Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 24
Tunglfiskur „Þetui va: án efa eitt erfið- a>ta verkefai sem ea heftekið mér fyrir hendur/ segir Steinaren hann stoppaði tunglfiskinn upp ásamt sænskum upp- stoppunarmeistara. Tröllakrabbi Stór og mikill tróllakrabbi. Steinar segir mikla vinnu hafa legid íþessum krabba. Steinar Kristjánsson er einn fárra Islendmga sem tit ar sig sem uppstoppara. Steinar stoppar upp alls kyns fiska, fugla og spendýr og segir ísbirni og 400 kg tunglfisk líklega það merkilegasta sem hann hefur stoppað upp. DV kíkti í heimsókn til Steinars. Útivist & ferðalög DV 24 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 í DV á miðvikudögum Meira en brim í Dóminíska lýðveldinu Ferðalangar hafa löng- nm vitað af fallegu Kite- ströndinni í borginni Cabarete í Dóminíska lýðveldinu sem hefur dregið þúsundb brim- brettaiðenda að sér í ára- íjölda. Yfirvöld í landinu eru nú á fullu að reyna að laða fleiri ferðamenn að og segja Dóminíska lýð- veldið fullkominn áfangastað fýrir útivi- starfólk. Fjallið Pico Du- arte er áhugavert fyrir fjallgöngufólk en fjallið er hæsti tindur í Karab- íska hafinu og það er þriggja daga ganga upp á toppinn. Aðventuferð í Bása 3.- 4.12. Brottför kl. 10 frá Hvols- velli. Árviss ferð sem færri hafa komist í en vilja. Léttar göngur og kvöldvaka. Kröfur um útbúnað jeppa fara eftir færð og veðri. Þátttaka háð samþykki fararstjóra. Farar- stjórar eru Guðrún Inga Bjarnadóttir og Guðmundur Eiríksson. Göngudagur 4.12. Fugla- og náttúruvemdar- félags Álftaness stendur fyrir göngudegi. Gengið frá íþróttahúsinu um fjörur og strendur Álftaness og vetrar- fuglar skoðaðir. Góð ráð fyrir ferðalagið Hafðu i handfarangri: Vegabréfið VeskiO Ökuskirteini Kreditkortin Feröatékkana Ftugmiöa og aöra miöa svo sem iestarmiöa Feröakort Peningaseöla og aura fyrirþjór- fé Lyfin þin Hvernig ferðast ég með lyfin mín? Haföulyfin meðIhandfar- angri þvi hann týnist síöur. Hitastigiö er líklegra betra inni í flugvél- innisjálfri en i farangursrým- inu. Geymdu öll lyf I upprunaleg- um dósum og flöskum tii aö forðast spurningaflóð öryggisvarða. Fáðu vottorö frá læknisem sannaraö þú þurfir á lyfjunum aö halda. Hvernig get ég forðast krumpuð föt? Ekki pakka ofmiklu ihverja tösku. Veldu föt I feröalagið sem krumpast síöur. 'Rúllaöu bolum og nærfötum upp og settu betri fötin utan um þau. Veldu passlega stóra tösku fyrir ferðalagiö. Fötin kastast um töskuna efhún er ofstór. Notaöu poka úr fatahreinsun til að setja á milli fatnaðarins. Ekki nota plastpoka með auglýsingum, blekiö getur smitast I fötin. Pakkaöu upp úr töskunni eins fljótt og þú getur. Hengdu krumpuö fötinn á baðherbergi þvi gufan sléttir úr krumpunum. Útivistum helgina Ferðir framundan f ■■ mmmm ,Þessir eldrí fuglar voru uppstoppaðir með allt öðrum að- ferðum en stundaðar eru í dag og hafa því margir farið illa en það er hægt að laga þá og gera þá sem nýja. Elliðaárdalur 28.11. Gengið um Elliðaárdal- inn. Lagt er af stað kl. 18 ffá- stóra brúna húsinu í Elliðaár- dalnum, ekið frá Miklubraut. Gengið er upp í gegnum hólmann í ánni og vestan megin við hana upp að Vatnsveitubrú, þar sem farið er austur yfn ána. Áð er við Árbæjarlaug og hópurinn þéttur ef teygst heíúr úr honum. Síðan er haldið nið- ur með Elliðaám að austan, farið aftur inn í hólmann við félagsheimili Rafveitunnar og gönguferðinni lýkur á sama stað og hún hófst um það bil klukkutíma og fimmt- án mínútum fýrr. „Þetta er alls ekki subbulegt starf, ég klæði dýrin einfaldlega úr og eftir sit- ur búkurinn," segir Steinar Kristjánsson uppstoppari. Steinar rekur Upp- stoppun Steinars í Fossvoginum og hefur stoppað upp dýr í bráðum átta ár. Snýst um að láta dýrin líta út sem lifandi „Ég hef alltaf stundað bæði skotveiði og stangveiði sem er lík- lega ástæðan fyrir því að maður fór í þetta," segir Steinar og tekur undir að um listgrein sé að ræða. „Þetta er miklu meiri listgrein en iðngrein, það er ekki spurning enda snýst þetta um að láta dýrin líta út sem mest lifandi auk þess sem mikil áhersla er á rétta um- hverfið í kringum dýrin." Tunglfiskur og ísbirnir Steinar hefur stoppað upp fjöldann allan af dýrum í gegnum tíðina. Hann segir algengt að veiðimenn komi til hans með stóra fiska og byrjendur með mar- íufiskana sína. Hann stoppar einnig upp mikið af fuglum og alls konar spendýrum. ,Ætli það merkilegasta séu ekki ísbirnir og 400 kílóa tunglfiskur sem ég stoppaði upp ásamt Ove Lund- ström, margföldum meistara frá Svíþjóð," segir Steinar og bætir við að um afar furðulega skepnu hafi verið að ræða sem sé nú til sýnis í Ráðhúsi Þorlákshafnar. Milljarða bissness í Amer- íku Steinar segir tækninni hafa fleygt fram í uppstoppun eins og öðru. Uppstoppun sé milljarða dollara bissness í Ameríku og hann sé duglegur að mæta á nám- skeið til að viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjustu tækn- ina. Hann lærði iðnina í skóla í Wisconsin í Bandaríkjunum á sín- um tíma og hefur nú keppt á alls kyns mótum um allan heim og varð núna síðast í öðru og þriðja sæti á heimsmeistaramóti í Bandaríkjunum þar sem hann stoppaði upp fugla. Lagar gamla fugla Steinar segir að þar sem stang- veiðimenn séu farnir að sleppa mikið af fiski séu þeir einfaldlega farnir að taka mynd af þeim stærstu svo þeir geti fengið eftir- mynd upp á vegg. „Þetta er að verða jafnvel vinsælla enda er úti- lokað að sjá muninn," segir hann og bætir við að það sé einnig algengt að þeir sem eigi gamla uppstoppaða fugla komi með þá til íagfæringar. „Þessir eldri fuglar voru uppstoppaðir með allt öðrum aðferðum en stundaðar eru í dag og hafa því margir farið illa en það er hægt að laga þá og gera þá sem nýja." Meö sýningu um nelgina Hægt er að skoða ýmiskonar upplýsingar um uppstoppun á heimasíðu Steinars www.icetax- idermy.com en á laugardaginn ætlar Steinar að vera með smá sýningu í Veiðihorninu í Hafnar- strætinu og svara í leiðinni alls kyns spurningum varðandi upp- Stoppun. indiana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.