Símablaðið - 01.09.1938, Side 14
S I M A B -L A Ð l i)
46
Eigi handrafallinn að vera sveiflaður
í hvíldarstöðu eru fjaðrirnar M og N
tengdar við sín hvora fjöðrina, sein eru
í sambandi við akkerisvafið og sem ytri
leiðslurnar einnig ern tengdar við. Eigi
handrafallinn aftur á móti að vera rof-
inn i hvíldarstöðu, er önnur ytri leiðsí-
an tengd við fjöðrina L, en M er tengd
við hægri strokfjöðrina á handrafaln-
um, en hin ytri leiðsla við þá vinstri.
Kostur þessa handrafals gerðar er að
akkerisvafið er ekki í sambandi við
kjarnann.
Að lokum skal geta þess, að oft kem-
ur fvrir, að áhaldakassinn þvingar sveif-
arásinn, svo að liann gengur ekki aftur
sjálfkrafa út eftir hringingu. Skal þess
vandlega gætt, að þetta komi ekki fyrir.
Vogarstangar- eða gaffalbúnaður.
Eins og áður er getið, er þetta hún-
aður, sem gerður er þannig, að um Ieið
og heyrnartalfærið er tekið af eða lagt á
áhaldið, þá skiftir sjálfkrafa frá tal- til
hringistöðu og öfugt.
Fjaðrir þær, sem eru í sambandi við
vogarstangar- eða gaffalbúnaðinn eru
oft tilefni til bilunar, ef þær eru óhrein-
ar eða gefa lélegt samhand vegna öf
lítils þrýstings. Óhreinindum af fjöðr-
unum er hægt að ná burtu með stífum
pappír eða fínum sandpappír. Réttum
þrýsting er erfiðara að ná, en er reynt
á þann hátt, að beygja fjaðrirnar, svo
að þær þrýsti fastara. Sé nauðsynlegt
að losa fjaðrirnar, verður að gera það
með mikilli nákvæmni og varfærni.
Á veggáhöldum (sérstaklega á pvra-
mid-borðum með lausri vogarstöng)
kemur það oft fyrir, að vogar- eða gaff-
alstöngin gengur elcki alveg niður af
þunga heyrnartalfærisins eða hindrast á
annan hátt í að komast í sína réttu
r,r.r.r.jrr'r.r.r,!.#,r,r r,r,r,r,r.f,r- . ,
:;
:;
j;
:;
:;
:;
:;
:;
:;
Símablaðiö
er gefið út af Félagi ísl. símamanna
og kemur út 6 sinnum á ári.
Verð kr. 4.00.
Ritstjórar: Andrés G. Þormar og
Ingólfur Einarsson.
Pósthólf 575.
:;
stöðu. Við þetta myndast bilun eða bil-
anir serri konra og hverfa, senr maður
verður að vera vel á verði fyrir. Einrrig
getur konrið fyrir, að sambandsfjaðra-
settið ýtist úr eðlilegri stöðu sinni, svo
að vogarstöngin eða gaffallinn fær þær
ekki til að rjúfa eða tengja á réttan Iiátt.
Oddur Oddsson,
fyrv. stöðvarstjóri, Eyrarbakka, lést
að heimili sínu 22. sept. s. 1. Þessa nrikla
gáfu- og mentamanns verður getið
nánar liér í næsta blaði.