Símablaðið - 01.03.1943, Blaðsíða 12
12
S 1 M A B L A Ð 1 Ð
B. Baldvinsson bókari og Andrés G. Þor-
mar aöalgjaldkeri, tilnefndir af Bandalagi
starfsm. ríkis og bæja.
Því miður var nefndin ekki skipuð fyr en
á miðju sumri, (12. júlí), en ætlað að
skila áliti áður en Alþingi kemur saman I.
sept.
Var það mjög misráðiS, þegar loksins er
hafizt handa um þetta mikilsverða mál, að
draga svo rnjög skipun nefndarinnar.
— Opinberir starfsmenn eru sá fjöldi,
störf þeirra og launakjör svo gjörólík og
án samræmis, að um geysimikið starf er
hér að ræða. Nefndin verður vitanlega að
leita sér upplýsinga um starf hvers ein-
staklings og meta það, en til slíks þarf mik-
inn tirna, ef vel á að vera. Þá er tírninn, sem
til þessa starfs er valinn, í fyllsta máta ó-
hentugur. Við fjölda manna þarf að tala og
leita upplýsinga hjá, en á þessum tíma eru
flestir í sumarleyfum. Endurskoðun launa-
iaganna og samræming launa opinberra
starfsmanna hefir dregizt úr hófi, enda er
orðið hið mesta ósamræmi í launagreiðslum
hins opinbera. En úr því verður ekki bætt,
svo að til frambúðar sé, nema við það verði
lögð fyllsta alúð. Skal því ósagt látið, hvort
launamálanefndinni tekst að skila áliti svo
fljótt, að launalögin verði afgreidd á haust-
þinginu. Til mála gæti þó komið, áð afgreiða
launaflokkunina, — og verður ef til vill
horfið að því ráði.
Félag forstjóra
við póst og síma.
var stofnað á Akureyri í ágúst síðastliðn-
um. í félaginu eru þeir starfsmenn stofn-
ananna, er ekki geta verið meðlimir FÍS eða
PFÍ.
Mun það hafa ýtt undir stofnun þessa fé-
lags, að svo að segja allir opinberir starfs-
menn eru nú orðnir félagsbundnir innan
vébanda Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, — og Bándalagið er orðið það öfl-
ugt, að ekki verður framhjá því gengið,
þegar rætt er um kjör opinberra starfs-
manna.
Stjórn þessa nýja félags skipa Gunnar
Gunnar Schram.
Schram símastjóri á Akureyri, formaður,
Ólafur Kvaran ritsímastjóri í Reykjavík,
ritari, og Sigurður Dahlmann símastjóri á
ísafirði, gjaldkeri.
Félagið hefir þegar sótt um upptöku í
BSRB og kosið Friðbjörn Aðalsteinsson
skrifstofustjóra fyrir fulltrúa á Bandalags-
þingið í haust.
Símablaðið óskar þessu nýja félagi góðs
gengis og væntir góðrar samvinnu milli
þess og hinna annara stéttarfélaga pósts
og' sírna.
Gunnar Schram, formaður hins nýstofn-
eða félags, var formaður FIS árin 1918—
1934 og vann manna mest að því, að skapa
félaginu það áhrifavald, er það hefir búið
að. Flestir meðlimir hins nýja félags hafa
átt sæti i stjórn FÍS.
fffdaJfundur.
FSBS var haldinn á Sauðárkróki dagana
14. og 15. ágúst s.l. Formaður félagsins,
Karl Helgason, símastjóri á Blönduósi, gat
ekki mætt á fundinum, sökum veikinda.
Á fundinum voru rædd ýms hagsmuna-
mál félagsmanna, einkum út frá nýjurn við-
horfum, sem skapazt hafa, svo sem orlofs-
lögunum o. fl.
Þá var sanrþykkt að sækja urn upptöku
í Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, og
kosnir fulltrúar á þing þess, þeir Magnús
Oddsson og Þorkell Teitsson. Ákveðið var