Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 Fréttir DV Skaut sjálfan sig „Þetta var ótrúlegt hvað þeir voru fljótir," segir Gunnar Stefánsson, sviðs- stjóri björgunarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Lands- björgu, um viðbrögð björg- unarsveitarinnar Ársólar á Reyðarfirði. Rétt fyrir hálf- tvö í gær var sveitin kölluð út þar sem rjúpnaskytta hafi fengið voðaskot í höndina í Svínadal. Ár- sólarmenn voru komnir að manninum aðeins sex mín- útum eftir að tilkynningin barst. Skyttan hafði dottið með þeim afleiðingum að skot hljóp úr byssunni. Að sögn Gunnars fór betur en á horfðist. Ekkertvíná Boomkikker Borgarráð hefur svipt veitingastaðinn De Boom- kikker vínveitingaleyfi tíma- bundið vegna ítrekaðra brota í rekstri. Eigendur staðarins höfðu fengið áminningu frá lögreglustjór- anum eftir að þeir höfðu orðið uppvísir að því að selja áfengi utan heimilaðs veit- ingatíma, veita gestum að- gang eftir að heimiluðum afgreiðslutíma lýkur, og vegna dvalar tveggja ung- menna, 15 og 17 ára, á staðnum. Sviptingin tekur gildi á föstudag og nær ff am á sunnudag. Áfengisveit- ingaleyfi staðarins rennur svo út 1. janúar 2006. Birna Smith og eiginmaður hennar hafa tapað máli sem höfðað var á Norðurlandi vegna galla í sólpalli húss sem þau seldu fyrir nokkru. Birna Smith vakti landsat- hygli þegar hún kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins og lýsti því þar yfir að hún gæti talað við stofnfrumur og stundaði svonefnda DNA-heilun. „Nýju eigend- urnir héldu því fram að sval- irnar væru ekki nógu vel byggðar." Kærunefnd á villigötum Kærunefnd fjöleignar- húsamála fór út fyrir lögin með úrskurði varðandi bfla- stæðadeilu við fjölbýlishús. íbúðareigandi í húsinu á bflskúr við húsið og taldi sig eiga þar rétt til að leggja bflum. Eig- andi kjallaraíbúð- ar var þessu ósam- mála. Umboðs- maður Alþingis hefur nú komist að þeirri niður- stöðu að áðumefnd kæm- nefiid hafi við úrlausn máls- ins beitt reglum sem gengju gegn skýmm orðum lag- anna „enda væri hugtakið „sérafnotaflötur" hvorki að finna í lögunum sjálfum né í athugasemdum er fylgdi frumvarpi að lögunum". Lánið lék ekki við Birnu Smith og Guðmund Lárusson, eigin- mann hennar, í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær þar sem þau töpuðu máli gegn hjónum sem keypt höfðu af þeim hús- eignina Ekru í Eyjafjarðarsveit. Kaupendurnir, Helgi Baldursson og Helga Árnadóttir, keyptu Ekru á 22 milljónir en komust síðar að því að sólpallur var ekki í lagi né heldur hitalögn á baðher- bergisgólfi. Héldu þau eftir greiðslu og unnu síðan málið fyrir dómi. Sáu Birna Smith og eiginmaður hennar þar á eftir tæpum tveimur milljónum króna. (Kastljósinu Bima Smith vakti landsathygli þegar hún kom fram í Kastljósi Rík- issjónvarpsins og lýsti því þar yfir að hún væri DNA-heilari og gæti sjálf talað við stofnfrumur í líkömum annarra. Hefði heilun hennar áhrif á stofhfrumurnar og þá ekki aðeins á þá sem hlut ættu að máli heldur einnig afkomendur þeirra. Eins og gefur að skilja vakti málflutningur- inn verðskuldaða athygli í Kastljós- inu. Vildu 2 milljónir „Við seldum húsið fyrir norðan og nýju eigendurnir héldu því fram að svalirnar væm ekki nógu vel byggðar," sagði Birna Smith í sam- tali við DV skömmu eftir að dómur féll í gær. „Þau vildu fá tvær milljón- ir." Kaupendur Ekm héldu eftir fimm hundmð þúsund krónum af kaup- verðinu þar til málið væri til lykta leitt fyrir dómi. Þá upphæð þurfa þau nú aldrei að greiða Bimu Smith og eiginmanni hennar og að auki fá þau 630 þúsund krónur í skaða- bætur. Þá er Bimu Smith og manni hennar gert að greiða hálfa milljón í málskostnað. Þetta er því reiðarslag fyrir Birnu og fjölskyldu þar sem.um verulega fjárhæð er að ræða. Ekkert þunglyndi Bima Smith ætti hins vegar ekki að verða. í vandræðum með að græða þau sár sem nú hafa orðið: „DNA-heilunin gengur vel hjá mér. Það er nóg að gera og ég hef náð góðum árangri og þá sérstak- lega tekist að hjálpa þunglyndu fólki," sagði hún í gær. Af áfenginu skaltu þekkja þá Svarthöfði hefúr alltaf verið mikill áhugamaður um vín og lengi dreymt um að eiga góðan vínkjallara lflct og greifar og aðalsmenn í Evrópu áttu fyrr á tímum og eiga jafnvel enn þann dag í dag. Svart- höfði hefur það á til- - finningunni að það jafnist hreinlega ekkert á við það að eiga heilu stæðurn- ar af rauðvíni, rað- að eftir árgöngum svo ekki sé minnst á það hvíta. Það hlýt- ur að vera draumur 1 Svarthöföi * s • vtmsm * SQLD • að labba niður í kjallarann, hver kenndur er við vín, anda að sér dá- samlegri þrúgulyktinni og velja sér eina flösku með kvöldmatnum. Því miður hefur Svarthöfði hvorki kjall- arann né fjárráðin til að koma sér upp slflcu safni enda er það varla á færi nema rflc- ustu manna. Svart- höfði hefur reyndar gott, þakka þér fyrir," segir Bjarni Einarsson, Ijósmyndari og hjólabrettamaður. ia er ég aö undirbúa myndatöku. Er að fara upp ísumarhús í Borgarfirði með Sunnu og Siggu til að taka tiskuþátt fyrirenska biaðiö Lula.“ alltaf verið hallur undir einstaklings- framtakið og þótt hann sfyðji ekki lögbrot getur hann ekki annað en dáðst að sjálfsbjargarviðleitni fjór- menninganna hjá Jónum og Sam- skipum sem ákváðu að láta heilt bretti af áfengi hverfa inn í bflskúr hjá einum þeirra. Svarthöfði veit ekki ástæðuna fyrir þessari gjörð fjórmenninganna, sem var vissulega ólögleg og kostaði þá vinnuna, en hann efast ekki um þeir hafi verið drifnir áfram, af vínáhuganum ein- um saman. Draumur þeirra um að eignast alvöruvínkjallara rak þá sennilega út á afbrotabrautina. Svarthöfði finnur til með þeim. Skál! Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.