Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 14

Símablaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 14
6 SlMABLAÐlÐ | Karl J. Jensson | loftskeytamaður. F. 21. okt. 1911. — D. 24. mars 1937. — Voldugur er sá, sem sigðinni held- ur, máttugur en blindur að margra dómi. Dauðinn sést ekki koma, en hann fer ætíð með sigurinn af hólmi. Karl var ungur þegar hann beið ó- sigur í einvíginu við dauðann, en Karl hafði unnið hvers manns hug, er lion- um kynntist. Karl var nýbyrjaður að starfa lijá Landssímanum; hafði aðeins unnið hér í rúma viku er liann lagðist l)analeg- una, í lungnabólgu. — Lifið var stutt og stuttur hans vinnudagur, en vinum KarJs fanst, að af óeyddum lífskrafti lians, þrótti og hæfileikum legði við andlátsfregnina yfirnáttúrlegan ljóma — líkan kvöldroðanum sem lýsir him- inhvolfið í dagslok — þegar sólin hverf- ur okkur sjónum um stundarsakir. E. Á. Kjörfundur F. I. S. var haldinn fimtudaginn 14. jan. 1937. Voru þar kosnir á kjörlista til stjórn- arkosningar: Andrés G. Þormar . . með 71 atkv. Kristján Snorrason . . — 65 — Guðm. Sigmundsson . —63 — Jónas Eyvindsson .... —61 — Ingólfur Einarsson . . —-55 — Sofía Daníelsson .... — 44 — Guðm. Jóhannesson . . — 41 — Gunnar Bachmann . . — 40 — Júlíus Pálsson ...... —40 — Arni Sveinbjörnsson . . — 38 — í kjörstjórn voru kosnir: Steindór Björnsson, Hákon Kristoffersson og Kjartan Konráðsson. A fundinum voru kosnir þeir: And- rés Þormar, Guðm. Pétursson og Guðm. Sigmundsson til að athuga hið nýja uppkast að sameiginlegum starfs- mannareglum fyrir |)óst og síma. 30 ára afmæli Landssimans. Leidrétting. 1 jólablaði Símablaðsins 1936 var þvi miður nokkur skekkja í greininni um 30 ára afmæli Landssímans. A hls. 37 er þess getið að 5 af fyrstu símastjórunum hafi verið símastjórar þessi 30 ár; eru fjórir þeirra taldir, en nafn þess fimta, Péturs Sighvatssonar, liefir fallið þar úr. Þá her þess að geta, að vegna mis- skilnings er slept 6. símastjóranum úr þessum hóp, en það er Sig'urður Krist-

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.