Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 Menning DV C Jólastúss / Kringlunni á fímmtudag getur endaö á upplestri. (sgerður Elfa Gunn arsdóttir f Leitínni aðjólunum. ■ Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Brot af því besta Upplestur og iifandi tónlist verða í boði fyrir gesti og gangandi í anddyri Borgarleik- hússins annað kvöld. Þar lesa eftirtaldir höf- , undar í nýjum bókum sínum: Einar Kárason, ^ Gerður Kj'istný, Kristjón Guðjónsson, Sjón, Steinunn Sigurðardóttir og Yrsa Sigurðardótt- ir. Boðið verður uppá léttan jóladjass og sann- kailaða jólastemningu. Tónlistarmennimir Ólafúr Jónsson á tenórsaxófón og Jón Páli Bjamason á gítar leika um kvöldið. Eymundsson selur bækur höfúndanna á góðum kjörum. Það er lofað frábærri kvöid- stund í anddyri Borgarleikhússins. AÍlir velkomnir og ókeypis aðgangur. Hinn árlegi upplestur „Brot af þvf besta‘‘er samstarfsverkefni Borgarleik- hússins, Borgarbókasafns-Kringlusafns, Kringlunnar og Eymundssonar. Anna Theódóra Rögnvaldsdóttir kvikmyndageröarkona. ENN heldur áfram skrifum kvik- myndagerðarmanna á www.logs.is. Síðust leggur Anna Theódóra Rögnvaldsdóttir sitt til málanna i pistli á sunnudag. Hún segir: „Sjónvarpið hefur verið ( krísu siðan einkarétti ríkisins á út- varps- og sjónvarpsrekstri var aflétt árið 1985, ég held að það sé ekki hægt að orða það öðruvisi. Það er eins og það hafi verið að renna afturábak niður hála brekku. Það segir býsna mikið um þessa stofnun- eða réttara sagt um viðhorf stjórnmálamanna til hennar- að mestallan þennan tíma (þ.e.frá 1985) hafa gamlir fréttamenn valist til að veita henni forstöðu, fyrst Markús örn Antonsson og nú Páll Magnússon. Staðreyndin er sú að hin siðari ár hefur Sjónvarpið verið lítið annað en ríkisrekinn fréttamiðill. Það er varla annað innlent efni á boðstólnum en fréttir og dægur- málaspjall." ANNA bendir á að stofnunin verji minna fé árlega til kaupa á skáld- uðu efni og heimildamyndum efni en hún borgar (fasteigna- gjöld fyrir Efstaleiti 1. Hún hefur enga trú á að það breytist með breyttu rekstrar- formi: „Þetta breytist ekki nema stjórnmálamenn breyti þv(,ann- aðhvort með lögum eða einhvers- konar tilskipunum. Þegar allt kem- ur til alls er Sjónvarpið í eigu ríkis- ins. Það er eðlilegt að gera þá kröfu til þessa fyrirtækis að það sýni innlent skáldað efni reglu- lega, ekki bara stundum, og ef þessi krafa er ekki gerð núna, þeg- ar verið er að endurskoða lögin frá grunni, þá veit ég ekki hvenær á að gera hana. I framhaldinu þyrfti að setja á stofn dramadeild (leiklistardeild). Ég held að Sjón- varpið sé eina evrópska rfkissjónvarpsstöðin sem er ekki með dramadeild." Slíka deild segir hún þurfa 300 milljónir árlega á ári (framleiðslu. Þjóðleikhúsiö býður uppá litla leiksýningu á aðventunni sem skoðar jólahald að fornu og nýju Flugur EKKI er hún hrifnari að framgangi húskarla Páls við innkaup á heim- Mdarmyndum: „Það er engu Ifkara en að efni sé keypt af tómri vor- kunnsemi við innlenda framleið- endur.Og kaupverðið hugsað sem smá aukasporsla handa þeim. Krem ofan á kökuna." ANNA fagnar auknu framlagi f sjónvarpssjóð Kvikmyndamið- stöðvar en segir slðan: „Fleiri og hærri opinberir styrkir hafa sára- litla þýðingu nema við - eða rétt- ara sagt fulltrúar okkar á Alþingi - geri þá kröfu