Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 21

Símablaðið - 01.01.1937, Blaðsíða 21
S í M A B L A Ð 1 Ð 13 bjölluskálanna og síðast en ekki síst styrkur hringingarinnar og óregluleg og breytileg liringitíðni. Nýjustu gerðir bjalla eru nú búnar með aðeins einum, en sterkum, stálseg- ul, og er því hægara að stilla þær en gömlu bjöllurnar, sem oft voru gerð- ar með tveim stálsegulum; enn frem- ur eru stilliafstöður nýju bjallanna ein- faldari og hentugri. Skuli hringingin vera mjög kröftug, verða kraftlinur stálsegulsins að vera sameinaðar, eins vel og liægt er og loftmótstaðan fyrir stálsegulsviðið lit- il. í þessu tilfelli er næmnin minni fvrir veikum hringistraumum og er erfitt að láta bjölluna hringja vel i sambandi við langar og lélegar linur. En eigi næmni bjöllunnar aftur á móti að vera mikil fyrir veikum hringistraumum, verður kraftlínurás- in að vera dreifðari og þvi meiri loft- mótstaða í stálsegulsviðinu og litil kólfsveifla notuð. Kólfsveiflan i bjöllu- skálarnar verður þá veikari. Annars er stilling hjallanna ,oft að miklu leyti iiáð gerð þeirra. Deyfðir og gamlir segular gera það oft að verkum, að bjallan hringir ekki vel, en haégt er að magna þá að nýju. Það er þó vafasamt, hvort það borgar sig að gera það, vegna þess að ending segulmagnsins i gömlu stál- segulunum er ekki eins mikil og í lúnum nýju gerðurn. Símabjöllur hringja betur við lága bringitíðni, sérstaklega á lélegum og löngum línum. Há hringitíðni vill verka þannig, að draga úr segulmagni stálsegulsviðsins, svo hringingin versn- ar eftir nokkurn tíma. Bilanir í hljóðnemaspennum. Bilanir eru sjaldan i hljóðnema- spennum. Þær bilanir, sem kunna að koma fyrir, eru slit eða sveifla í vafn- ingunum. Vegna eldingar eða snert- ingar við sterkstraum getur komið fyr- ir, að vafningarnir brenni (bráðni) og getur það orsakað straumsamband milli forvafs og eftirvafs eða slit í eftirvafi. Þessa bilun er liægt að finna með því að lilusta í hlust raðtengda raflilöðu, og er þessi aðferð við leit- un að hilun mjög almenn og mikið notuð i símatækninni. Sé saml)and milli forvafs og eftirvafs, heyrast há- ir smellir, þegar hin raftengda hlust við rafhlöðu er tengd milli forvafs og eftirvafs. Sé slit í vafningunum heyr- ast næstum engir smellir, þegar rað- tengda hlustin við rafhlöðu er tengd við vöfin. Sé hljóðnemaspennir öfugt tengdur í talfæri, þannig að forvafið er tengt við línuna og eftirvafið við rafhlöð- una, þá heyrist altaf illa frá talfær- inu, en þar á móti veikist hlustnæmni þess sjálfs ekkert. Selskinna Landssímans. Gamall símastjóri skrifar: Eg er sammála Gamla slmastjóran- um (á blaðsíðu 56 í jólabl. síðasta) um „Selskinnu", og eg vil bæta því við, að um leið og safnað væri hinu gamla efni i frásögn um símann og ýmsa atburði bonum skylda,, þá ætti nú á hverju ári að safna sem mestu af því, sem

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.