Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.11.1935, Page 28

Símablaðið - 01.11.1935, Page 28
S í M A fí L A Ð I Ð 154 Setningin á verkstæðinu. Eins og getið var i síðasta blaði, hef- ir það valdið mikilli óánægju meðal símafólksins, livernig ráðstafað hefir verið formannsstöðu við viðgerðar- stofu landssímans. Út af því harst stjórn félagsins málaleitun frá ýmsum starfsmönnum bæjarsímans, sem stjórnin sendi lands- simastjóra. Vísaði hann málinu frá sér og taldi, að félagið hefði ekki ástæðu til að skifta sér af því. Á fjölmennum félagsfundi var þetta mál til umræðu. Var gerð fundarsam- þykt, er fór í þá átt, að ætlast var til þess, að stjórnin léti málið ekki þar með detta niður. Eftir því, sem stjórnin hefir kvnst þessu máli, má fullyrða, að það liefir ekki verið ástæðulaust, að starfsmenn bæjarsímans kvörtuðu undan þessari ráðstöfun, og bentu á þá hættu, sem félaginu er búin af þvi fordæmi. Það verður að telja það mjög misráðið, að þessi setning skyldi ekki rædd á fundi i símaráðinu. Ef slík mál eiga ekki að ræðast þar, þá verður ekki séð, að það sé eftirsóknarvert fyrir fé- lagið, að eiga fulltrúa í því ráði. Og Símablaðið býður Júlíus velkominn heim og vonar, að hann verði enn á ný sami góði og lífgandi krafturinn í félagslífinu, og hann var fyr meir. mun þá mega segja, að sannist sú spá ýmsra félaga, að þau réttindi reyn- ist ekki nema til skrauts. En það er engum efa undirorpið, að einmitt það ráð liefir aðstöðu til þess að gera hæði símastofnuuinni og símafélaginu mikið gagn, ef rétt er á lialdið og vilji er til, hjá stjórn sím- ans, að hlusta á þau rök og skoðanir, sem til staðar eru í hinni breiðu fylk- ingu starfsfólksins. Ekki einungis um hagsmunamál fólksins, en einnig ýms hagsmunamál stofnunarinnar. ()g livað snertir það mál, sem hér um ræðir, er Símablaðið nú ekki í neinum efa um, að það hefði get- að skýrst svo við slíkar umræður, að það liefði aldrei orðið neinn ásteyt- ingarsteinn.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.