til Sjónvarpsins að innlent dramat(skt efni verði jegluiegur þáttur (út- ksendingum. Ekki l tilmæli og ekki ) eitthvað orða- r0 lag á borð við * að Sjónvarpið „skuli leitast viðaffremsta .megni". Kröfu." Leikhússtund fyrir börn og fullorðna ■ M»rl«ii FyrrvermcK átvapsstiófi og fréttmmður. Það er vel til fundið hjá Þjóð- leikhúsinu að nýta aðventuna til leiksýninga fyrir börn. Það er fastur hluti af jólahaldi í flestum ná- grannalöndum okkar. í Bretlandi er löng hefð fyrir þessháttar leik- sýningum.Hér hefur reynst erfið- ara að draga vandamenn í leikhús með böm: hinir fullorðnu þykjast hafa svo mikið að gera. Stefnt er að sýningum tvisvar á dag, virka daga og um helgar og er útlit fyrir að að- sókn verði ásættanleg. Fimm til tíu Sótt er á barnaskólaaldurinn en sýningin er erfiðari börnum yngri en fimm ára. Hún er víðs vegar um húsið og verða áhorfendur að ganga upp á efstu hæð hússins og alla leið niður í kjallara meðan á sýningunni stendur. Prómenad- sýningar em nýnæmi í Þjóðleik- húsinu en þær em erfiðar í miklum hæðamun og slæmt ef það verður minnistæðast úr Leitinni að jólun- um hvað stigar em margir og hvað ástandið á leikhúsinu slæmt þegar komið er aftur fyrir viðgerð þeirra Svavars Gestsonar og Áma J ohnsen sem reynist miicil Potemkin-tjöld. TrúAar og þjóðlegheit Þrír höfundar leggja mest í þessa sýningu. Stef Áma Egilssonar em skemmtilega þjóðleg, jóla- sveinabálkur Jóhannesar úr Körtl- um stendur fyrir sínu sem hryggjarstykki verksins og reyndar má kenna Jóhannnesi um þá hug- mynd sem við höfum um jóla- sveinana þrettán. í kringum þessi stef hefur Þorvaldur Þorsteinsson samið lítinn trúðleik og tvö stutt atriði. Trúðamir em fínir. Raunar ætti að láta alla leikara Þjóðleikhússins vinna reglulega í trúðleik en þau Þómnn Clausen og Rúnar Freyr vinna skipulega úr sínu. Þeirra er að halda sýningunni gangandi, vinna með beint samband við unga HH • . áhorfendur - mættu raunar látast aðeins í hinum fullorðnu líka svona til að sýna jafnræði með börnum og fullorðnum sem þeim yngri þykir alltaf gaman. Þau em skýr og verða að halda athygli á býsna dreifðum áhorfendaskara sem er erfitt og útheimtir mikinn kraft sem þau geta bæði gefið. Grýla og kjarnafjölskyldan Innskotsatriðin er slakari og byggjast á næsta klisjukenndum skilningi á þjóðlífinu: Allir áttu bágt til foma og enginn talar saman í dag. Þau em óttalega þunn. Það er raun- ar fyndið þegar mest er gasprað um fátækt í baðstofum til foma sitja þrjár konur undir þekju og em allar klæddar í stássföt íslensk, móðirin í skautbúningi skrautsaumuðum við fald og kvartar yfir matarleysi. Það er ekki hluti af menningarhlutverki Þjóðleikhussins að dreifa röngum upplýsingum um fýrri tíð - ekki í búningum. V, %. , ' En allt er þetta meinh'tið og krakkar höfðu gaman að þessu - erindið er fallegt og má hafa af þessu ljúfa stund - ef foreldrar og vandamenn finna sér tíma til að vera með bömum vikumar í kring- um hátíðir. Páll Baldvin Baldvinsson Þjodleikhusið sýnir i forsot og víðar: Leitin oð jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson Tónlist: Árni Egilsson Leikstjóri: Þorhallur Sigurðs- son Buningar: Þorunn E. Sveins- dottir Leikmynd• Geir Óttar Geirsson Frumsyning: 26 "Ovemöei 2005 Leiklist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.