Símablaðið - 01.01.1937, Page 22
14
SlMABLAÐIÐ
til felst. Símafólkið úti um land ætti
að vera á varðbergi í þessu efni og
senda svo ritstjórn blaðsins eða þar til
völdum mönnum alt, sem til féllist af
símafróðleik og skrítlum. En þar sem
gera mætti ráð fyrir að margt kæmi,
sem ekki væri viðeigandi að birta strax,
eða jafnvel aldrei, þá yrði að hafa góða
skoðun og vandað eftirlit með því, tii
þess að særa engan. En við vitum, að
surnt geiur verið skoplegt og líka
merkilegt, en væri ekki til þess að birta
það samtíðinni.
Eg hefi oft lieyrt vel greindar mann-
eskjur koma með liinar mestu liauga-
vitleysur í hugsunarleysi, eða. af al-
gerðu þekkingarleysi á vissum sviðum,
og eru sumir binna lærðu manna þar
lítið betri en almúginn. Eg bið yður
svo að fvrirgefa, og lesa í málið þetta
flýtisklór. Ef þér kærðuð yður um, g'æti
eg kannske miðlað einhverju smávegis
við tækifæri.
Stjórn félagsins hefir skift þannig nieð sér
verkum:
Form.: Andrés G. Þormar.
Varaform.: Guðm. Sigmundsson.
Ritari: Ingólfur Einarsson.
Gjaldkeri: Kristján Suorrason.
Fjármálaritari: Jónas Eyvindsson.
Kosning í Símaráðið er lokið, og var kos-
inn Guðm. Pétursson, með 32 atkv., en til
vara Ingibjörg Guðmundsdóttir, nreð 29 atkv.
Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Arn-
þrúður Ingólfsdóttir símamey, Sf. og Steinn
Stefánsson kennari.
Ungfrú Bergljót Wathne símamey, R. og
Friðrik Bertelsen, heildsali.
Samsæti og dansleik héldu F.Í.S. og Starfs-
mannafélag Útvarpsins að Hótel Borgl3.febr.
síðstt. Var þar margt manna og fjör mikið.
Símvirkjar
hafa sótt um það til Iðnráðsins, að fá iðn-
grein sína viðurkenda. Enn hefir ekki kom-
ið svar Iðnráðsins við því.
Smámál hefir. það verið álitið, hvaða nafn
skuli gefa „Sumarbústað simamanna að
Vatnsenda“. Nafnval þarf þó ekki að vera
neitt aukaatriði. Nafnið eitt getur haft seið-
magn og fegurð, getur lokkað og laðað. Eins
og ei skal greipa dýran stein í smekklausa
gjörð, svo skal og velja nafn að verðleikum.
Hvað er „Sumarbústaður" að vetrarlagi
eða „Hressingarhæli“ hraustum símamönn-
um. — Þá er „Nafnleysa“ betra nafn.
Eg beini þeirri tillögu minni tit stjórnar
F.Í.S. og sumarbústaðarnefndar, að heitið
verði verðlaunum, t. d. kaffi með pönnu-
kökum, þeim, sem kemur með besta nafnið
á Sumarbústaðnum fyrir hvítasunnu, og
verði síðan haldin rkírnarveisla þar upp-
frá. — Stjórn F.Í.S. ákveði einhvern einn
dómara.
Kaffivinur.
Félagsprenlsmiðjan.