af, að félagið skuli vera hlutlaust í stjórn- málum. Nýir félagar. Þó það, í fljótu bragði, megi þykja undarlegt, þá liefir það þó verið svo, að stór hópur símamanna liefir jafnan staðið utan við félagsskapinn, en notið þeirra hlunninda, sem félagið liefir fengið framgengt, símamönnum til handa. Tvö síðustu árin hefir þetta færst í annað horf. Fólk hefir streymt i félagið meira en dæmi eru til áður, svo félögum hefir fjölgað mjög, þrátt fvrir þá fækkun, sem varð, er bæjar- símamiðstöðin var lögð niður. Árið 1932 gengu 18 nýir meðlimir í félagið, og á hinu liðna ári 34. Og er þá svo komið, að flest alt starfsfólk símans telst meðlimir félagsins. Af hverju stafar þessi fjölgun: Fyrst og fremst af þvi, að félagið hefir með starfi sínu og framkvæmdum skapað meðlimum sínum þá aðstöðu, er trygg- ir afkomu þeirra að miklum mun. I annan stað hefir þeim skilist, að mál- um þeirra er best borgið í höndum fé- lagsins. — Svo er líka málum stéttar- innar best borgið, að hún vinni sam- taka og einhuga að liagsmunamálum sínum, en einstaklingarnir rói ekki hver á sínum báti, sundraðir, og tor- trygnir liver í annars garð. En þess er þá að vænta, að hinir nýju félagar, sem margir eru á æskuskeiði, leggi fram krafta sína í þágu félagsins, og lijálpi til að hleypa nýju lífi í það. Starfsmannareglurnar og samvinna. Eitt af því, sem mun gera líðandi ár minnisstætt í sögu símamannastéttar- innar, verða starfsmannareglurnar. Þó þær séu ekki nema að nokkru levti á- vöxtur af starfi F. í. S., eru þær þó að minsta kosti talandi vottur þess, hver starfsaðferð er happadrýgst fyrir félag- ið, til að koma fram málum sínum. - Þær réttarbætur og hlunnindi, sem starfsmannareglurnar veita starfs-fólki simans, eru svo víðtækar, að slíku verð- ur aðeins náð í einu stökki fyrir þá samúð, sem félagið liefir unnið sér hjá yfirstjórn símans. — Með sanngirni í starfi og án alls ofstopa, mun félagið jafnan fá mestu ágengt um mál sín, og eiga mestum skilningi að mæta. Það hefir reynslan sýnt og mun halda áfrani að sýna. Þess ber því að óska við þessi áramót, að félagið beri gæfu til að vinna áfram á þeim grundvelli, en engum annarlegum öflum takist að leiða það lit af honum, félaginu og stéttinni til tjóns. — A. G. Þ. Símstjórinn á Stapa á Snæfellsnesi keypti Ijósavél þá, er notuð hafði verið af vísinda- mönnum þeim, er dvöldu á Snæfellsjökli síS- astl. ár. Hefir hann nú raflýst íveruhús sitt og útihús og reynist stöðin hið besta.

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.