Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 11

Símablaðið - 01.01.1962, Blaðsíða 11
búizt við, að unnt sé að opna þá leið til al- menningsnota núna kl. 15.40 um leið og al- mennu tal- og skeytaviðskiptin um sæsím- ann til Evrópulanda. Ég bið ykkur að afsaka, gestir góðir, ef þessi mörgu orð hafa þreytt ykkur, en í raun og veru hafa þó aðeins verið nefnd nokkur atriði úr viðburðaríkri sögu. Póst- og símamálastjórnir Bretlands og Dan- merkur, og þó fyrst og fremst Mikla Nor- ræna Ritsímafélagið, hafa lagt fram mikið fé og mikið starf til framdráttar þessu mikla hagsmunamáli okkar, og Alþjóða- flugmálastofnunin hefur veitt því mikils- verðan stuðning með því að samþykkja fyrirfram að taka rásir á leigu í sæsíman- um. Forstíjóri Mikla Norræna Ritsímaféiags- ins, Bent Suenson, er meðal gesta okkar hér og vil ég nota tækifærið til þess að þakka honum og félagi hans fyrir hið mikla framlag þess í fé og vinnu við að koma sæsímanum í framkvæmd. Ég vænti þess, að nýi sæsíminn valdi þáttaskilum í símasambandi íslands við umheiminn, og reynist eins vel og til er ætlazt. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■i Hcmii tíl á taUatn(?ahc(htu Mikið annríki var hjá starfs- fólkinu á talsambandi við út- lönd, svo og öðru þvi starfs- fólki símans, sem vann að opnun hins nýja talsam- bands við útlönd. Við vitum lika, að vígslan fór fram með mikilli prýði af hálfu allra aðila. Blaðið hitti að máli Valdi- mar Einarsson á talsamb. við útlönd og lagði fyrir hann eft- irfarandi spurningar: Hver telur þú, Valdimar, mestu viðbrigðin, frá því sem áður var, í sambandi við af- greiðsluna? 1 fyrsta lagi, aö nú höfum við stöðugt og truflunarlaust samband allan sólarhringinn og erum laus við léleg hlust- unarskilyrði, sem háði þjón- ustunni alltaf eitthvað og oft alvarlega. Nú getum við lof- aö öruggu sambandi strax, svo framarlega aS ekki séu tafir erlendis, af ófyrirsjáanlegum ástœSum. Þá má benda á, að allar myndsendingar til og frá fara fram truflunarlaust. Þar sem nú heíur verið tjaldað lengur en til einnar nætur, eru þá ekki möguleik- ar á að taka á móti mikilli samtalaaukningu á komandi árum? ÞaS má segja, aö samtala- fjöldi hafi þrefaldast síðan scesíminn kom og möguleikar eru á aS taka á móti mjög mikið auknu álagi, miðaö viS það, sem nú er, án þess aö leggja í nokkurn aukakostn- að. Má sér í lagi búast við að álagið aukist á sumrin, þeg- ar ferðamannastraumurinn er hvað mestur. Hefði ekki verið mikilsvert ef þetta samband hefði verið komið á, þegar t. d. landhelg- isdeilan við Breta stóð sem hæst? Þegar erlendir fréttamenn voru hér flestir í september 1959, vegna landhelgisdeilunn- ar, þá afgreiddum við frá kl. 0800 til 2400 stanzlaust dög- um saman og höfðum þó ekki við. Þá varö að hafa þann hátt á, að skammta hverjum fréttamanni vissan mínútufjölda í hvert skipti, þar aö auki vorum viö á glóS- um um, að sambandið dytti niður þá og þegar, vegna ó- tryggra hlustunarskilyröa. — MeÖ núverandi fyrirkomulagi, heföi öllum þessum frétta- mönnum veriö tryggö örugg þjónusta án skömmtunar á tíma. Við þökkum Valdimar fyrir svörin. Þess má geta, að blað- ið hefur fregnað, að mjög þekktur blaðamaður frá As- sociated Press, sem dvaldi hér á landi þegar áðurnefnd deila stóð sem hæst, hafi látið svo orð falla, þegar hann fór af landi burt, að hann hafi hvergi á smum ferðum fengið betri þjónustu en þá, sem talsam- bandið veitti honum hér við hin erfiðu skilyrði. Þar sem maðurinn hefur víða farið, má síminn vel við una. H. H. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.