Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2005, Síða 19
DV Sport MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 19 í gær var formlega vígð til notkunar ný frjálsíþróttahöll í Laugardalnum en byggingin er austan megin við gömlu Laugardalshöllina. Aðstaðan er til fyrirmyndar og ekkert því til fyrirstöðu að halda þar al- þjóðleg mót í frjálsum íþróttum innanhúss. Þá er aðstaða áhorfenda ekki síður glæsileg. Glæsileg aðstaða Nýja frjálslþróttahöllinn I Laugardalnum erglæsileg Ialla staði. Gærdagurinn var langþráður fyr- ir frjálsíþróttafólk á íslandi en þá var formlega vígð ný og glæsileg frjáls- íþróttahöll í Laugardalnum. Jónas Egilsson er formaður Fijálsíþrótta- sambands íslands: „Þarna er 200 metra hringbraut með íjórum brautum og þá er 60 metra braut í miðjunni. Þá er hægt að keppa þarna í öllum frjálsíþrótta- greinum sem tíðkast innanhúss og er þetta gerbylting í aðstöðu fyrir okkar frjálsíþróttafólk. Til að mynda höfum við ekkert getað keppt hér á íslandi á hringbrautum svo löglegt sé. Með þessu skapast líka æfinga- aðstæður fyrir okkar afreksfólk sem hingað til hefur þurft að fara utan til æfinga," sagði Jónas. Þetta er gríðarlega mikil breyting frá því sem var en áður varð fíjáls- íþróttafólk að gera sér Baldurshaga, æfingaaðstöðuna undir gömlu stúkimni á Laugardalsvellinum, að góðu. „Við getum til að mynda nú haldið hér á landi alþjóðleg mót, fyr- ir utan vitanlega heims- og Evrópu- meistaramót, sem skapar íslensku frjálsíþróttahreyfingunni algerlega nýjar vfddir." Jónas segir að ráðgert sé að halda alþjóðlegt boðsmót í nýja húsnæð- inu í janúar en hann segir að ísland sé áhugaverður kostur fýrir marga alþjóðlega keppnismenn. Hingað til hafi íslensk veðrátta hindrað sl£k mót en nú sé það breytt. „Svo má ekki gleyma því hve góð aðstaða er fyrir áhorfendur. Þetta er í fyrsta sinn sem áhorfendur geta fýlgst með frjálsíþróttum' innanhúss að ein- hverju ráði og vonumst við til að geta boðið áhorfendum upp á skemmtileg mót í framtíðinni." Klippt á borðann Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri vlgir frjálsíþróttahöllina. DV-myndir Valli m Okkar metnaður... þmn styrkur Body Combat/Body Step Fitness box Kennari: Ásta Björg Ásgeirsdóttir Hraðir tímar. Sippað og boxað í takt við hraða tecknó-tónlist. Fitubrennsla og styrking. Tímar: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30-19:30 Rope Yoga Kennari: Birgir Birgisson “Rope Yoga er kerfi vellíðunar og þjálfu- nar sem tekur beint á gagnkvæmum tengslum líkama og hugar. Hugsanir og gjörðir falla saman við heimspeki og iðkun til að skapa verundarástand sem eflir lífsfytlingu og hamingju. Að sama skapi þá sameinar Ropeyoga öndun, hreyfingu og hugsun. Þessi sameining öndunnar og hreyfingar hefur þrek og heilsu upp í nýjar hæðir og iðkendur sjá sjálfa sig í nýju Ijósi og öðiast þar af leiðandi mátt til að skapa nýjan og gjö- fulan veruleika.” Sbr. Guðni Guðnason http://www.ropeyoga.is Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20-21 hefst 29. nóv. Líkamsrækt magi - rass - læri Kennari: Guðfinna Tryggvadóttir Upphitun í 10-15 mín. þá annaðhvort á gólfi eða á pöllum. Styrktarþjálfun í 40 mín. þar sem áherslan er lögð á kvið, rass og læri. Notuð eru handlóð, teygjur og eigin líkamsþungi í æfingunum. Vöðvateygjur og slökun í 5-15 mín. Tíminn herrtar ölium aldurshópum. Þú vinnur í takt við þinn Ifkamsstyrk og þlna getu. Kennarinn leggur sig fram við að sinna því. r • suni 482 3220 WWW.topp»OftJs Kla*»l0 10 nær,n9arm * frá(tEAS ml Ve Kennari: Svava S. Svavarsdóttir Body Step skemmtilegur tími á pöllum í takt við hressilega tónlist. Eykur þol og styrkir rass og læri. Mjög líflegir og skemmtilegir tímar. Body Combat eru hressir og liflegir tíma sem hafa slegið í gegn. Bianda úr helstu sjálfsvarnar íþróttum einsog karate, kickboxi og Tae Kwando í takt við orku- mikla tónlist. Tekur virkilega á og stuðlar að aukinni samhæfingu, auknu þreki, auknum liðleika og styrk. Tímar: Þriðjudags- og fimmtudagsmorgnar kl. 6:05-7:05

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.