Símablaðið - 01.11.1935, Page 32
68
S 1 M A B L A Ð 1 Ð
Nokkur vel
valin orð.
Eftir afstaðnar kosningar í Belgíu í
vor, var nýr maður settur í embætti
póstmálaráðlierra. Um leið og hann
tók við þessu nýja embætti, sendi hann
út umburðarbréf lil allra undirmanna
sinna, til þess að skýra þeim frá, á
livaða grundvelli bann hefði bugsað
sér að byggja samstarfið, og meðal
annars skrifaði hann: „Vegna þess, að
eg hata stóra skjalabunka, heimta eg
skjóta afgreiðslu hinna ýmsu mála.
Eg geng út frá því, að verkfræðingar
og forráðamenn hinna einstöku starfs-
deilda, sem lieyra undir mína stjórn,
sýni sama áhuga í starfinu, og mér það
traust, sem fyrirrennarar mínir hafa
notið. En til þess að ætlunarverk mitt
verði fullkomnað, beini eg orðum mín-
um til hins vaxandi skilnings og vilja
starfsfólksins. Ef einhver getur komið
með hagkvæmar uppástungur eða bent
á sparnaðarleiðir, þá má hann ekki
liggja á þeim. Viðleitni og góðan vilja
einstaklingsins getum við ekki virt að
vettugi nú á tímum. Og í þeirri von,
að óskir mínar megi rætast, um að
eg verði sanngjarn og réttlátur stjórn-
andi starfsfólksins, þá er eg einnig á-
kveðinn í því að taka hart á hverjum
þeim, sem komast vill undan að gera
skyldur sínar. Eg mun veita athygli
öllum tillögum og persónulegum kvört-
unum, en vona fyrst og fremst, að ná-
in og örugg samvinna megi verða milli
min og félagsskapar starfsfólksins.1)
1) Ráðherrann hefir þegar gefið fulltrú-
um starfsmannafélagsins tækifæri til þess að
ræða við hann um áhugamál félaganna.
Hafliði heilsar upp á Gullfoss, fyrsta sinni.
Eg vil leggja áherslu á það, að i dag
verðum við að sýna vaxandi skilning
í framkomu okkar við viðskiftamenn-
ina, en lipurð og áhuga í starfinu. Og
sem æðsti maður þessarar stofnunar
mun eg hafa vakandi auga á því, að
allir læri þennan eiginleika.
„Post-Nachrichten“.
Iiitla
Bílastödin.
Vanti símafólkið bifreið,
þá á að hringja í
síma 1380 (tvær línur).