Símablaðið - 01.11.1935, Qupperneq 36
72
SlMABLAÐIÐ
það, að tekið verður á móti skeytasend-
ingum livaðanæfa af hnettinum.
Hinn 2. febrúar 1932 er afvopnunar-
ráðstefnan kom saman, voru stutt-
bvlgjusenditækin tekin í notkun, en þau
eru sérstaklega ætluð til firðsendingar
til hinna fjarlægustu staða. Hinsvegar
liafði millibylgjustöðin, sem sérstaklega
er ætluð Evrópu, verið i fullum gangi
síðan 1929.
Að jafnaði er starfsemi stöðvarinnar
m. a. liáð skeytasendingum frá fulltrúa-
ráði Þjóðabandalagsins, til meðlima
þess, og jafnframt ríkisstjórna utan
Evrópu. Einnig annast stöðin almenn
skeytaviðskifti til og frá Svisslandi. Er
þannig náð aðaltekjum stöðvarinnar,
og munu þær hrökkva langt til
reksturskostnaðar. Annars kemur
tekjuhallinn á reikning Þjóðabanda-
lagsins.
Fljótlega kom það í ljós, að stöðin
var þýðingarmikil frá stjórnmálalegu
sjónarmiði. T. d. var það 1932 í deilu-
málum Japana og Kínverja, út af Man-
ehuríu, að stöðin hafði þýðingu sem
tengiliður milli rannsóknar-sendinefnd-
ar Þjóðabandalagsins á þeim stöðum og
fulltrúanna í Sviss. En síðar er Þjóða-
bandalagið tók þá deilu til meðferðar,
annaðist stöð þessi hinar opinberu
skeytasendingar. Japanska sendiráðið í
Sviss notaði stöð þessa mikið um ára-
skiftin 1932—’33. Mörgum þeim ræðum
er um þær mundir voru, haldnar í Genf
var endurvarpað af „Radio Nations" til
Japan og U. S. A., beint úr ræðusaln-
um, jafnóðum og þær voru fluttar.
Einnig voru þá ræður teknar niður á
hljómplötur til endurvarps síðar sömu
leið. Einnig hafa tilraunir um firðsam-
töl milli Genf og Tokio gefist ágæt-
lega.
Sími 1540.
Bifreiðastöð íslands
Sími 1540.
Tóbaksvörup.
Vindlar, Cigarettur, Reyktóbak,
Neftóbak, Sælgæti, Ávextir.
Litið inn i
Tóbaksverzlunina Havana
Austurstræti 4. , Sími 3380.
Harla merkileg skeytasending átti
sér stað frá stöðinni „Radio Nations“
um vorið 1933. Og mun slík sending
skeyta vart eiga sinn líka. En það var
er nefnd sú er Þjóðabandalagið hafði
skipað i deilu Japana og Kínverja, kvað
upp tillögur sínar.
Plagg þetta var samtals 15.000 orð,
og áskilið var að það skyldi firðtalað frá
„Radio Nations“ í skevtaformi. Firð-
talið gekk ágætlega og samtímis var
innihaldið móttekið á eftirtöldum
stöðum: Washington (fjarlægð 6.500
km.), Shanghai (fjarl. 9.250 km.) ,Tokio
(fjarl. 9.500 km.), Rio de Janeiro
(fjarl. 8.750 km.), Ruenos Aires (fjarl.
11.000 km.) og Sidney (fjarl. 16.000
km.).
Meðan á þessu firðtali stóð, var stöð-
ugt samand við allar viðtökustöðvam-
ar, svo hægt væri að fylgjast með
hvernig viðtakan gengi, og laga sig eftir
þeirri stöðinni er seinvirkust var í mót-
tökunni, svo þannig yrði komist hjá